Reykjanes - 03.10.2013, Qupperneq 8
8 3. október 2013
Veitingastaðurinn
Brúin í Grindavík
Konan í brúnni kallinn á plani
Hjónin Sigríður Gunndórs-dóttir og Ólafur Arnberg Þórðarson eiga og reka stóran
veitingastað í Grindavík. Veitingastað-
urinn ber nafnið Brúin. Reykjanes
heimsótti staðinn nýlega og fyrsta
spurning, hvers vegna Brúin. Jú við
vorum í útgerð sagði Ólafur Arnberg.
Ég var stýrimaður og skipstjóri. Bát-
urinn var Eldhamar. Að sjálfsögðu
var þarna komin skýringin á nafni
veitingahússins. Brúin er flott nafn á
veitingastað í Grindavík.
- Hvers vegna hættuð þið í útgerð?
Það var hreinlega ekki hægt að gera út
lengur með leigukvóta. Blaðinu var því
snúið við og húsnæði nýtt í að stofna
veitingastað. Við opnuðum síðasta sjó-
mannadag.
Jú, við erum ánægt með viðtökurnar
en aðsókn mætti vera meiri. Þau sögð-
ust þó bjartsýn á framhaldið. það
tekur sinn tíma að komast á kortið.
Suðurstrandavegur tengir okkur vel
við Suðurlandið.
Brúin er opin frá kl.11: 00 til 22: 00
eða lengur ef með þarf. það kom t. d. oft
fyrir í sumar að túristar voru að koma
á seint á kvöldin og auðvitað þjónust-
uðum við þá. Brúin er veitingastaður
í ódýrari kantinum.
Fjölbreyttar veitingar eru á matseðl-
inum. Höfuðáherslan er þó lögð á fisk
og fiskrétti. Ólafur Arnberg sagði að
þau væru búin að ráða til sín kokk, en
eldhúsið er stórt og vel útbúið.
Framundan eru ýmsar uppákomur
m. a. til styrktar Sunddeild UMFG.
Stórveisla verður 8. nóvember n. k.
Fram kom hjá þeim hjónum að
framundan væri 40 herbergja hótel-
bygging í nágrenninu,
- Verðið þið með Jólahlaðborð? Já,
að sjálfsögðu ætlum við að vera með
jólahlaðborð. Byrjum seinnipartinn í
nóvember. Salurinn hjá okkur getur
tekið 130 manns í sæti í jólahlaðborð.
Já, Brúin er glæsilegur veitinga-
staður, sem við hvetjum Suðurnesja-
menn að prófa.
- Að lokum spurði ég hvernig væri fyrir
fyrrverandi skipstjóra að reka svona
stað, hvernig er verkaskiptingin?
Konan er í brúnni, kallinn á plani
sagði Ólafur Arnberg. S. J.
Skrifað undir samning um Fisktækniskólann
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Ólafur Þór Jóhannsson, formaður stjórnar
Fisktækniskóla Íslands, undirrituðu
samning til eins árs um kennslu í fisk-
tækni í tilraunaskyni. Um er að ræða
kennslu í fiskvinnslu, fiskveiðum og
fiskeldi samkvæmt námsbrautarlýs-
ingum í skólanámskrá, sem samþykkt
var af ráðuneytinu 2012.
Kennslan fer að mestu fram í Grinda-
vík en einnig er unnið að uppbyggingu
náms í fisktækni víða um landið í sam-
starfi við heimamenn á hverjum stað.
Jafnframt er í samningnum gert ráð fyrir
að skólinn þrói námsbrautir á sviði fisk-
tækni og standi að kynningum á námi í
fisktækni í samstarfi við framhaldsskóla
og framhaldsfræðsluaðila. 30 nemendur
munu stunda nám við skólann í Grinda-
vík í haust.
Fisktækniskóla Íslands í Grinda-
vík var komið á fót á vordögum 2010
og hefur það að markmiði að bjóða
grunnnám á sviði veiða (hásetanám),
fiskvinnslu og fiskeldi á framhaldsskóla-
stigi ásamt endurmenntun fyrir starf-
andi fólk. Þá mun skólinn bjóða nám í
netagerð (veiðafæragerð) á grundvelli
samstarfssamnings við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Skólinn er afurð samstarfs
Grindavíkurbæjar, fyrirtækja og stéttar-
félaga á Suðurnesjum á sviði veiða,
vinnslu og fiskeldis. Einnig Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum, fræðsluað-
ila og einstaklinga á Suðurnesjum sem
tóku sig saman og stofnuðu félag til að
efla menntun og fræðslu á Íslandi á sviði
veiða, vinnslu og fiskeldis.
Fram kom í máli Ólafs Jóns Arn-
björnssonar skólastjóra að 1500 einstak-
lingar hafa sótt námskeið á vegum Fisk-
tækiskólans. Nemendur við skólann í
haust verða 30.
