Reykjanes - 10.01.2013, Blaðsíða 9
910. janúar 2013
Stöndum SAmAn
tiL árAngurS
Nú er enn nýtt ár gengið í garð og við lítum fram á veginn væntandi þess að það ár gefi
okkur gæfu og farsælt gengi á öllum
sviðum. Á sama tíma lítum við til baka
með mismunandi minningar, bæði
góðar og slæmar. Þetta er allt mjög
eðlilegt og engin ný sannindi.
Hvaða væntingar höfum við til þessa
nýja árs, bæði hvað varðar okkur sjálf
og fyrir samfélagið sem við búum í? Ég
tel það alveg nauðsynlegt að við setjum
okkur markmið sem við stefnum að
ná fram með öllum tiltækum ráðum.
Markmið sem geta skipt miklu máli
fyrir okkur sjálf og eins þá sem við
eigum í samskiptum við.
Nú þurfum við enn frekar en áður
að líta með bjartsýni fram á veginn. Í
allt of langan tíma hafa alltof margir átt
á brattan að sækja og hafa á stundum
hreinlega verið að gefast upp. Það finnst
mér dapurt og ekki sú staða sem við
eigum að venjast, því við Íslendingar
erum framtakssöm þjóð og viljum í
svita okkar andlitis ná að yfirstíga skafl-
ana hvort sem þeir eru af manna- eða
náttúruvöldum á okkar forsendum og
gildum sem við erum alin upp við og
hafa reynst okkur bara ágætlega.
Sitt sýnist hverjum hvernig til hef-
ur tekist með að koma þjóð okkar í
gegnum skaflana frá því fjármálakerfið
hrundi, atvinnuleysið varð landlægt og
allt of margir hafa þurft að lifa við eða
undir fátækramörkum. Þetta er staða
sem við höfum ekki kynnst í seinni
tíð eða frá því forfeður okkar komu
okkur yfir þennan hjalla á árum áður
með dugnaði og krafti sem alltaf hefur
einkennt þessa þjóð.
Nú þurfum við að standa saman um
að við ná stöðu okkar aftur sem sam-
hent þjóð með því að breyta stöðnun
yfir í framfarir hvað sem það kostar.
Ég veit að þar getum við öll náð fram
af skynsemi án græðgi eða hroka. Því
við megum aldrei falla aftur í það far
sem leiddi okkur af braut heilbrigð-
ar skynsemi og rétt almennings til að
eiga tækifæri til að sjá sér og sínum
farborða með skynsamlegar leikreglur
i farteskinu.
Ég hef ákveðið að gerast liðsmaður
í hópi þeirra sem áhuga hafa á að leiða
þjóðina til bjartari tíma með það að
leiðarljósi að það náist best með að
stétt vinni með stétt og eins að kyn-
slóðirnar gangi saman í takt að því
marki sem best getur hentað þessari
þjóð til farsældar. Ég hef í 36 ár sinnt
þjónustustarfi fyrir almenning með
því að gæta laga og réttar. Sjá til þess
að leikreglur séu virtar og að andi laga
og réttar verði ekki kastað fyrir róða.
Á þessari göngu minni hef ég kynnst
aðstæðum fólks frá svo mörgum hlið-
um og fundið til vanmáttar. Oft hef ég
hugsað hvað ég vildi geta komist í þá
aðstöðu að hafa áhrif sem gætu breytt
vonlausum aðstæðum svo margra. Ég
hef mikla trú á manninum og fundið
að ef hann fær tækifæri til að byggja
sig upp á réttlátum forsendum þar
sem manngildið er ofar græðgis-
gildinu væri hægt svo auðveldlega að
bæta líf svo margra. Þar vil ég leggja
mína starfskrafta fram. Ég er til þjón-
ustu reiðubúinn.
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram
í 5. til 6. á lista Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi til að vera bakstuðn-
ingur við fulltrúa flokksins á Alþingi
Íslendinga þar sem mikilvægustu
ákvarðanirnar eru teknar sem skipta
samfélagið allt mjög miklu máli. Með
því tel ég að ég gæti komið að mín-
um sjónarmiðum sem ég finn að fara
mjög saman við grunngildi og stefnu
Sjálfstæðisflokksins og almenningur
hefur kallað eftir.
