Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Page 13
DV Helgarblað Föstudagur 25. maí 2007 13 Brautryðjendur í þróunarstarfi Íslensk stofnun vinnur að þróunarstarfi í löndum fyrrum Júgóslavíu: Í viðtali við DV þann 4. maí sagði Auðunn Bjarni Ólafsson frá því hvernig það atvikaðist að hann tók að sér að sinna þróunaraðstoð í lýðveld- um fyrrum Júgóslavíu. Auðunn hafði verið sveit- arstjóri í Súðavík og á Hellissandi en í honum blundaði ævintýraþrá sem varð til þess að hann fluttist með fjölskyldu sína til Zagreb í Króatíu árið 1993 og hóf að starfa fyrir Hjálparstarf kirkj- unnar og Lútherska heimssambandið. Auðunn tók meðal annars þátt í því að endur- byggja þúsundir húsa sem höfðu verið sprengd eða brennd í átökum, ásamt því að aðstoða minnihlutahópa á svæðinu við að flytja aftur heim til sín eftir að hafa hrakist á vergang. Í ársbyrjun 2001 fór Sænska þróunarsam- vinnustofnunin þess á leit við Auðun að hann tæki að sér verkefni fyrir stofnunina. Úr varð að hann og eiginkona hans Sigurjóna Högnadóttir komu á fót stofnuninni PEP International sem unnið hefur að þróunarstarfi í Króatíu, Bosníu, Serbíu, Svartfjallalandi, Albaníu og Makedóníu. „Við fórum að efast um að almennar lausn- ir á borð við sjóði og peningagjafir væru nógu skilvirkar. Því stungum við upp á því að draga úr peningaframlögum og leggja meiri áherslu á nokkurs konar vitundarvakningu,“ sagði Auðunn Bjarni í viðtali við DV. Þessar hugmyndir urðu til þess að ryðja brautina fyrir nýja nálgun í þróun- arstarfi þar sem áherslan er lögð á að gera sam- félagið sjálfbært og íbúar og sveitarstjórnir vinni saman með lýðræðislegum hætti. Þessar hugmyndir mættu nokkurri andstöðu í fyrstu en hafa síðan skilað miklum og mælan- legum framförum. Verkefni PEP International á Balkanskaga nálgast nú leiðarendann. Beinum peningastyrkjum hefur verið hætt og nú vinn- ur þessi íslenska stofnun fyrst og fremt sem ráð- gjafi fyrir sveitarstjórnir í Albaníu og Makedón- íu. Verkefnum á Balkanskaga lýkur í nóvember. Auðunn Bjarni og hans starfslið búa sig því undir að takast á við ný verkefni. sigtryggur@dv.is DV, 4. maí 2007 auðunn Bjarni Ólafsson sagði frá þróunarstarfi íslensku stofnunarinnar PEP International á Balkan- skaga. arijana Foric sagði einnig frá vonleysinu sem fylgdi því að horfa upp á heimahagana lagða í rúst og íbúana hrakta út í hungursneyð og vosbúð. Föstudagur 4. maí 200718 Helgarblað DV til þess að hugsa og gera áætlanir,“ segir �uðunn� Ný sýn á starfið Þegar �uðunn var fastur á Ís- landi í endurhæfingu eftir bílslysið fór hann að velta fyrir sér árangrin- um af hjálparstarfinu� „Þegar mað- ur lítur til baka, þá skildi uppbygg- ingin í Bosníu og Kosovo í sjálfu sér ekki mikið annað eftir sig en end- urbyggð hús og kannski einhver tækifæri, vegna þess að þarna var verið að dreifa alls lags landbún- aðartækjum og jafnvel búpeningi� Þessi vinna hafði sennilega engin áhrif á hugarfarið, hvað þá stjórn- sýsluna� Við vorum farin að huga að því að kannski hefði okkur sést yfir þessa þætti,“ segir hann� Hann var þegar í samræðum við Sænsku þróunarsamvinnustofnun- ina um að þróa verkefni sem hefði aðra nálgun og önnur markmið en þau sem unnin höfðu verið fram að þessu� SID� ræddi við Lútherska heimssambandið um að �uðunn myndi leiða fleiri verkefni á Balk- anskaga, en þær viðræður báru ekki árangur og á endanum leituðu Svíarnir eftir því að �uðunn kæmi á fót eigin stofnun sem sæi um að ráðstafa fé frá SID�� „Á meðan ég var heima í endur- hæfingunni var ég farinn að vinna í því að koma minni eigin stofnun á fót� Ég fékk sænska stofnun í lið með mér til þess að veita mér eins konar skjól til þess að koma þessu í gang� Síðan unnum við að því að skrá okkar eigin stofnun�“ Upp úr þessu spratt PEP Inter- national, stofnun �uðuns og Sig- urjónu� „Við byrjuðum strax í upp- hafi árs 2001 og komum hingað til Makedóníu í janúar� Það ár settum við upp skrifstofur bæði í �lban- íu og í Ohrid í Makedóníu� Það ár fór nánast einungis í rannóknar- og undirbúningsvinnu,“ segir �uð- unn� Vitundarvakning í stað peninga PEP International hófst handa með því að koma á fót hvatning- arsjóði sem hafði um 400 þúsund evrur til úthlutunar á þriggja ára tímabili� „Engu að síður fórum við að efast um að almennar lausnir á borð við sjóði og peningagjafir virk- uðu nægilega vel� Því fórum við að stinga upp á því að réttast væri að draga úr mikilvægi þessara fjár- framlaga og auka verulega á nokk- urs konar vitundarvakningu�“ Þessi hugmyndafræði mætti talsverðri andstöðu í upphafi, enda höfðu þorpshöfðingjar og sveitar- stjórar gjarnan lagt fram einhvers konar innkaupalista til hjálparstofn- ananna� Það segir �uðunn hafa ver- ið orðna viðtekna venju� „Við ákváðum samt að halda þessu til streitu og drógum úr fjár- framlögunum alveg niður í það að hvert þorp gat sótt um framlag, að gefnu ákveðnu ferli, sem svar- ar fimm þúsund evrum� Þetta var gegn ákveðnu mótframlagi af þeirra eigin hálfu� Þau urðu að leggja sjálf fram bæði peninga og vinnu� Marg- ir efuðust og sögðu að þetta myndi aldrei ganga� Þetta hefur hins vegar gengið mjög vel þegar upp er stað- ið� Við erum meira að segja alveg hætt öllum peningagjöfum í dag og erum á staðnum til ráðgjafar og að- stoðar�“ Svipað og heima �uðunn segir að við margs kon- ar vandamál hafi verið að glíma� Meðal annars hafi vantraust manna á milli verið mikið og allra síst hafi fólk treyst yfirvöldum til þess að fara með almannafé� „Við höfum reynt að auka gagn- sæið í stjórnsýslunni hjá þeim sveit- arstjórnum sem við höfum verið að vinna með� Það er alveg ný reynsla hjá þessu fólki að sjá samheng- ið á milli gagnsærrar stjórnsýslu, þess að dreifa upplýsingum og gera þær aðgengilegar fyrir borgarana, og breyttra viðhorfa borgaranna� Menn eru farnir að sjá að fólk met- ur stjórnvöld betur og er jákvæðara í garð þeirra,“ segir hann� PEP International hefur að þessu leyti unnið sem ráðgjafi og viðræðu- aðili� Stofnunin hefur boðið sveitar- stjórnunum upp á fundaaðstöðu og aðgang að tölvubúnaði og þess háttar� „Sveitarfélögin hér eru mörg hver á svipuðum slóðum og íslensk sveit- arfélög voru á fyrir á að giska tuttugu árum� Hér er þó í dag ekkert sveit- arfélag með færri en fimm þúsund íbúum� Þessi fimm þúsund manna sveitarfélög hér eru í svipaðri stöðu og Súðavík var sem 250 manna sveit- arfélag þegar ég var þar sveitarstjóri árið 1980,“ segi �uðunn� Hann segist oft verða var við það viðhorf að í Makedóníu geti hlutirn- ir aldrei orðið í lagi� Hann segist þá nota samlíkinguna við Ísland� „Þeg- ar ég var krakki, þá vorum við að �rijana Foric gekk til liðs við �uðun Bjarna Ólafsson og teymi hans í Bosníu árið 1998� Hún seg- ir ástandið þá hafa verið ólýsanlega erfitt� Gríðarleg eyðilegging hafi blasað við og ekki hafi séð fyrir end- ann á þeirri mannlegu eymd sem fylgdi stríði sem enginn skildi� DV ræddi við �rijönu á hátíð sem haldin var í þorpinu Sanski Most í Bosníu í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að Lútherska heimssambandið og Sænska þró- unarsavinnustofnunin hófu upp- byggingu á svæðinu undir stjórn �uðuns Bjarna� Sorg og vonleysi �rijana segist ekki hafa skilið