Reykjanes - 03.10.2013, Blaðsíða 14
14 3. október 2013
Nýsmíði eða
breytingar
Framleiðum línuskífur í öllum stærðum
úr Hardox eða ST-52.
Höfum einnig á lager hinar frábæru línuslæður.
Nánar á www.vgsmidja.is
Stóru-Vogaskóli kom-
inn með Grænfána
Eftir tveggja ára undirbúning er Stóru-Vogaskóli
loksins farinn að flagga Grænfána.
Fulltrúi frá Landvernd, Gerður Magnúsdóttir, kom sl. þriðju-dag og gerði úttekt á skólanum.
Hún fór í heimsókn í nokkrar stofur
og talaði við nemendur og starfsfólk
auk þess að lesa um það sem gert
hefur verið. Niðurstaðan varð sú að
við skyldum fá grænfána og kom
Gerður aftur í dag, föstud. 20. sept. ,
og afhenti fánann í Tjarnarsal að við-
stöddum öllum nemendum og starfs-
fólki. Gerður fór í heimsókn í nokkrar
stofur, talaði við nemendur og það var
virkilega gaman að heyra hvað allir
voru með á nótunum.
Umhverfisnefnd skólans, sem í eru
nemendur og starfsfólk, fylgist með
umhverfismálum, kemur með tillögur
til úrbóta og útbýr stefnu skólans í um-
hverfismálum, sem sjá má á heimasíðu
skólans.
Grænfáninn er umhverfismerki sem
nýtur virðingar víða um lönd sem tákn
um árangursríka fræðslu og umhverfis-
stefnu í skólum. Nú taka þátt skólar
með u. þ. b. 10 milljón nemendum í
60 löndum, þar af um 230 á Íslandi.
Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk
og til að bæta daglega umgengni og
rekstur skóla. Þau auka þekkingu nem-
enda og skólafólks og styrkja grunn
að því að tekin sé ábyrg afstaða og
innleiddar raunhæfar aðgerðir í um-
hverfismálum skóla.
Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að
skólar sem taka þátt í verkefninu geta
sparað talsvert í rekstri.
Grænfáni mun væntanlega blakta
við hún við Stóru-Vogaskóla næstu 2
árin, en þá verður gerð úttekt á ný og
metið hvort skólinn skuli halda fán-
anum, en til þess þarf að sýna úthald
og framfarir.
SIGURÐUR Ragnar Bjarnason, fyrrverandi hafnarstjóri, forseti bæjarstjórnar í Sandgerði og
fréttaritari Morgunblaðsins, setti mik-
inn svip á samfélagið á Suðurnesjum.
Hann lést langt um aldur fram árið
1996 á 65. aldursári.
Sigurður var fæddur 28. mars árið
1932 í Sandgerði. Hann lauk vélstjóra-
prófi frá Vélskólanum í Vestmanna-
eyjum árið 1950 og fiskimannaprófi
frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík
árið 1961. Hann var sjómaður og vél-
stjóri á ýmsum skipum og skipstjóri
hjá Guðmundi Jónssyni árið 1960 til
1963. Skipstjóri á eigin bátum var
Sigurður á árunum 1963 til 1977.
Hann gerðist hafnarvörður í Miðnes-
hreppi árið 1978 og varð hafnarstjóri
í Miðneshreppi árið 1988.
Sigurður starfaði að félagsmálum
sjómanna og fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Hann var varamaður í hreppsnefnd
Miðneshrepps á árunum 1982 til 1986
og hreppsnefndarfulltrúi D-listans á
árunum 1986 til 1990.
Hann var bæjarfulltrúi í Sandgerði
og fyrsti forseti bæjarstjórnar er
sveitarfélagið fékk kaupstaðarréttindi
árið 1990. Hann var um nokkurt skeið
fréttaritari Morgunblaðsins í Sand-
gerði.
Merkir Suðurnesjamenn