Ólafur Jón skólameistari
Dragnótaafli er þokkalegur
Þann 30 september þá lauk makrílveiðunum á handfær-unum en afli bátanna núna
í september var æði misjafn. Þó
nokkrir bátar hættu veiðum og fóru
á línuna. t. d Pálína Ágústdóttir GK
sem var búinn að landa 25 tonnum
af makríl í 8 róðrum. Báturinn fór
austur á Neskaupstað og hefur landað
þar 19 tonnum í 5 róðrum. Fjólu GK
hefur gengið nokkuð vel og er kom-
inn með 56 tn í 14 róðrum, mest 8,1
tonn í einni löndun og reyndar þá
landaði Fjóla GK tvisvar sama daginn
samtals um 11 tonnum. Reynir GK
er með 42 tn í 16 róðrum og mest 6,7
tonn í róðri.
Siggi Bessa SF frá Hornafirði hefur
landað makríl í Keflavík og gekk ansi
vel, var með 54 tn í 10 róðrum og
mest 8,5 tonn í einni löndun. Bátur-
inn mest með 14,6 tonn á einum degi
í tveim löndunum. Æskan GK er með
23 tn í 12 róðrum og mest 3,9 tonn í
einni löndun.
Mest allur smábátalínubátafloti
suðurnesjamanna er staðsettur við
Austurland og nokkrir bátar eru á
Norðurlandinu þá aðalega á Skaga-
strönd. Afli bátanna við Austanvert
landið er ansi góður. Gísli Súrsson
GK er með 96 tn í 15 róðrum og mest
10,6 tonn í einni löndun. Auður Vé-
steins SU 92 tn í 15 og þar af 11,3
tonn í einni löndun. Þórkatla GK 89
tn í 14 og mest 11,5 tn í einni löndun.
Hópsnes GK 85 tn í 14 og mest 12,4
tn í einni löndun. Bergur Vigfús GK
88 tn í 16. Von GK 81 tn í 15. Óli á
Stað GK 80 tn í 11 og mest 10 tonn í
einni löndun. Daðey GK 75 tn í 15.
Allir bátarnir að ofan eru að landa
á Austulandi. Dúddi Gísla GK er á
Skagaströnd og hefur landað þar 66
tn í 12 róðrum. Muggur KE er með
51 tn í 11 líka á Skagaströnd.
Stærri línubátarnir eru eins og þeir
minni að flakka útum allt land, og
eru að landa ansi víða. t. d Kristín
ÞH 375 tn í 5 á Húsavík. Tómas Þor-
valdsson GK 300 tn í 7 í Grindavík og
Djúpavogi. Í sömu höfnum hafa hinir
Þorbjarnarbátarnir landað afla. Sturla
GK 288 tn í 6, Valdimar GK 270 tn
í 6, Ágúst GK 260 tn í 5. Jóhanna
Gísladóttir ÍS 331 tn í 5 á Húsavík
og Djúpavogi. Gulltoppur GK sem
er á balalínu og landar á Djúpavogi
er með 107 tn í 16.
Dragnótaafli er þokkalegur. Sig-
urfari GK er hæstur með 143 tn í
14 róðrum og mest 28 tonn í einum
róðri. Örn KE er með 100 tn í 13.
Farsæll GK 80 tn í 14. Siggi Bjarna
GK 75 tn í 13. Benni sæm GK 67 tn
í 13. Njáll RE 61 tn í 11, Arnþór GK
60 tn í 12 og Askur GK 33 tn í 14.
Ekki eru margir netabátar á veiðum
Happsæll KE er með 30 tn í 13 og
Maron GK líka 30 tn en í 10 róðrum.
Aflaskipið Erling KE er kominn af
stað og hann byrjar ansi vel. Því í
fyrsta róðri sínum þá landaði bátur-
inn 45 tonnum í Grindavík þar sem
að ufsi var 39 tonn. Báturinn hefur
landað 82 tonnum í tveim róðrum í
Grindavík og er ufsi uppistaða aflans.
Frystitogarinn Baldvin Njállsson
GK hefur landað 1181 tonn, í tveim
löndum og þar af var seinni löndunin
570 tonn eftir ekki nema tæpa 14
daga á veiðum eða um 40 tonn á
dag sem er mokveiði. Hrafn Svein-
bjarnarsson GK hefur landað 872
tonnum í 2 löndunum og var seinni
túrinn um 380 tn eftir um 14 daga á
veiðum. Hrafn GK er með 804 tn í 2
löndunum og að lokum Gnúpur GK
sem er með 656 tonn í einni löndun,
Tungufell BA er eini sæbjúgubátur
landsins þessa stundina og hefur
landað í Keflavík og er kominn með
þar 56 tn í 12 róðrum.
Gísli R.
Aflafréttir
Fallegt haustkvöld
Þau geta verið falleg haustkvöldin á Suðurnesjum.