stöðuna til fulls þegar hún kom til Sanski Most árið 1998� „Ég fædd- ist í bæ sem er aðeins í þrjátíu kíló- metra fjarlægð frá Sanski Most, en var alin upp í Zagreb� Stríðið náði aldrei til Zagreb með sama hætti og það náði til þessara svæða hér í sveitinni� Þegar ég sá gamla fæð- ingarbæinn minn, þá stóðu engin hús lengur,“ segir hún� �rijana segist hafa verið ung og reynslulaus á þessum tíma� Við henni hafi blasað botnlaus fátækt, sorg og vonleysi� „Það er sennilega erfitt fyrir fólk sem aðeins hefur fylgst með stríðinu í kvöldfréttun- um að setja sig inn í þetta andrúms- loft, en málið er að það var jafnvel erfitt fyrir mig sem samt er alin hér upp og var hér allan tímann�“ Fyrsti hugrakki maðurinn Þegar hún er spurð um �uðun og starf hans, þá telur hún að fyrst og fremst sé hann mjög hugrakk- ur maður� „�uðunn reyndi að sjá heildarmyndina og átta sig á því hvað væru viðkvæmustu staðirnir og hvar mikilvægast væri að byrja aðstoðina� Eftir á að hyggja, þá þyk- ir mér vel hafa tekist til miðað við að þetta voru ákaflega erfiðir tím- ar og það virtist ógerningur að átta sig á því hvernig væri best að vinna þetta� Í þessum skilningi vann �uð- unn mikið verk og gott� Hann fór sjálfur inn á svæðin til þess að átta sig á aðstæðum í stað þess að reiða sig á upplýsingar frá öðrum� Hann vildi sjá þetta sjálfur� Hann var fyrsti hugrakki útlendingurinn sem kom hingað til þess að vinna hjálpar- starf,“ segir hún� Að geta ekki hjálpað Sárast var, að mati �rijönu, að átta sig á því í fyrstu hve margir þurftu á aðstoð að halda� „Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að þess- ir hlutir gætu átt sér stað� Það voru svo margir sem þurftu á hjálp að halda og að sjálfsögðu gat maður ekki veitt alla þá hjálp sem þurfti� Ég gat aðeins hjálpað litlum hluta� Það var líka ansi erfitt að átta sig á því að af hverjum eitt hundr- að manneskjum gat maður aðeins hjálpað tíu� Þau þurftu öll á sams konar hjálp að halda� Stundum þakka ég æðri máttarvöldum fyrir það að aðstoðin skuli hafa haldið áfram� Þegar ég kem aftur í gamla bæinn minn í dag, þá er búið að endurbyggja nánast öll húsin� Það er eins og nýr bær�“ Með stolti „Ég veit hreinlega ekki hvort það var hollt fyrir mig að fyrsti yfirmað- ur minn skyldi vera svona góður� Hann fór alltaf með okkur eins og við værum fjölskyldan hans� En ég myndi aldrei kvarta,“ segir �rijana og hlær við� Hún kveðst stolt af því að hafa fengið tækifæri til þess að vinna með �uðuni� „Jafnvel þó að sam- félagið sé ekki nákvæmlega eins og það var áður en átökin brutust út, og getur sennilega aldrei orðið, þá hefur svo mikið áunnist og það er ekki hægt annað en að finna til stolts þegar maður lítur yfir farinn veg�“ sigtryggur@dv.is Arijana Foric Auðuni Bjarna Ólafssyni FYRSTI HUGRAKKI STARFSMAÐURINN Sprengjuregn í Albaníu albanskir borgarar virða fyrir sér ónýtt þakið á híbýlum sínum í borginni Neprosteno. stór hluti af starfi auðunns fólst í því að endurbyggja, skemmd og brunnin hús á Balkanskaga og undirbúa bæjarfélögin fyrir endurkomu íbúa sem höfðu hrakist á vergang. sumir bjuggu í flóttamannabúðum, aðrir í tjöldum við þröngan kost í landi þar sem kuldi nær 30 stigum að vetri. Morgunfundur hjá PEP starfsfólk PEP í Bitola í makedóníu hittist á skrifstofunni að morgni dags. Þar er verkefnum dagsins deilt út. síðan skiptist liðið og heldur út í þorpin þar sem unnið er í samstarfi við þorpshöfðingja, sveitarstjórnir og nefndir við að ná settum markmiðum í stjórnsýslunni. mikil áhersla hefur verið lögð á að hafa stjórnsýsluna gagnsæja til þess að byggja upp traust borgaranna. kljúfa okkur út úr skömmtunarkerf- inu og það var stórmál að reyna að fá gjaldeyri, til dæmis.“ Óráðin framtíð Nú sér fyrir endann á verkefn- um Auðuns, Sigurjónu og starfsliðs þeirra á Balkanskaga. Verkefni þeirra fyrir SIDA standa út septembermán- uð og eftir það er framtíðin að mestu óráðin. „Við höfum þegar feng- ið beiðni um að færa þessa vinnu upp á næsta stjórnsýslustig, það er að segja að vera milligönguaðili og stýra samskiptum á milli samtaka sveitarfélaga og ráðuneytanna.“ Auðunn segir að enginn botn sé þó kominn í framtíð starfseminnar og þá vitanlega framtíð þeirra hjóna. sú aðferð sem þau hafa beitt í þróun- araðstoð er ný af nálinni og miklar líkur eru á að áhugi verði fyrir því að fara í sams konar starf á öðrum víg- stöðvum. „Við þurfum að selja þessa hugmynd einhverjum sem eru til- búnir að fjármagna þetta starf. Það þarf ekkert endilega að vera Sænska þróunarsamvinnustofnunin, það gæti orðið hvaða stofnun eða sam- tök sem er,“ segir Auðunn. Sænska þróunarsamvinnustofn- unin er aðili að þessu starfi PEP Int- ernational og samkomulag er um að stofnanirnar eigi aðferðafræðina að jöfnum hlut. „Ef ekkert verður úr áframhaldandi samstarfi með SIDA, þá tek ég náttúrulega þetta konsept og sel það áfram. Í öllu ferlinu höf- um við spurt sjálf okkur hvernig við myndum gera sams konar vinnu á öðrum stöðum þar sem aðstæðurn- ar eru öðruvísi. Þannig höfum við óbeint undirbúið okkur undir það að fara með þetta prógramm eitt- hvert annað.“ En skyldi ekki vera kominn tími til þess að hætta flakkinu og koma heim? „Fólk hefur oft spurt okkur að þessu og jafnvel í þeim dúr að við þyrftum að fara að hætta þess- ari vitleysu og gera eitthvað af viti. Ég hef alla tíð kosið að líta á þetta sem vinnu, frekar en eitthvert hjálp- arstarf eða þess háttar. Við eigum heimili á Íslandi sem við notum þeg- ar við erum þar og komum þangað reglulega. Svona er bara lífið.“ sigtryggur@dv.is DV Helgarblað Föstudagur 4. maí 2007 19 „Það er sennilega erfitt fyrir fólk sem aðeins hefur fylgst með stríð- inu í kvöldfréttunum að setja sig inn í þetta and- rúmsloft, en málið er að það var jafnvel erfitt fyrir mig sem samt er alin hér upp og var hér allan tímann.“ Arijana Foric arijana gekk til liðs við teymi auðuns Bjarna Ólafssonar árið 1998. Hún segir að mjög erfitt hafi verið að horfa upp á alla eyðilegginguna sem hlaust af styrjöldinni og erfitt hafi verið að átta sig á því hvar ætti að byrja. auðunn hafi þó óhræddur farið inn á viðkvæmustu svæðin til þess að átta sig á veruleikan- um. Endurbyggt þorpið Þorpið Hamabar- ine í nágrenni sanski most í Bosníu er eitt þeirra fjölmörgu þorpa sem auðunn Bjarni vann að því að endurbyggja. Húsin voru ekki eina vandamálið sem blasti við því að oft á tíðum tilheyrðu íbúarnir minnihlutahópum sem voru síður en svo velkomnir heim til sín. Því þurfti að beita samningum og fortölum til þess að þessir fólksflutningar færu friðsamlega fram. 18°16°14° 20° 22° 22°20°18°16°14° Svartfjal laland R ú m e n í a A l b a n í a A u s t u r í k i G r i k k l a n d B ú l g a r í a S l ó v e n í a K r ó a t í a U n g v e r j a l a n d B o s n í a o g H e r z e g ó v í n a S e r b í a Makedónía K O S O V O Fyrrum Júgóslavía starfsemi PEP International, stofnunar auðuns Bjarna, hefur náð vítt og breitt um Balkanskaga. Fyrstu árin fóru í að endurbyggja húsnæði fyrir fólk sem lent hafði á vergangi vegna stríðsátaka. síðustu ár hefur starfið aðallega verið í makedóníu og albaníu, þar sem stofnunin hefur beint sjónum að lýðræðislegri framkvæmd. Uppskerum minni