Kæru vinir á Suðurnesjum. Þið
hafið öðrum fremur þurft að ganga
í gegnum erfiða tíma, en með krafti
ykkar, jákvæðni og heilbrigðri skyn-
semi hafið þið verið að ná eftirtekt-
arverðum árangri. Ég hef fylgst með
og er stoltur af ykkur enda sagði afi
minn Skúli Oddleifsson, er lengi bjó
í Keflavík, að það væri svo mikið
dugnaðrfólk sem þarna byggi og hef
ég aldrei efast um orð hans.
Ég óska ykkur öllum farsældar og
gleði á árinu 2013 og veit að með
krafti ykkar og elju náum við saman,
hvar sem við erum í kjördæminu,
þeim árangri sem þarf til að komast
í þá stöðu sem við eigum skilið.
Geir Jón Þórisson
Vestmannaeyjum
ár KVAtt og nýju FAgnAð
Árið 2012 hefur verið kvatt á viðeigandi hátt. Nýju ári var fagnað með miklum skot-
hvellum, blysum, stjörnuljósum og
flugeldum. Árið 2013 hefur hafið
göngu sína, vonandi verður það okkur
öllum farsælt ár.
noKKrAr áStæður tiL Að gLeðjASt
Enginn hörgull hefur verið á nei-kvæðum fréttum af afkomu og efnahag landsmanna á undan-
förnum misserum. Í slíku umhverfi
er hætt við að svartsýni hellist yfir
þjóðarsálina. Svo rammt kveður að
bölmóðnum að jafnvel bjartsýnustu
menn eru við það að hætta að brosa.
En er allt hér á einn veg? Er eina leiðin
framundan frekari fólksflótti, skatta-
hækkanir og frekari lífskjaraskerðing?
Höfum við enga ástæðu til að horfa
bjartsýnum augum fram á veginn?
Ég tel að við höfum fjölmargar
ástæður til að gleðjast. Ein þeirra er sú
að við eigum miklar náttúruauðlindir
bæði í sjó og á landi. Við þurfum bara
að hafa vit á því að nýta þær og gera
það skynsamlega.
Í fyrsta lagi má nefna frétt Hagstof-
unnar í liðinni viku um heimsaflann.
Þar kemur fram að Ísland er önnur
stærsta fiskveiðiþjóð Evrópu og í 19.
sæti heimslistans. Það er stórmerki-
legt að þjóð sem aðeins telur rúmlega
300.000 íbúa sé í þessari stöðu. Enn
merkilegra er að sjávarútvegurinn
á Íslandi skilar arði án þess að njóta
ríkisstyrkja, öfugt við margar aðrar
fiskveiðiþjóðir. Við getum verið stolt
af þessari stöðu okkar.
Í öðru lagi verður Rammaáætlun
um vernd og nýtingu náttúrusvæða
tekin til atkvæða á Alþingi í næstu viku.
Tillaga sú sem ríkisstjórnarflokkarnir
leggja fram víkur í veigamiklum at-
riðum frá hinni faglegu niðurstöðu
verkefnisstjórnar áætlunarinnar s.s.
vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár.
Þessi frávik leiða til þess að nauðsynlegt
verður að taka áætlunina upp að nýju
eftir kosningar. Engu að síður er ástæða
til að fagna því að nokkrir kostir lenda
í nýtingarflokki og því verður hægt að
halda áfram að vinna að því að þeir
verði að veruleika. Nýting orkunnar
mun leiða af sér fjölgun atvinnutæki-
færa og betri lífskjör fyrir okkur öll.
Jafnframt ber að fagna því að mörg
mikilvæg svæði sem rétt er að vernda
fá nú slíkan sess.
Í þriðja lagi ber að fagna því að
það eru kosningar framundan. Þá fá
kjósendur að segja skoðun sína á því
hverjum hún treystir best til að leiða
þjóðina áfram. Á næsta kjörtímabili
er mikilvægasta verkefnið að ná tök-
um á efnahagsstjórn landsins og stuðla
að eflingu atvinnulífsins með það að
markmiði að lífskjör okkar allra batni.
Öflugt atvinnulíf er forsenda þess að
kaupmáttur aukist. Ég trúi því að þau
sjónarmið verði í hávegum höfð eftir
næstu kosningar.
Höfundur er Alþingismaður og sæk-
ist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurkjördæmi.
Höfundur er
Unnur Brá Konráðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi