Reykjanes - 10.01.2013, Page 14

Reykjanes - 10.01.2013, Page 14
14 10. janúar 2013 Aðalfundur Ernir, bifhjólaklúbbur Suðurnesja boðar til aðalfundar miðvikudaginn 30. janúar kl. 20:00 í Arnarhreiðrinu •  venjuleg aðalfundarstörf •  kosning stjórnar Hjólakveðjur, Stjórnin w w w. reykjanesblad.is SKipHóLL, bLAð ALLrA gArðmAnnA Fyir jólin kom Skiphóll út, sem er blað allra Garðmanna. Eins og ávallt er um að ræða vandað blað með skemmtilegu efni. Skiphóll er nú að fagna sínum 35. árgangi. Út- koma Skiphóls er einn af þessum föstu punktum í jólahaldi Garðmanna. Páll Valur hættir sem bæjarfulltrúi: gengur tiL LiðS Við bjArtA FrAmtíð Páll Valur Björnsson bæjar-fulltrúi Samfylkingarinnar í Grindavík tilkynnti á bæjar- stjórnarfundi í gær að hann hættir sem bæjarfulltrúi um áramót þar sem hann hefur ákveðið að ganga til liðs við stjórnmálaaflið Bjarta framtíð. Páll Valur bókaði eftirfarandi á bæj- arstjórnarfundi í gærkvöldi: „Ég Páll Valur Björnsson tilkynni hér með að ég læt af störfum sem bæjarfulltrúi fyrir Samfylkingarfélag Grindavíkurlistans frá og með 31. desember 2012. Sú ákvörðun helgast af því að ég hef ákveðið að ganga til liðs við stjórnmálaaflið Bjarta fram- tíð. Vil ég nú þegar að leiðir skilja þakka samstarfsfólki mínu í bæj- arstjórn Grindavíkur fyrir frábært samstarf og ógleymanlegan tíma síðustu tvö og hálft ár, einnig þakka ég starfsmönnum Grindavíkur fyrir gott samstarf. Það er með söknuði og trega sem þessi ákvörðun er tekin þar sem að ég hef haft mikla ánægju af setu minni í bæjarstjórninni og þrátt fyrir að þetta starf hafi verið mjög krefjandi þá hefur það verið umfram allt gífurlega gefandi og lærdómsríkt og hefur uppfyllt allar þær vonir sem ég bar til þess. Ég geng stoltur frá borði og er afskaplega ánægður með að hafa verið hluti af bæjarstjórn sem þurfti að taka stórar og erfiðar ákvarðanir en sem hafa komið í ljós að voru réttar og til hagsbóta fyrir Grindavík og íbúa hennar. Allt frá því að ég hóf að hafa af- skipti af pólitík hef ég talað fyrir auknu samstarfi milli flokka og leitast við að reyna leysa þau ágreiningsmál sem óhjákvæmilega koma upp í sem breiðustu sátt. Ég tel að það hafi tek- ist og sú hugmyndafræði sem ég og minn flokkur lögðum upp með í upp- hafi hafi náð að skjóta rótum í starfi bæjarstjórnar. Marta Sigurðardóttir varamaður minn mun taka sæti mitt í bæjarstjórn og nýtur hún fulls traust bæði frá mér og eins frá stjórn og baklandi Samfylkingarfélagsins. Ég skil við Samfylkingarfélag Grinda- víkurlistans í fullkominni sátt og óska þeim alls hins besta í framtíðinni. Að lokum óska ég bæjarstjórn Grinda- víkur gæfu og velgengni og mun ekki liggja á liði mínu og styðja hana til góðra verka hér eftir sem hingað til íbúum Grindavíkur til heilla og hag- sældar. meStur FjöLdi bátAnnA StundAr LínuVeiðAr Nýtt ár hafið og það byrjar strax á vetrarvertíðinni. Hérna á árum áður þá var ætíð mikið fjör í höfnum hérna á suðurnesjunum þegar að vertíðinn