spillingu Starfsmaður SIDA í Makedóníu lýsir starfsaðferðum í þróunaraðstoð: Vasko Hadzievski, starfsmaður Sænsku þróun- arsamvinnustofnunarinnar, SIDA, í sendiráðinu í Skopje, sagði frá starfsemi stofnunarinnar í Make- dóníu. Hann segir markmiðið með starfsemi stofn- unarinnar í löndunum á Balkanskaga að undirbúa bæði fólkið og stjórnsýsluna undir aðild að Evrópu- sambandinu. Vasko segir verkefnin á Balkanskaga hafa ver- ið mikla áskorun fyrir Sænsku þróunarsamvinnu- stofnunina. Árangurinn liggi meðal annars í því að spilling í stjórnkerfinu hafi minnkað til muna auk þess sem almenningur sé nú mun meðvitaðri um hlutverk sitt í samfélaginu. „Sveitarstjórnirnar gera sér núna grein fyrir því að fólkið í sveitinni er kjós- endurnir og annað hvort verða þær að ná árangri í samvinnu við sitt fólk, ellegar verður þeim skipt út í næstu kosningum,“ segir Vasko. Hann segir Makedóníumenn hafa þurft að læra að vera sjálfstæð þjóð. Engar skipanir komi nú frá Belgrad eins og títt var á tímum kommúnismans. Eitt af markmiðunum með þróunarstarfinu á Balk- anskaga er að losa löndin úr greipum miðstýringar. Vasko segir SIDA notast fyrst og fremst við aðr- ar sjálfstæðar stofnanir og verktaka til þess að sinna þessum verkefnum. Þannig sé hlutverk stofnun- arinnar fyrst og fremst að móta stefnuna í þróun- arstarfi og sinna eftirliti með framkvæmdinni. Í Svíþjóð sé þegar nokkurt úrval af stofnunum og samtökum sem hafi reynslu af því að sinna þróun- araðstoð. Vasko lýsti ánægju sinni með það frumkvöðla- starf sem íslenska stofnunin PEP International hefur unnið. „Ég hef orðið var við það alveg frá grasrótinni hversu árangursríkar þessar aðferðir Auðuns hafa verið. Þetta hefur reynst okkur ómetanleg hjálp við að losna undan miðstýringunni. Ekki má þó gleyma því að það hefur tekið talsverðan tíma fyrir þessar breytingar að skila sér í sýnilegum árangri. Þessi ár- angur liggur fyrst og fremst í hugarfarsbreytingum hjá fólkinu, sem síðan skila sér í betri stjórnsýslu og minni spillingu,“ segir hann. sigtryggur@dv.is Föstudagur 11. maí 200716 Helgarblað DV Lönd fyrrum Jógóslavíu á Balkanskaga hafa geng-ið í gegnum byltingar-kenndar breytingar, frá miðstýringu kommúnismans í átt til frelsis og borgaralegra réttinda. Vasko Hadzievski, starfsmaður Sænsku þróunarsamvinnustofnun- arinnar, segir þessar breytingar ekki hafa komið sársaukalaust. Eftir styrjöld sem geisaði á Balk- anskaga um árabil og lauk með um- deildum loftárásum NATO á Kos- ovo-hérað í mars árið 1999 kom í ljós samfélag fólks sem ekki var vant að takast á við þá ábyrgð sem fylgir frelsinu. Vasko er frá Makedóníu, býr í höfuðborginni Skopje og vinnur í sænska sendiráðinu þar. Hann seg- ir að Sænska þróunarsamvinnu- stofnunin, SIDA, ásamt verktökum hennar hafi flýtt fyrir umbótum á Balkanskaga. Markmiðið er aðild að Evrópusambandinu. Lærum á frelsið „Við höfum þurft að læra að vera sjálfstæð þjóð. Í dag er ekki neinn yf- irboðari í Belgrad sem sendir pen- inga og gefur skipanir. Bæði ríkis- stjórn og sveitarstjórnir hafa þurft að læra að fara með vald í eigin málum og taka ábyrgð í samræmi við það. Ég er að tala um ábyrgðina sem fylg- ir frelsinu og hún byrjar hjá einstakl- ingnum,“ segir Vasko. Hann segir að í valdatíð Títós hafi almenningur aldrei haft góða til- finningu fyrir lýðræði, enda hafi það ekki verið til staðar. „Nú verður hver og einn að taka ábyrgð. Í þessu felst mikil áskorun og við verðum líka að átta okkur á því að þetta er ferli sem tekur tíma,“ segir Vasko. Hann seg- ir að með markvissri vinnu af hálfu stofnana á vegum SIDA hafi ver- ið hægt að flýta fyrir breytingum til hins betra. Sjálfstæðar stofnanir Sænska þróunarsamvinnustofn- unin hefur í gegnum tíðina notast við sjálfstæðar stofnanir til að vinna að þróunarstarfi fyrir sína hönd. Þannig sér SIDA um að marka stefnuna og fjármagna verkefnin, ásamt því að sinna eftirliti með framkvæmdinni. SIDA hefur verið stærsti aðilinn í þró- unarstarfi á Balkanskaga, en bæði Hollendingar og Bandaríkjamenn hafa líka unnið mikið starf á svæð- inu. Meðal þeirra sjálfstæðu stofnana sem starfa fyrir SIDA á Balkanskaga eru samtökin Kvinna till kvinna. Tak- mark þeirra er að stuðla að jafnrétti kynjanna á svæðinu ásamt því að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum. Olof Palme-stofnunin hefur einnig lagt hönd á plóginn, en vinnur nú fyrst og fremst að lýðræðismálum í Írak. Sænska Helsinkinefndin hef- ur unnið mikið starf í öllum löndum Balkanskaga og víðar. Sænska Hels- inkinefndin vinnur fyrst og fremst að því að efla mannréttindi. Íslenska stofnunin PEP Inter- national hefur starfað náið með SIDA að verkefnum á Balkanskaga frá því í ársbyrjun 2001. Auðunn Bjarni Ólafs- son leiðir PEP International. Minni spilling Vinna Auðuns Bjarna og PEP International hefur á síðustu árum beinst að því að styrkja lýðræðis- hugsun og bæta stjórnsýslu í sveit- um og smærri bæjum. Í þessari við- leitni skapaði Auðunn nýja aðferð í þróunarstarfi, þar sem áherslan var færð frá peningastyrkjum í átt til vit- undarvakningar meðal íbúanna og sveitarstjórnanna. Vasko segir árangurinn af þessu starfi augljósan. Hann hafi byrjað að birtast á undanförnum þremur árum. „Ég hef orðið var við það alveg frá grasrótinni hversu árangursríkar þessar aðferðir Auðuns hafa verið. Þetta hefur reynst okkur ómetanleg hjálp við að losna undan miðstýr- ingunni. Ekki má þó gleyma því að það hefur tekið talsverðan tíma fyrir þessar breytingar að skila sér í sýni- legum árangri. Ég er reyndar sann- færður um að þessi tími hafi verið bæði óhjákvæmilegur og nauðsyn- legur. Árangurinn liggur fyrst og fremst í hugarfarsbreytingum hjá fólkinu, sem síðan skila sér í betri stjórnsýslu og minni spillingu,“ seg- ir Vasko. Auðunn Bjarni gerði grein fyrir starfsemi PEP International í ítar- legu viðtali við DV um síðustu helgi. Hlutverk almennings Vasko segir að oft sé almenn- ingi ekki ennþá ljóst hver sé réttur hans og skyldur. „Fólk veit til dæm- is ekki alltaf hvaða stofnanir það getur nálgast til þess að hafa áhrif á tiltekin mál. Það er mín tilfinning að Makedóníu veitti ekki af nokkr- um árum til viðbótar af starfi á borð við það sem PEP International hefur verið að vinna.“ Hann segir að þannig væri hægt að vinna með mun fleiri sveitarfé- lögum. Íbúarnir myndu skilja bet- ur hlutverk stjórnvalda, hvernig þau virka og ekki síst myndi fólk skilja betur hvað er svona mikilvægt við að stjórnsýslan sé gagnsæ og að- gengileg. „Því miður gerir SIDA ekki ráð fyr- ir að fjármagna fleiri svoleiðis verk- efni hér í bili. Auðunn Bjarni og hans stofnun eru að öllum líkindum á för- um héðan í nóvember. Það er reynd- ar ekki hægt að útiloka að önnur ríki eða stofnanir muni fjármagna svipað starf,“ segir Vasko. Hann telur að raunveruleg þörf sé fyrir að halda þessu starfi áfram í Vasko Hadzievski LÆRUM AÐ FARA MEÐ FRELSIÐ Vasko Hadzievski sænska þróunarsamvinnustofnunin, sIda, er stærsti aðilinn í þróunarstarfi á Balkanskaga. Vasko Hadzievski, starfsmaður stofnunarinnar segir frá því hvernig lönd fyrrum Jógóslavíu þurftu að læra að fara með frelsi og lýðræði. Hann segir þá tegund þróunarstarfs sem íslenska stofnunin PEP International hefur mótað hafa haft meiri áhrif til framtíðar á Balkanskaga en flestir gera sér grein fyrir. markmið sIda er að undirbúa löndin undir aðild að Evrópusambandinu. „Starf okkar styrkir lýðræðishugsun. Sveit- arstjórnirnar gera sér núna grein fyrir því að fólkið í sveitinni er kjósendurnir og annað hvort verða þær að ná árangri í samvinnu við sitt fólk, ellegar verð- ur þeim skipt út í næstu kosningum.