Reykjanes - 13.06.2013, Blaðsíða 10
Gróðurmold afgreidd
inn í garðinn á Suðurnesjum
Moldin er hrærð með íblöndunarefnum
(Kalk- þríforsfat og blákorn)
Hver poki er c.a. 900 kg
kr. 15.000 heimkomið
Upplýsingar í síma 863-0529
Gróðurmold afgreidd
inn í garðinn á Suðurnesjum
Moldin er hrærð með íblöndunarefnum
(K lk- þríforsfat og blákorn)
Hver poki er c.a. 900 kg
kr. 15.000 heimkomið
Upplýsingar í síma 863-0529
Gróðurmold afgreidd
inn í garðinn á Su nesjum
Moldin er hrærð með íblöndunarefnum
(Kalk- þríforsfat og blákorn)
Hver poki er c.a. 9 kg
kr. 15.000 heimkomið
Upplýsingar í síma 863-0529
10 13. júní 2013
Sjóarinn síkáti:
Litadýrð á bryggjuballi
Bryggjuball Sjóarans síkáta tókst ljómandi vel. Heldur betur rætt-
ist úr veðrinu því áður en ballið hófst
skrúfuðu veðurguðirnir fyrir rign-
inguna. Þátttakan í skrúðgöngunni var
framar vonum og bæjarbúar klæddir í
litum hverfanna og fjölskrúðleg farar-
tæki fóru fyrir göngunni.
Að vanda tóku hverfin fjögur nokkur
lög og voru þau sérlega skemmtileg og
öll með frumsömdum textum. Grind-
vískt tónlistarfólk tók nokkur lög og
síðan steig Páll Óskar á svið og fór á
kostum. Rokkabillýbandið sá svo um
bryggjuballið með stórsöngvarana
Matta Matt og Helga Björns fremsta í
flokki. Bryggjuballið fór ljómandi vel
fram og skemmtu gestir sér hið besta.
Hjóladagur í Gerðaskóla
Fyrir stuttu mættu slysavarnar-konur úr deildinni Una í Garði í Gerðaskóla, þar sem nemendur
fengu að spreyta sig á hjólabraut fyrir
framan skólann. Lögreglan mætti á
staðinn til að skoða hjól nemenda. Ef
allt var í lagi fengu nemendur límmiða
því til staðfestingar á hjól sitt.
Sólseturs-
hátíðin í
Garði
Sólseturshátíðin í Garði hefst fimmtudaginn 27. júní n. k. Samkvæmt venju verður boðið
uppá fjölbreytt skemmtiatriði.
Sandgerði
Tímabundið viðbótarálag á fast
eignaskatt lagt af um næstu áramót
Á fundi bæjarstjórnar 8. maí sl. var samþykkt samhljóða að á næsta ári verði fellt niður
25% tímabundið viðbótarálag á fast-
eignaskatt íbúðarhúsnæðis, en viðbót-
arálagið var lagt á árin 2012 og 2013.
Ákvörðun um niðurfellingu álagsins
er tekin í ljósi þess árangurs sem náðst
hefur við endurskipulagningu á rekstri
og skuldum bæjarfélagsins. Rekstrar-
niðurstaða ársreiknings 2012 gefur
skýrt til kynna að tekist hefur að hag-
ræða og lækka rekstrarútgjöld veru-
lega og endurskipuleggja skuldir og
skuldbindingar þannig að bæjarfélagið
stendur nú undir árlegum útgjöldum.
Á sama fundi var ársreikningur
Sandgerðsbæjar samþykktur sam-
hljóða og lýsti bæjarstjórn yfir ánægju
með niðurstöður reikningsins og færði
til bókar þakkir fyrir góð störf, sam-
stöðu og sátt í samfélaginu um að taka
á þeim fjárhagsvanda sem bæjarfélagið
hefur glímt við.
Grindavík:
Sumarlestur
bókasafnsins
Þema sumarlestursins í ár er Jói og Baunagrasið, en baunagrasið er þegar byrjað að vaxa á ganginum
framan við safnið! Skráning hefst 10.
júní og lesturinn stendur til 31. júlí. Allir
6-12 ára krakkar geta verið með!
Nú þurfa krakkarnir að hjálpa bauna-
grasinu að laufgast með því að lesa
bækur í sumar – fyrir hverja lesna bók
bætist eitt lauf á baunagrasið ?
Áfangaverðlaun í boði eftir 3 lesnar
bækur og svo aftur eftir 7 lesnar
bækur og síðast eftir
10 lesnar bækur!
9. september
verður uppskeru-
hátíð og þá verður
dregið úr nöfnum
þátttakenda og
einn heppinn fær
vinning!
Sjáumst á bókasafn-
inu - heilsulind hugans!