var að byrja. Dragnótabátar frá Sand- gerði gerðu oft mjög góða túra í fyrstu sjóferðum sínum. Má þar t. d nefna að í byrjun janúar árið 1989 þá gerðu nokkrir bátar frá Sandgerði ansi góða túra. Baldur KE kom með 13,3 tonn í einni löndun. Haförn KE kom með 15 tonn í einni löndun og Reykjarborg RE sem var systurbátur Hafarnar kom drakkhlaðin með 29 tonn að landi. Bæði Reykjarborg RE og Haförn KE voru systurbátar Sölku GK sem sökk í sandgerði í október árið 2011. Dragnótaveiðarnar núna byrjar ekki með svona miklum látum og er Örn KE ( Örn KE var keyptur nýr og kom í staðin fyrir Haförn KE) er kominn með um 7 tonn í 2 róðrum. Siggi Bjarna GK 3 tn í einum róðri. Ekki er nú mikið um netabáta sem róa á svæðinu enn þó eru nokkrir og það er ansi ánægjulegt að sjá að í Sandgerði er kominn þangað bátur sem á sér ansi mikla sögu á suðurnesj- unum. Heitir sá bátur Þórsnes SH og var smíðaður árið 1964 og hefur á 48 ára sögu sinni alltaf verið gerður út frá Suðurnesjunum nema síðustu 6 mánuði eða svo. . Þórsnes SH var keypt í fyrra til stykkishólms frá Grindavík þar sem að báturinn hét Marta Ágústdóttir GK. Þar á undan þá hafði báturinn heitið Bergur Vig- fús GK og var undirritaður á þeim báti eina loðnuvertíð. Þess má geta að Salka GK sem minnst er að ofan og Bergur Vigfús GK voru báðir undir skipstjórns Grétars Mar Jóns- sonar. Báturinn hét Keflvíkingur KE í 32 ár og er hvað þekktastur undir því nafni. Þess má geta að í dag þá er frammastrið sem er á bátnum af aflaskipinu Súlan EA sem var sett í brotajárn árið 2010. Ekki var kominn skráður afli á bátinn þegar þessi orð eru skrifuð. Erling KE er búinn að landa um 6 tn, Happasæll KE 2 tn, Askur GK 3,3 tn í einni löndun. Maron HU 5 tn í 2. Mestur fjöldi bátanna stundar línu- veiðar og má segja að þeir séu allir að róa frá Sandgerði. Auður Vésteins SU var með 8 tn, Gísli Súrsson 7 tn, Óli á Stað GK 7,2 tn Daðey GK 5,4, Sæborg SU ( gerð út af Einhamri í Grindavík) 4,8 tn, Pálína Ágústdóttir GK 2,5 tn, Muggur KE 5,3 tn, Maggi Jóns KE 3,8tn, Guðrún Petrína GK 4,2 og Þórkatla GK 7,8 tn allir eftir eina löndun. Óli Gísla HU er á skagaströnd og er búinn að landa 11 tonnum í 2 róðrum, þar er líka Von GK sem tók á sig ansi mikið ferðalag því báturinn var á Neskaupstað en í staðin fyrir að koma suður eins og allir bátarnir hafa gert fór Von GK norður og er búinn að landa á Skagaströnd um 4,3 tn í einni löndun. Af smábátunum undir 10 BT þá var Birta Dís GK með 5,4 tn, Líf GK 2,6 og Addi Afi GK 5,6 tn. Gulltoppur GK er ennþá á Djúpa- vogi og var með 9,1 tn í einni löndun. Allir stóru línubátarnir eru farnir til veiða en hafa ekki landað afla þegar þessi orð eru skrifuð. Gísli R. Aflafréttir Hraðvirkt bólgueyðandi verkjalyf ibuxin rapid fæst án lyfseðils í apótekum ibuprofen Notkunarsvið: ibuxin rapid inniheldur ibuprofen sem er lyf sem dregur úr verkjum og hita (flokkur: bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri). ibuxin rapid er notað við