“ DV Helgarblað Föstudagur 11. maí 2007 17 fimm ár til viðbótar. „Það er þarna sem PEP International hefur náð hvað mestum árangri.“ Evrópuaðild er markmið Endanlegt markmið Sænsku þróunarsamvinnustofnunarinnar með starfi sínu í fyrrum Júgóslavíu er aðild þessara landa að Evrópu- sambandinu. „Kosturinn er að hér þurftum við aldrei að byrja alveg frá grunni. Vissulega var tímabil, bæði í stríðinu og eftir að átökunum lauk, þegar við þurftum að einbeita okkur að því að finna heimili fyrir fólk og bæta innviði samfélagsins. En þegar því lauk var til staðar samfélag sem hægt var að byrja að byggja upp.“ Umhverfismál, sjálfbær nýting á auðlindum, skilvirkari landbún- aður og mannréttindamál eru að þessu leyti aðalmálin í undirbún- ingi fyrir aðild að Evrópusamband- inu. „Í augnablikinu er mikilvægast að byggja upp landbúnaðinn. Um- hverfismálin tvinnast að sjálfsögðu þar saman við.“ Vasko segir að innan þessara málaflokka sé vitanlega bæði að finna baráttu fyrir jafnrétti kynj- anna og baráttu gegn fátækt. „Þetta eru mál sem alltaf þarf að reyna að ráða bót á, líka í samfélögum þar sem lýðræðið stendur styrkari fót- um. Við lítum á það sem lykilatriði að fólkið og stjórnvöldin geti unnið sjálf í sínum málum, án utanaðkom- andi aðstoðar.“ Breytum heilli þjóð Það að breyta hugarfari heillar þjóðar í garð lýðræðis og skilvirkr- ar stjórnsýslu tekur langan tíma og stöðuga vinnu. Auðunn Bjarni Ól- afsson segir sjálfur að löng reynsla sýni að hefðbundin þróunaraðstoð sem byggist á styrkjum og innfluttu vinnuafli hafi tilhneigingu til þess að teygjast út í hið óendanlega. „Á löngum tíma verður fólki svo ljóst að breytt vinnubrögð og hugarfar skila meiri árangri og skilvirkni,“ segir Vasko. „Nú þegar hafa heimamenn ver- ið þjálfaðir í að breiða út þessi við- horf og vinnubrögð. Fólkið sjálft get- ur haldið áfram að styrkja sitt eigið samfélag.“ Samtök sveitarfélaga í Makedóníu hafa verið efld í þeim tilgangi að þau geti tekið þessa hug- myndafræði og þróað hana áfram eftir að þróunarstarfinu lýkur. „Það kemur líka upp ákveðinn samkeppnisandi sem við teljum að sé hollur. Sveitarstjórnir sjá hve vel gengur hjá þeim sem Auðunn hef- ur verið að vinna með. Þau fyllast áhuga á að ná sama árangri. Við telj- um að þessi nálgun komi til með að skila miklum árangri. Þannig nýt- ist þessi vinna sem hér hefur verið unnin, jafnvel löngu eftir að verk- efninu lýkur. Langt inn í framtíðina,“ segir Vasko. Pólitíkin ræður „Það hefur verið mikil áskorun fyrir Sænsku þróunarsamvinnu- stofnunina að starfa í þessum hluta Evrópu. Það er gaman, bæði fyr- ir okkur sem styrktaraðila og þá sem eru úti að vinna með fólkinu, að fylgjast með árangrinum,“ segir Vasko. Hann segir hugmyndina um að vinna að aðild að Evrópusamband- inu vera mikilvægan þátt í uppbygg- ingunni. „Allt eru þetta lönd í Evr- ópu að sjálfsögðu. Þau misstu af hluta ferlisins vegna pólitískra að- stæðna. Nú er tími til þess að vinna þetta upp.“ „Starf okkar styrkir lýðræðishugs- un. Sveitarstjórnirnar gera sér núna grein fyrir því að fólkið í sveitinni er kjósendurnir og annað hvort verða þær að ná árangri í samvinnu við sitt fólk, ellegar verður þeim skipt út í næstu kosningum,“ segir Vasko. Hann segir ákveðna óvissu ríkja varðandi sænskt þróunarstarf. „Nú er ný ríkisstjórn í Svíþjóð og það kemur til með að hafa einhver áhrif. Við vinnum samkvæmt áætlun sem gildir til ársins 2010, en eftir það verða ugglaust einhverjar áherslu- breytingar. Það eru stjórnmála- mennirnir sem ákveða hvernig fénu er varið.“ sigtryggur@dv.is Föstudagur 4. maí 200716 Helgarblað DV Auðunn Bjarni Ólafsson hefur síðan haustið 1993 unnið hjálpar- og þróun-arstörf í löndum fyrrum Júgóslavíu á Balkanskaga. Hann á og rekur í dag stofnun sem heitir PEP International og stendur fyrir People Empowerment Project. Auðunn hefur, ásamt eiginkonu sinni Sigurjónu Högnadóttur og starfsfólki þeirra, staðið fyrir endur- byggingu á nærri sex þúsund hús- um, skólum og heimilum, í Króa- tíu, Bosníu, Albaníu, Makedóníu og Kosovo. Á átakatímum á Balkanskaga vann Auðunn einnig að því að koma fræjum og útsæði til fólks sem hafði einangrast, til þess að aðstoða við fæðuöflun. Á síðustu árum hefur stofnun hans einbeitt sér sérstak- lega að aðstoð við að styrkja stjórn- sýslu í smærri sveitum og bæjarfé- lögum. Árangurinn af þessu starfi er meðal annars sá að fólkið á þessum stöðum sýnir meiri áhuga á þátt- töku í lýðræðislegum ákvörðunum og samstarfi, nokkuð sem ekki var rík hef fyrir í ríkjum sem höfðu ver- ið undir kommúnísku skipulagi um langt árabil. Starfsemi PEP International hef- ur frá því árið 2001 verið fjármögn- uð af Sænsku þróunarsamvinnu- stofnuninni, SIDA. Auðunn Bjarni og stofnun hans hafa þegar velt yfir tíu milljörðum íslenskra króna í þessu þróunarstarfi. Árið 2004 voru um fjörutíu starfsmenn hjá PEP Int- ernational, í þremur löndum. Í dag vinna 26 manns hjá Auðuni, flestir í Makedóníu. Í viðtali við DV lýsir Auðunn reynslu sinni af því að flytja með fjölskyldu sína úr öryggi heima- haganna, inn á stríðshrjáð svæði og vinna að því að bæta lífsskilyrði fórnarlamba tilgangslausra stríðs- átaka sem enn hefur ekki fengist botn í hvers vegna urðu svo blóð- ug. Styrkjum lýðræðið Í dag fer megnið af starfsemi PEP International fram í Makedóníu og Albaníu. Hún felst fyrst og fremst í því að aðstoða sveitarstjórnir í hé- röðum Balkanskagans við að takast á við venjuleg verkefni eins og þau að afla fersks neysluvatns og því að sinna venjulegum skyldum sveitar- félaga. Áherslan er á því að sveitarfélög- in sinni þessum hlutum á eigin for- sendum og að eigin frumkvæði. Með þessu móti hefur reynst unnt að draga stórlega úr beinum fjárfram- lögum til sveitarfélaganna. Mark- miðið er að umbætur verði til fram- tíðar og fólkið í landinu verði sjálft fært um að leysa úr þeim vanda sem steðjar að á hverjum tíma. Í þessu starfi hefur Auðunn þróað nýjar vinnuaðferðir og stofnun hans hef- ur unnið frumkvöðlastarf á vett- vangi þróunaraðstoðar. Nú sér fyrir endann á starfi Auð- uns og stofnunar hans fyrir Sænsku þróunarsamvinnustofnunina. Nú þegar hafa borist fyrirspurnir frá öðrum löndum á svæðinu um sams konar aðstoð. „Við þurfum að selja þessa hugmynd einhverjum sem eru tilbúnir að fjármagna þetta starf. Það þarf ekkert endilega að vera SIDA, það gætu orðið hvaða sam- tök eða stofnun sem er,“ segir Auð- unn. Framtíðin er því að mörgu leyti óskrifað blað fyrir Auðun og eigin- konu hans, Sigurjónu Högnadóttur, sem nú búa í borginni Bitola í Make- dóníu. Kynding í kuldanum „Ég kom fyrst hingað út í byrj- un október 1993. Þá fór ég í þriggja mánaða verkefni, að framleiða og dreifa ofnum sem voru ætlað- ir til þess að fólk gæti kynt heim- ilin og eldað mat. Þetta var í gegn um Hjálparstarf kirkjunnar, en var á vegum Lútherska heimssambands- ins,“ segir Auðunn. Þetta verkefni var fjármagnað af UNHCR, Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóð- anna. Auðunn hafði þá verið sveitar- stjóri, fyrst á Súðavík árið 1980 og seinna á Hellissandi í nokkur ár. Það var ævintýraþrá sem hafði dregið athygli hans að Hjálparstarfi kirkj- unnar. Upphaflega sótti hann um að komast til Súdan, en aldrei varð neitt úr því. „Við fluttum út til Zagreb í Króa- tíu. Þar fóru yngri börnin okkar tvö, sem þá voru á táningsaldri, í banda- rískan skóla og undu hag sínum vel.“ Bæði Auðunn og Sigurjóna segja tímann í Zagreb hafa verið jákvæða upplifun. „Borgin var talsvert ólík því sem hún er í dag. Það voru fáir á ferðinni og nánast engir bílar á göt- unum,“ segir Auðunn. Í dag er fátt í Zagreb sem minnir á styrjöld. Borg- in er lífleg borg með litríku mannlífi og ferðaþjónusta sækir í sig veðrið. Tengslin byggð „Þegar við vorum að framleiða VITUNDARVAKNING ER VERÐMÆTARI EN PENINGAR Auðunn Bjarni Ólafsson Sigurjóna Högnadóttir DV Helgarblað Föstudagur 4. maí 2007 17 og dreifa þessum ofnum, þá fór ég inn á nánast hvern einasta bæ sem einhverju nafni nefnist í Bosníu. Þetta var árið 1993. Stundum fylgdi ég bílalestunum sem fluttu ofnana fyrir okkur, en oftast nær var ég bara einn að þvælast.“ Á þessum tíma byggði Auðunn upp mikið tengsla- net á svæðinu og öðlaðist mikla þekkingu á því sem brýnast var að bæta úr. Verkefnið gekk vel og þegar upp var staðið hafði Auðunn dreift ofn- um inn á fimmtíu þúsund heim- ili á Balkanskaga. „Á þessum tíma var ég verkefnisstjóri fyrir þetta til- tekna verkefni hjá Lútherska heims- sambandinu. Í kjölfarið vildu þeir hækka mig í tign og ég var gerður að verkefnastjóra fyrir allt svæðið,“ segir Auðunn. Hann segir að enda þótt þörfin fyrir kyndingu á heimilunum hafi verið brýn hafi ofnarnir ekki verið vinsæl vara á þessum tíma. Þeir hafi tekið mikið pláss í flutningum, pláss sem fólk hafi jafnvel frekar viljað sjá notað undir matvæli. Matvæli fyrir hrjáða Næsta verkefni sem rak á fjörur Auðuns var að dreifa útsæði fyrir korn, hveiti, kartöflur, lauk og fleira inn á svokallað Bihac-svæði í Bosn- íu. Víglína lá í gegn um héraðið og íbúarnir áttu erfitt með aðföng. Það var því brugðið á það ráð að flytja útsæði á svæðið til þess að íbúarn- ir gætu frekar bjargað sér með eigin framleiðslu. „Þetta var vorin 1994 og 1995. Við fluttum nánast allt sem þurfti inn á þetta svæði nema náttúrulega áburð, en hann var bannvara vegna þess að hann má nota til þess að framleiða sprengiefni,“ segir Auð- unn. Auðunn stóð jafnframt að því að byggja upp fiskeldi til þess að fram- leiða matvæli fyrir sjúkrahúsin í Bosníu. „Við vorum með fiskeldis- stöð í bæ sem heitir Kojnic í Bosníu. Við sáum um að útvega þeim seiði og fóður í framleiðsluna.“ Hús fyrir heimilislausa Á þessum tíma voru spjótin far- in að beinast að því að byggja upp húsnæði. Mikið af fólki, þjóðarbrot- um og minnihlutahópum á hverjum stað, hafði hrakist frá heimilum sín- um, sem ýmist höfðu verið sprengd eða brennd til grunna. „Þetta starf okkar byrjaði í fjalla- héruðum í grennd við Dubrovnik í Króatíu. Megnið af þeim húsum var friðuð hús og sögulega merkileg. Það hafði í för með sér að við þurft- um, lögum samkvæmt, að endur- byggja þessi hús eins og þau voru upprunalega smíðuð,“ segir Auð- unn. Verkefnið í endurbyggingu húsa vatt upp á sig enda var þörfin mik- il. „Þegar lokaátökin stóðu yfir, áður en skrifað var undir Dayton-friðar- samkomulagið, seinnihluta ársins 1995, þá hröktust þaðan tvö til þrjú hundruð þúsund Serbar sem fóru á vergang. Þetta fólk var að flýja und- an átökunum og var á leið norður til Serbíu. Það gerðist þarna að þetta fólk kom inn á svæði sem var þétt- setið af Króötum. Króatarnir hrökt- ust þá frá heimilum sínum og úr urðu mestu hörmungar.“ Það beið þeirra Auðuns, Sig- urjónu og strafsfólks þeirra því að vinna hörðum höndum við að finna byggingarefni og leiðir til að koma því inn á svæðið til þess að hægt væri að gera híbýli fólksins vatns- og vindheld. Einnig var unnið við að tryggja aðgang að vatni og raf- magni. „Á sama tíma var verið að reyna að finna lausnir til þess að finna framtíðarhúsnæði fyrir allt þetta fólk. Þetta var á seinni hluta ársins 1995 og fram á árið 1996.“ Ætlaði að hætta „Þegar þarna var komið sögu hafði ég tekið ákvörðun um að hætta. Þetta hafði ég ákveðið að hluta til vegna þess að mér þótti ég ekki fá nógu mikið sjálfstæði til þess að gera það sem ég taldi að þyrfti að gera. Ég hafði orðið vitni að ýmsu og tekið eftir hlutum sem ég taldi að væri brýnt að bæta úr.“ Auðunn og fjölskylda hans héldu því heim til Ís- lands og voru þar í níu mánuði. „Þegar ég var heima fórst þáver- andi yfirmaður Lútherska heims- sambandsins í Bosníu í bílslysi. Hann hafði verið byrjaður á því að huga að verkefnum með SIDA. Þessar hugmyndir snérust um að fara í stórt uppbyggingarverkefni í Bosníu. Það voru ekki margir inn- an Lútherska heimssambandsins sem þekktu þetta svæði og það varð úr að ég var fenginn til þess að fara með Svíunum og skoða þetta. Sví- arnir gerðu það á endanum að skil- yrði fyrir þessari aðstoð að ég myndi stýra henni,“ segir Auðunn. Þetta verkefni snérist um að endurbyggja þorp í sveitum Króatíu og Bosníu og aðstoða minnihluta- hópa við að flytja aftur heim til sín. Þetta reyndist oft á tíðum erfitt starf og mætti mikilli andstöðu sveitar- stjórna á þessum svæðum. „Þetta voru minnihlutahópar sem sumir voru hreinlega ekki velkomnir aft- ur heim til sín. Serbarnir vildu alls ekki sjá múslimana koma til baka, og öfugt. Sveitarstjórnirnar unnu stíft gegn því að þessir flutningar ættu sér stað. Þannig að vinna fólst bæði í því að endurbyggja húsin og líka í því að auðvelda fólkinu flutningana með viðræðum við sveitarstjórnirn- ar. Í þessu vorum við að vinna árin 1997, 1998 og fram á árið 1999, þeg- ar Kosovo-deilan kraumaði að nýju og allt sauð up úr með öllum þeim hörmulegu afleiðingum sem komu í kjölfarið.“ Fyrstur til Kosovo Auðunn segist hafa verið með þeim fyrstu sem komu inn í Kos- ovo, um mitt ár 1999. „Þarna vorum við brautryðjendur í því að byggja hús og endurbyggðum heilu þorp- in. Við vorum farin að byggja hús í Kosovo löngu áður en aðrir aðilar voru farnir að flytja inn efni til bygg- ingar. Þetta var fyrst og fremst vegna þeirrar þekkingar sem við höfðum orðið af svæðinu og þeim tengslum sem við höfðum byggt upp við birgj- ana. Þess vegna gekk okkur betur en öðrum að koma byggingarefni inn á svæðið,“ segir Auðunn. Um þetta leyti tók Auðunn að stýra sambærlegu uppbygging- arverkefni í Bosníu. Hann varði því helmingnum af tíma sínum í Kosovo og hinum helmingnum í Bosníu. „Þarna var ég titlaður sem sérstakur tæknilegur ráðgjafi í upp- byggingunni og starfaði á vegum ACTA, sem eru eins konar regnhlíf- arsamtök kirkna í hjálparstarfi.“ Þessi vinna stóð fram á vorið 2000, þegar válegir atburðir breyttu stefnunni í lífi Auðuns og fjölskyldu hans um tíma. Hryggbrotnaði í bílslysi „Ég hryggbrotnaði í alvarlegu bílslysi í Bosníu, vorið 2000. Það er í raun ótrúlegt hversu vel ég hef náð mér og ég er heppinn að hafa ekki lamast. Það brotnuðu tveir hryggjarliðir.