vægum til miðlungi miklum verkjum, svo sem höfuðverk, tannverk, tíðaverk, bráðum mígrenihöfuðverk, hita og verkjum vegna kvefs. Ekki má nota ibuxin rapid: Ef þú ert með ofnæmi fyrir ibuprofeni eða einhverju öðru innihaldsefni ibuxin rapid. Ef þú hefur fundið fyrir mæði, astma, nefrennsli, þrota eða ofsakláða eftir notkun acetylsalicylsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlya sem ekki eru sterar (NSAID). Ef þú ert með óútskýrða blóðmyndunar- truflun. Ef þú ert með eða hefur haft endurtekin sár (ætisár) eða blæðingu í maga/skeifugörn. Ef þú hefur fengið blæðingu eða rof í meltingarvegi við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyum (NSAID). Ef þú ert með blæðingu í heilaæðum eða aðra virka blæðingu. Ef þú ert með alvarlega skerðingu á lifrar- eða nýrnastarfsemi. Á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Ef þú ert með kransæðasjúkdóm eða alvarlega hjartabilun. Ef þú þjáist af verulegri ofþornun. Gæta skal sérstakrar varúðar við notkun ibuxin rapid: Ef þú ert með arfgengan blóðmyndunarsjúkdóm (bráða porfýríu með hléum). Ef þú ert með ákveðna sjálfsnæmissjúkdóma (rauða úlfa og blandaðan bandvefssjúkdóm). Ef þú ert með sjúkdóma í meltingarfærum eða langvinna bólgusjúkdóma í þörmum (sáraristilbólgu, Crohn´s sjúkdóm). Ef þú ert með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi. Ef þú þjáist af ofþornun. Ef þú ert með eða hefur haft háþrýsting eða hjartabilun. Ef þú ert með ofnæmi (t.d. húðviðbrögð við öðrum lyum, astma, ofnæmiskvef ), langvarandi þrota í slímhúðum eða langvarandi teppusjúkdóm í öndunarfærum. Ef þú ert með storkutruflun í blóði. Strax eftir stórar skurðaðgerðir. Meðganga og brjóstagjöf: Þú mátt aðeins nota ibuxin rapid á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu eftir að hafa ráðfært þig við lækninn. Ekki má nota ibuxin rapid síðustu 3 mánuði meðgöngu. Yfirleitt er ekki nauðsynlegt að gera hlé á brjóstagjöf við skammtíma notkun í ráðlögðum skömmtum. Algengustu aukaverkanir: Sár, rof eða blæðing í meltingarvegi, stundum lífshættuleg, einkum hjá öldruðum, geta komið fram. Ógleði, uppköst, niðurgangur, vindgangur, hægðatregða, meltingartruflanir, kviðverkur, sortusaur, blóðuppköst, sáramunnbólga, versnun ristilbólgu og Crohn´s sjúkdóms hafa komið fram. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar yfir 40 kg: 200 mg – 400 mg skammtar, að hámarki 1.200 mg á sólarhring. Börn og unglingar: Hámarksskammtur af ibuprofeni á dag er 30 mg á hvert kg líkamsþyngdar, skipt niður í 3 til 4 staka skammta. 20-29 kg: 200 mg skammtar, að hámarki 600 mg á sólarhring. 30-39 kg: 200 mg skammtar, að hámarki 800 mg á sólarhring. Ekki skulu líða minna en 6 klst. á milli skammta. ibuxin rapid skal aðeins nota hjá börnum sem eru a.m.k. 20 kg að þyngd. Lesið vandlega leiðbeiningar í fylgiseðli sem fylgir lynu. Júlí 2012. HÖFUÐVERKUR - TANNVERKUR - TÍÐAVERKUR - MÍGRENI - HITI

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.