“ Auðunn var á leið til Íslands í páskafrí þegar slysið varð og Sigurjóna kona hans var þegar á heimleið. Sigurjóna frétti af slysinu skömmu eftir að hún lenti í Keflavík og gerði strax ráðstafanir til þess að halda út aftur. Sigurjóna segir þessa reynslu sennilega með því skelfilegasta sem hún hafi upplifað. „Það var leigð sjúkraþota sem flaug með okkur frá Bosníu til Genf og Auðuni var rúll- að inn á spítalann. Mér var sagt að ég yrði látin vita af því hver staðan á honum væri og myndi svo vera send á hótel. Nóttin leið á sjúkra- húsinu og ég heyrði ekkert af hon- um tímunum saman og bjargaði mér á endanum, hálförmagna inn á hótel,“ segir Sigurjóna. Í Genf var Auðunn undirbúinn fyrir flutning til Íslands og nokkr- um dögum seinna var hann kom- inn í heimahagana. „Eftir þetta var ég heima í endurhæfingu og þvíum- líku í níu mánuði. Þetta ástand ent- ist mér út árið 2000. Þá gafst tími SIDA sænska þróunarsamvinnustofnunin, sIda, hefur fjármagnað þau verkefni sem PEP International hefur unnið að. sIda ákveður í grófum dráttum til hvaða hluta fjármagninu er varið og gegnir síðan eftirlitshlutverki með framkvæmdinni. sjálfstæðar stofnanir og verktakar sjá um sjálfa framkvæmdina. Framhald á næstu opnu Auðunn Bjarni Ólafsson stofnun auðuns, PEP Inter- national, hefur unnið þróunar- starf og að uppbyggingu í fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu síðan árið 2001. Áður starfaði auðunn á svæðinu fyrir Hjálparstarf kirkjunnar og Lútherska heimssambandið. Frá því árið 1993 hefur auðunn komið að endurbyggingu 6.000 húsa ásamt því að vinna að því að styrkja stjórnsýslu og lýðræðisframkvæmd í þorpum og sveitum á Balkanskaga. Auðunn og Sigurjóna „Við höfum alltaf leitast við að vera ekki of lengi í sundur í einu. Hættan er að ef maður leyfir því að viðgangast þá búi makinn sér til lífsmynstur sem hinn aðilinn passar ekki endilega lengur inn í. Við höfum unnið saman og búið saman í fjöldamörg ár og það hefur gert okkur náin.“ DV, 4. maí 2007 í viðtali við dV í síðasta helgarblaði lýsti auðunn Bjarni Ólafsson starfi stofnunar sinnar, PEP International. um það leyti sem styrjöldinni í fyrrum Júgóslavíu lauk vann auðunn að uppbyggingu á húsakosti á Balkanskaga. Þegar sá fyrir endann á því starfi fór auðunn að velta því fyrir sér hvort hægt væri að vinna að umbótum sem skildu eitthvað annað og meira eftir sig en hús og vegi. Þar með fæddist hugmyndin um að bæta stjórnsýsluna og fá sveitasamfélögin til þess að bera sjálf ábyrgð á eigin þróun og velferð. VERÐA HÁÐ ÞRÓUNARAÐSTOÐ Lacar Kotevski „Þegar fólkið venst á nær- veru hjálparstofnana sem gefa fé og byggja hús, þá verður það háð þessari innspýtingu. Svo þegar stofnanirnar hverfa á braut upplifa samfélögin nokkurs konar timbur- menn.“ Þetta segir Lacar Kotevski, bæjarstjóri í Novaci í Makedóníu. Novaci er höfuðstaðurinn í Novaci-sýslu í Makedóníu. Ís- lenska stofnunin PEP Internation- al hefur unnið að þróunarstarfi í þorpum og bæjum Novaci frá því árið 2005. Peningar rata í þéttbýli „Mest af því fjármagni sem hef- ur komið til landsins með erlend- um stofnunum og frá erlendum ríkisstjórnum hefur ratað til þétt- ari byggða. Ef á að byggja brú, þá er hún að sjálfsögðu frekar byggð handa 50 þúsund manns en fyrir fimm þúsund,“ segir Kotevski. Hann segir að þrátt fyrir þessa tilhneigingu erlendra ríkja og stofnana til þess að vinna ein- göngu í þéttbýli hafi íslenska stofnunin PEP International náð að sinna dreifbýlinu með undra- verðum hætti. „Þessi stofnun er kannski sú eina sem hefur sinnt fámennari byggðarlögum og náð miklum árangri. Það er venjulega séð til þess að peningunum sem koma frá þessari stofnun er vel varið, enda eiga íbúarnir sjálfir venjulega þátt í að ákveða hvernig þeim er varið,“ segir hann. Möguleikar í fátækt Kotevski segir að við fyrstu sýn haldi fólk gjarnan að Novaci sé ríkt hérað. Héraðið þekur 760 ferkíló- metra lands þótt þar búi aðeins um 4.000 manns. Þar er að finna drýgstu kolanámur í Makedóníu og fyrir vikið er þar kolaraforku- ver sem framleiðir rafmagn fyrir 85 prósent Makedóníu ásamt því að selja raforku til nágrannanna í Grikklandi. Í Novaci er einnig að finna talsvert af verðmætum stein- efnum í jörðu. „Við erum þó fjarri því að vera rík. Það hefur náttúrulega háð okkur í gegnum tíðina að ríkið hef- ur tekið til sín allan hagnað. Nú er þessari miðstýringu að ljúka og ríkið gerir minni og minni kröfur, en um leið þurfum við frekar að bjarga okkur sjálf,“ segir Kotevski. Ísland er fyrirmynd Bæjarstjórinn segir það vera áríðandi fyrir héraðið að laða að sér erlenda fjárfesta. Novaci hafi ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að rannsaka og nýta mörg þeirra steinefna sem þar sé að finna. „Hér hafa þegar verið Íslendingar á ferð sem vilja bora eftir steinefnum til lyfjaframleiðslu. Það var fólk frá fyrirtækinu Milestone sem kom hingað í félagi við hérlent fyrirtæki sem heitir Segin,“ segir hann. Kotevski segir nauðsynlegt að hlúa að tækifærum sem þessum. Þannig sé mögulegt að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf í fátæku hér- aði sem byggir afkomu sína fyrst og fremst á landbúnaði. „Við höfum oft litið til Íslands sem fyrirmyndar. Það er land sem á örskömmum tíma þróaðist frá því að vera óþekkt smáríki yfir í að vera gildandi land með sterk- an efnahag og öflug fyrirtæki. Þeir þingmenn sem ég hef rætt við hér í Makedóníu eru allir á einu máli um að Ísland sé skólabókardæmi um land sem eigi að vera fyrir- mynd okkar,“ segir Kotevski. sigtryggur@dv.is Bæjarstjórinn Lacar Kotevski er bæjarstjóri í Novaci. Það er fátækt en stórt hérað í makedóníu sem byggir afkomu sína á landbúnaði. Kolaorkuverið Landið er ríkt af verðmætum efnum. í Novaci er stærsta kolaorkuver í makedóníu. Verið framleiðir rafmagn fyrir 85 prósent landsins. DV, 11. maí 2007 Vasko Hadzievski lýsti starfsaðferðum og árangri sIda í makedóníu í viðtali við dV. í sama blaði sagði Lacar Kotevski, bæjarstjóri í Novaci í makedóníu, því hvernig bæjarfélögin áttu til að verða háð peninga- aðstoð. Hann segir slíka aðstoð hafa lítið skilið eftir til frambúðar og samfélögin hafa upplifað timburmenn þegar peningaframlögunum sleppti. Blóðbað á þröskuldinum Endurteknar þjóðernishreinsanir hafa átt sér stað á Balkanskaga: Um síðustu helgi rifjaði DV upp átök sem urðu á Balkanskaga árið 1876. Breski blaðamaðurinn Janúar- íus MacGahan fór á staðinn og skýrði frá tilraunum Tyrkja til þess að murka lífið úr Búlgörum. Hryllileg- um lýsingum breska blaðamannsins á atburðunum í sveitum Búlgaríu þykir svipa nokkuð til atburðanna í Júgóslavíu undir lok síðustu aldar. „Holdið hafði þornað í sumarhitanum, áður en það tók að rotna. Þarna voru lítil börn með hendurnar teygðar fram eins og þau kölluðu á hjálp. Stúlkur sem höfðu dáið grátandi, á bæn um vægð. Þarna voru líka mæður sem höfðu verið drepnar á meðan þær reyndu að verja börn sín. Öll líkin lágu þvers og kruss í hræði- legum rotnandi bing,“ sagði í fyrstu frétt MacGahans, sem birtist í Daily News þann 28. júlí 1876. Jafnvel þótt fréttaflutningur í dag sé hraðvirkari og meiri en hann var á seinni hluta nítjándu aldar, þá virðist eins og eitthvað hafi farið framhjá okkur í styrjöldinni í Júgóslavíu. Þegar leið á stríðið komu í ljós fjöldagrafir víðs vegar á svæðinu. Í Kosovohéraði einu og sér fundust nálægt fjörutíu fjöldagrafir. Þess- ar þjóðernishreinsanir fóru fram á öld tæknivæddra samskipta, í löndum sem tilheyra Evrópu. Í sama tölublaði ræddi Auðunn Bjarni Ólafsson, stofnandi PEP International, um verklag við þróun- araðstoð og þróunarsamvinnu. Hann efast um að það sé hagkvæmt fyrir Þróunarsamvinnustofnun Ís- lands að sinna sjálf sínum verkefnum. „Það að rík- isstofnun sjái um stefnumótun, fjárframlög, fram- kvæmd, eftirlit og skýrslugerð, allt á sama tíma, getur aldrei gengið,“ segir Auðunn Bjarni. Hann segir frá því að hann hafi boðið ÞSSÍ krafta sína þegar kom að því að hefja uppbyggingu á Sri Lanka eftir flóðbylgjuna í desember 2004. Stjórnend- ur stofnunarinnar hafi sagt það vera lögboðið hlut- verk ÞSSÍ að sinna sjálf þróunarstarfinu. sigtryggur@dv.is DV, 17. maí 2007 um síðustu helgi var rakin í dV saga blaðamannsins macgahans sem komst á snoðir um voðaverk á Balkanskaga árið 1876. svo virðist sem ýmislegt sé sameiginlegt með átökunum þá og þeim sem áttu sér stað rúmum hundrað árum seinna. í viðtali í sama blaði gagnrýndi auðunn Bjarni Ólafsson starfsaðferðir Þróunarsamvinnustofnunar íslands. Hann telur að breytinga sé þörf.a Fimmtudagur 17. maí 200716 Helgarblað DV Átökin í fyrrverandi Júgó-slavíu fóru af stað eft-ir að sósíalískt samfé-lag liðaðist í sundur. Í kjölfarið fylgdi efnahagsleg hnign- un á svæðinu með þeim afleiðing- um að venjulegur rammi samfélags- ins brast. Venjulegar pólítískar deilur milli sveita og héraða um hvað skyldi taka til bragðs urðu á endanum að blóðugum átökum. Þetta er mat Su- san Woodward sagnfræðings. Í Júgóslavíu voru framin fjölda- morð seint á síðustu öld, sem ekki fréttist af fyrr en fjöldagrafir víðs veg- ar á Balkanskaga uppgötvuðust. Al- þjóðasamfélagið fordæmdi þenn- an hrylling. Atlantshafsbandalagið hóf loftárásir á Júgóslavíu í mars árið 1999 í þeim tilgangi að stöðva átök sem alltaf virtust spretta upp aftur. Þessi átök, sem flestir muna eftir úr fréttum, eru fjarri því fyrstu blóðsút- hellingarnar í Evrópulöndunum á Balkanskaga. Breska dagblaðið Daily News gerði fréttaritarann Janúaríus Mac- Gahan út af örkinni til þess að fá stað- festingu á sögusögnum um þjóðern- ishreinsanir Tyrkja í Búlgaríu. Þetta var í júní árið 1876. Blaðið hafði birt fréttir um voveiflega atburði á svæð- inu, en bæði tyrkneski forsætisráð- herrann og breski utanríkisráðherr- ann brugðust ókvæða við og sökuðu blaðið um óheilindi. Ferðalagið til Búlgaríu tók tæpan mánuð og fyrstu greinar MacGah- ans birtust í Daily News, þann 28. júlí 1876. „Í fjallshlíðunum voru gylltir akrar með ofþroskuðu hveiti. Ekki var mann að sjá og enginn virtist ætla að bjarga uppskerunni sem þegar var byrjuð að rotna vegna of- þroska og hirðuleysis. Loksins kom- um við að lítilli sléttu á milli fjalls- hlíða og þangað riðum við með það fyrir augum að ferðast yfir flatlend- ið. Við kipptum í taumana og hváð- um í skelfingu þegar við áttuðum okkur á að beint fyrir framan okk- ur, nánast undir hófum hestanna, mátti sjá höfuðkúpur og manna- bein á víð og dreif, inni á milli rotn- andi holds, fata og hárs af fólki, allt í einum fúlum haug. Öðrum megin vegarins lágu beinagrindur tveggja barna sem lágu hlið við hlið, að hluta þaktar grjóti, með ógnvekj- andi sprungur á höfðinu. Grasið spratt með ágætum upp úr þessari óreiðu. Þegar við nálguðumst miðju þorpsins urðu beinagrindurnar og líkamsleifarnar sífellt þéttari. Við komum að lítilli kirkju sem var um- kringd lágum steinvegg. Garður- inn var varla nema fimmtíu metrar á breidd og sjötíu metrar á lengd. Í fyrstu var ekkert óvenjulegt að sjá en við nánari athugun kom í ljós að grjótið og ruslið sem þakti garðinn var í raun og veru ógnarstór haug- ur af líkum, þakinn þunnu lagi af grjóti. Seinna var okkur sagt að í þessum litla garði væru þrjú þús- und lík. Þarna voru smávaxin höfuð með krullað hár og litlir barnafætur, varla lengri en fingur mínir. Holdið hafði þornað í sumarhitanum, áður en það tók að rotna. Þarna voru lítil börn með hendurnar teygðar fram eins og þau kölluðu á hjálp. Stúlkur sem höfðu dáið grátandi, á bæn um vægð. Þarna voru líka mæður sem höfðu verið drepnar á meðan þær reyndu að verja börn sín. Öll líkin lágu þvers og kruss í hræðilegum rotnandi bing. Núna voru þau þögul. Hvorki mátti heyra grát né óp. Engin tár runnu. Uppskeran fór forgörðum á meðan bændurnir rotnuðu undir kirkjunni.“ Þessar ógnvænlegu lýsingar MacGahans voru fyrstu fréttirnar sem bárust af þessum fjöldamorð- um. Heimurinn fordæmdi og bresk stjórnvöld neyddust til þess að við- urkenna það sem þau höfðu áður horft í gegnum fingur sér með. Al- þjóðlegur þrýstingur jókst og árið 1877 fóru Rússar í stríð við Tyrki vegna framgöngu þeirra á Balkans- kaga. Fyrir utan að eiga sér stað á svip- uðum slóðum, þá eru líkindin með þessum tveimur sögum nokkur. „Sennilega er engin tilviljun ef fólk finnur skyldleika með því sem Mac- Gahan fann í Búlgaríu og atburð- um síðustu ára í Júgóslavíu,“ skrifaði David Randall, fréttastjóri á breska dagblaðinu Observer, í bókinni The Universal Journalist. sigtryggur@dv.is Blóðbaðið endurtekið VILJUM AÐ FÓLKIÐ LÆRI AF REYNSLUNNI Lisolaj, Lisolaj þorp í Makedóníu kom illa undan upplausn og stríði í Júgóslavíu. Það voru ekki sjálf átökin sem voru erfið fyrir íbúana, heldur var það upplausnin í land- inu og þeir erfiðleikar sem fylgdu því að aðlagast opnu markaðskerfi sem reyndust erfið. Afkoman bygg- ist á tóbaks- og hveitirækt ásamt því sem vínviður er ræktaður á svæð- inu. Frá því í mars í fyrra hefur ís- lenska stofnunin PEP Internation- al, í samvinnu við þorpsráðið, unn- ið að þróunarstarfi í þorpinu. Þar hefur nú verið byggt samkomuhús fyrir þorpsráðið, eins konar ráðhús, ásamt því sem vatnsveita var gerð fyrir allt þorpið. Vane Stojanovski þorpshöfðingi segir litla byltingu hafa farið fram. Gangsæ stjórnsýsla Eitt það fyrsta sem íslenska stofnunin hefur gert á smærri stöð- um eins og Lisolaj er að setja upp svokallaða gagnsæistöflu á áber- andi stað í þorpinu. Þar birtir þorps- ráðið allar ákvarðanir og fundar- gerðir. Taflan þjónar sama tilgangi og opinberar vefsíður gera hér á landi. Auðunn Bjarni Ólafsson hjá PEP International segir það vera reynslu sína að áhugi almennings á störfum sveitarstjórna aukist jafnt og þétt eftir því sem upplýsingarnar um störf þeirra eru aðgengilegri. „Fólkið kemur einatt hingað og athugar hvað við erum að gera,“ segir Vane Stojanovski, þorpshöfð- ingi í Lisolaj. Vatnsveita og ráðhús Aðstoðin við íbúana í Lisolaj og á sambærilegum stöðum miðað- ist fyrst og fremst við að þorpsbúar og stjórnin gætu sjálf tekist á við að stýra eigin málum. Íbúarnir ákváðu sjálfir hvaða hluti væri mest aðkall- andi að laga og með aðstoð íslensku stofnunarinnar var ákveðið að byrja á vatnsveitu fyrir þorpið og fundar- aðstöðu fyrir þorpsráðið. „Við urð- um að byrja einhvers staðar og því var ákveðið að byrja á vatninu. Hér hefur vatnið verið að einhverju leyti mengað í mörg ár,“ segir Stojanov- ski. Heildarkostnaðurinn við vatns- veituna í Lisolaj var 1.850 evrur. Þorpsbúar lögðu til 212 evrur með vinnuframlagi og 481 evru í pening- um. PEP-stofnunin lagði til það sem upp á vantaði. Lærum af reynslunni „Við höfum lagt mikla áherslu á að fólk læri af reynslunni. Það tek- ur í einhverjum tilvikum lengri tíma en að mæta með peninga og tæki og framkvæma verkið fyrir þorpsbú- Við töfluna Hluti af framþróun í sveitum og þorpum liggur í því að gera stjórnsýsluna gagnsæa. Hér stendur Vane Stojanovski, þorpshöfðingi í Lisolaj, við svokallaða gagnsæistöflu. Þar birtir þorpsráðið fundargerðir, áætlanir og tilkynningar. Þetta hefur reynst mikilvægt skref í átt til þess að vekja áhuga íbúanna á þátttöku í mikilvægum ákvörðunum. „Ráðhúsið hefur hjálpað okkur mikið og á eftir að létta okkur verkin í stjórnsýslunni. Hér áður fyrr notuðum við kennslustofu barnanna fyrir fundi hjá þorpsráðinu. Það truflaði börnin og fólk var að reykja í kringum þau og þess háttar. Næsta verkefni er að öngla saman fyrir skjalaskáp.“ Svartfjallaland 1916 Fjöldamorð og þjóðernishreinsanir á Balkanskaga eru ekki nýjar af nálinni. Fyrir 131 ári síðan réðust tyrkir inn í Búlgaríu og drápu þúsundir áður en alþjóðasam- félagið komst á snoðir um morðin. Á endanum fóru rússar í stríð við tyrki til þess að freista þess að stöðva framgöngu þeirra. Á myndinni má sjá austurríska hermenn mjaka sér áleiðis í gegnum hlíðarnar í Svartfjallalandi, árið 1916. Fjöldagröf í Bosníu margar fjöldagrafir fundust í Júgóslavíu. mikið starf hefur verið unnið við að greina nöfn þeirra sem voru grafnir. Hér er gröf 200 múslima sem flestir hafa verið nafngreindir og allir fengið legstein. „Í fyrstu var ekkert óvenjulegt að sjá en við nánari athugun kom í ljós að grjótið og ruslið sem þakti garðinn var í raun og veru ógnarstór haugur af líkum, þakinn þunnu lagi af grjóti. Seinna var okkur sagt að í þess- um litla garði væru þrjú þúsund lík.“ DV Helgarblað Fimmtudagur 17. maí 2007 17 l i i VILJU AÐ FÓLKIÐ L RI AF REY SLU I ana, en munurinn er að þessi aðferð skilur eftir sig þekkingu á staðnum,“ segir Auðunn Bjarni. „Ráðhúsið hefur hjálpað okkur mikið og á eftir að létta okkur verkin í stjórnsýslunni. Hér áður fyrr not- uðum við kennslustofu barnanna fyrir fundi hjá þorpsráðinu. Það truflaði börnin og fólk var að reykja í kring um þau og þess háttar. Þetta er mikil breyting fyrir okkur. Næsta verkefni er að öngla saman fyrir skjalaskáp,“ segir þorpshöfðinginn. Trúmálin eldfim Marja Tatarin, starfsmaður PEP International, segir að sennilega hafi uppbyggingin í Lisolaj ekki kostað meira en sex þúsund evrur af styrktarfé frá Sænsku þróunarsam- vinnustofnuninni. Hún segir að þó að íbúarnir sjálfir ráði því venjulega á hvaða verkum er byrjað, þá sé það skilyrði að stofnunin komi ekki ná- lægt því að byggja trúarmannvirki, kirkjur eða moskur. „Ein staðfest- ingin á því að starf okkar hérna hafi skilað sér er að fólkið varð sér sjálft út um peninga til þess að leggja í endurbætur á klaustrinu og kirkj- unni. Það getur hins vegar skapað deilur ef við förum að blanda okk- ur í trúmálin og gæti hreinlega verið hættulegt,“ segir Marja. Sænska þróunarsamvinnu- stofnunin hefur líka aldrei styrkt framleiðslu á tóbaki eða áfengi. „Reyndar er uppistaðan í landbún- aðinum hérna bæði ræktun á tóbaki og vínvið,“ segir Marja. sigtryggur@dv.is Í Lisolaj Vane Stojanovski þorpshöfðingi í Lisolaj og goran Stoev starfsmaður PEP international ræða málin og virða fyrir sér húsin í þorpinu. Auðunn Bjarni Ólafsson ÞSSÍ VILDI ENGIN ÚTBOÐ Það er ekki endilega allt sem sýnist þegar kemur að þróunar- starfi. Stofnanir í Bandaríkjunum og mörgum stærri Evrópulöndum hafa orðið mikla reynslu af starfi á átaka- og umbrotasvæðum. Íslenska stofnunin PEP Inter- national spratt upp úr starfi Auð- uns Bjarna Ólafssonar, fyrrver- andi sveitarstjóra á Snæfellsnesi og Vestfjörðum, við Lútherska heimssambandið og Hjálparstarf kirkjunnar. Síðustu sex árin hefur Auðunn unnið náið með Sænsku þróunarsamvinnustofnuninni, SIDA. ÞSSÍ vildi ekki útboð Auðunn Bjarni hefur ekki unn- ið að þróunarsamvinnuverkefn- um á vegum íslenskra stjórnvalda, en hugmyndin hefur komið upp. „Þegar Þróunarsamvinnustofnun Íslands, ÞSSÍ, ákvað að leggja út í uppbyggingarstarf á Sri Lanka í kjölfar flóðbylgjunnar í desem- ber 2005 ákvað ég að hafa sam- band. Þetta gerði ég fyrst og fremst til þess að láta vita af okkur vegna þess að á þeim tíma var sennilega engin önnur stofnun jafnvel í stakk búin til þess að takast á við upp- byggingu þar sem allt er í rúst og okkar,“ segir Auðunn. Hann segist hafa átt fund með yfirmönnum ÞSSÍ. Þar hafi sér verið bent á að ÞSSÍ bæri lagaleg skylda til þess að sinna þessum verkefnum sjálf. „Mér voru sýndir þessir lagabálkar,“ segir Auðunn. Þorpið vildi ekki útboð Auðunn er ekki sammála því að svona þurfi þetta að vera. Máli sínu til stuðnings bendir hann á þá einföldu hagræðingu sem venju- lega hlýst af útboðum. „Sveitar- stjórnirnar í Albaníu og Maked- óníu kvörtuðu oft við okkur að kostnaður við sorphirðu og snjóm- okstur væri að sliga þær. Við hvött- um til þess að þessi verk yrðu boð- in út. Sveitarstjórunum leist ekki vel á það og bentu á að þeir væru bundnir við það samkvæmt lögum að sinna þessum verkum,“ segir Auðunn. Hann segir að þá hafi sveit- arstjórnunum verið bent á að á svæðinu væru ugglaust bændur sem ættu tæki og væru líklegir til þess að geta sinnt snjómokstrin- um. Svona gætu menn hugsanlega sparað við sig og náð meiri hag- kvæmni. „Síðan þarf sveitarstjórn- in aðeins að sinna eftirliti með að verkið sé framkvæmt samkvæmt samningi.“ Ekki slaka á Auðunn telur að réttara væri að reyna að færa starfsemi Þróun- arsamvinnustofnunar Íslands nær því rekstrarformi sem hann hefur kynnst hjá Sænsku þróunarsam- vinnustofnuninni. „Það að ríkis- stofnun sjái um stefnumótun, fjár- framlög, framkvæmd, eftirlit og skýrslugerð, allt á sama tíma, getur aldrei gengið,“ segir Auðunn. Hann telur einnig enga ástæðu til þess að slaka á í framþróun á ís- lenskri stjórnsýslu, jafnvel þó að löndin á Balkanskaga vilji gjarnan hafa Ísland sem fyrirmynd. „Þeg- ar við aðstoðum við stjórnsýsl- una hérna úti og krefjumst þess að stjórnvöld hafi gagnsæi að leiðar- ljósi, meðal annars í mannaráðn- ingum, þá verða þessir hlutir að vera í lagi heima hjá okkur líka.“ Valgerður Sverrisdóttir utanrík- isráðherra lagði fram skýrslu fyrr á árinu þar sem hún mælti fyrir breytingum á fyrirkomulagi Þró- unarsamvinnustofnunar Íslands í svipaða átt og Auðunn hefur talað fyrir. Þessar hugmyndir Valgerðar lögðust þó misjafnlega í stjórnend- ur og starfsfólk stofnunarinnar. sigtryggur@dv.is „Þegar við aðstoð- um við stjórnsýsluna hérna úti og krefj- umst þess að stjórn- völd hafi gagnsæi að leiðarljósi, meðal annars í mannaráðn- ingum, þá verða þess- ir hlutir að vera í lagi heima hjá okkur líka.“ Þróunarstarf í Bosníu auðunn Bjarni Ólafsson, Katica Havrulahovic og david mcEntee fagna tíu ára afmæli uppbyggingarinnar í Sanski most í Bosníu. ÞARF AÐ HAGRÆÐA Í ÞSSÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.