Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Síða 19
DV Umræða föstudagur 25. maí 2007 19 Gustar um stjórnina Ný ríkisstjórn tók við valdataumunum í gær. Vindarnir blésu hressilega við Bessastaði þegar ráðherrar nýju ríkisstjórnarinnar gengu út og spurning hvort nú eigi eftir að gusta um ríkisstjórnina með sama hætti. alla vega vakti athygli að vindurinn blés frá vinstri. Dómstóll götunnar mynDin Hvernig líst þér á fækkun strætóferða í sumar? P lús eð a m ínu s Sigurður Þórðarson ríkisendur- skoðandi fær mínusinn fyrir að bjóða kínverska ríkisendurskoðandanum til Íslands til þess að þeir geti miðlað aðferðum og vinnubrögðum við endurskoðun. Hvað geta Íslendingar lært af einræðinu í Kína? spurningin „í samræmi við stjórnarsáttmálann get ég ekki betur sé en það sé búið að taka inn í hann baráttumál okkar, bæði hvað varðar breytta stjórnun á okkar málefnum og hvað varðar kjaramálin. Nýja ríkisstjórnin ætlar að færa okkar málefni til sveitarfélag- anna og tryggingamálin yfir til félagsmálaráðuneytisins og koma því í framkvæmd að aldraðir vinna eins og þeir geta og vilja eftir 70 ára aldur án þess að nokkuð skerðist af bótum þeirra frá tryggingastofnun. mér finnst þetta góður samningur fyrir málefni eldri borgara og ég vona að hann gangi eftir en við munum auðvitað fylgjast grannt með því,“ segir margrét margeirsdóttir, formað- ur félags eldri borgara í reykjavík. Hvað þýða stjórnar- skiptin fyrir eldri borGara? Ætli það sé eitthvað að marka þessar áhyggjur fram-sóknarmanna og annarra stjórnarandstæð- inga að nú taki við mikil frjáls- hyggjustjórn? Ég er ekki viss en kannski er best að hafa vaðið fyrir neðan sig. Maður veit aldrei hvar maður hefur þessa stjórn- málamenn og kannski allra síst þegar þeir hafa einhver völd. Það er aldrei að vita hvað Geir H. Haarde og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir taka sér fyrir hendur. Framsóknarmenn voru fljótir að sjá að samfylkingarfólki og sjálfstæðismönnum væri ekki treystandi fyrir vel- ferðarmálunum. Kannski sönn- unin hafi komið þegar Guðlaug- ur Þór Þórðar- son var gerður að heilbrigðisráð- herra og fór að tala um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Að vísu talar hann um að fólk eigi ekki að þurfa að borga fyrir þjón- ustuna en maður veit aldrei. Þessir stjórnmálamenn eru ólíkindatól. Að vísu minnir mig að fram-sóknarmennirnir hafi tekið upp á því að láta ríkið bara borga hluta af tannlæknakostnaði barna. Eða var það ekki heilbrigðis- ráðherra þeirra, Ingibjörg Pálma- dóttir, sem setti upp sérstaka gjald- skrá ráðherra sem var sýnu lægri en það gjald sem vel flestir tannlækn- ar rukka fyrir að gera við tennur barnanna okkar? Síðan var ákveð- ið að borga bara 75 prósent af gjald- skrá ráðherra þannig að kannski voru framsóknarmenn ekki barnanna bestir. Svo voru bið- listarnir ekki þeir stystu. Gott ef þeir voru ekki ansi langir. En ætli maður eigi samt ekki að hafa áhyggjur. Síðast þegar ég fór á slysadeild á Land- spítalanum þurfti ég að bíða í fjóra klukkutíma. Kannski þarf ég að bíða lengur næst þeg- ar hún Siv mín verður farin úr ráðuneytinu. Ég veit ekki betur en að hún hafi gert sitt besta þótt hún hafi kannski ekki fengið mikinn tíma til að hrinda stórum málum í fram- kvæmd. Einhvern tíma sagði innan- búðarmaður í ráðuneytinu að nýr ráðherra þyrfti tvö ár til að læra á ráðuneytið. Reyndar held ég að hon- um hafi litist best á að stjórnmála- menn entust þar sem skemmst, þá væri minni hætta en ella á að þeir lærðu á ráðuneytið og þannig ráðið einhverju um það sem fram fer. Þar sem Siv var svo stutt er ég ekki frá því að sennilega hafi hún staðið sig nokkuð vel. Frjálshyggja og Framsókn DagFari Þeir eru logandi hræddir Ég held að tíðni strætóferða skipti ekki öllu máli fyrir fjölda farþega. Hins vegar held ég að þetta skipti miklu máli fyrir þá sem eru þegar að nota strætó. Þetta er þjónustuskerðing fyrir þá. Halla Halldórsdóttir, 50 ára, heimavinnandi fyrir mig verður það allt í lagi, en ég hef hins vegar góðan tíma. Ég get hins vegar ímyndað mér að þetta breyti miklu fyrir þá sem eru að vinna. sigríður alfreðsdóttir, 79 ára, ellilífeyrisþegi mér líst hræðilega á þetta. mér finnst að það eigi að leggja meiri áherslur á almenningssamgöngur. Ég hélt að það væri verið að reyna að fjölga farþegum, en þetta hefur til að mynda þau áhrif að ég mun nota strætó minna. Guðlaug björnsdóttir, 47 ára, háskólanemi Kjallari Á herslur í stefnuyfir- lýsingu Þingvalla- stjórnarinnar eru skynsamlegar. Í grunninn felast þær í því að farsæld alls almennings hvíli á öflugu atvinnulífi. Með því að bæta starfsskilyrði fyrirtækj- anna tryggjum við undirstöður velferðarinnar. Áherslur á mál- efni barna, aldraðra og öryrkja eru kærkomnar og settar fram með skilmerkilegum og afger- andi hætti í yfirlýsingunni. Ekki er nokkur vafi um það í mínum huga að ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar fylgir mik- ill kraftur og bjartsýni sem mun hafa áhrif hvarvetna í þjóðlífinu. Leiðtogar ríkisstjórnarinnar, þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, eru bæði meðal mikilhæfustu stjórnmálamanna samtímans og það er óverðskuld- að og rangt af ritstjóra Morgun- blaðsins að gera því skóna að Ingibjörgu Sólrúnu sé ekki treyst- andi til að starfa af heilindum í ríkisstjórn. Öðru nær. Hér hefur ekki verið tjaldað til aðeins einn- ar nætur. Ef vel tekst til ætti þetta samstarf að geta varað í tvö eða jafnvel þrjú kjörtímabil og skap- að þannig stöðugleika og festu í þjóðfélaginu. Hér hefur vonandi verið mynduð farsæl stjórn til framtíðar. Framsóknarmenn voru átta- villtir fyrst eftir kosningarnar og virtist fyrirmunað að líta í eigin barm varðandi skýringar á óför- um sínum. Þeir bentu á kosn- ingablað DV og grein mína í því blaði sem eina skýringu á hruni flokksins. Bæði núverandi for- maður framsóknarmanna, Guðni Ágústsson, og sá fyrrverandi, Jón Sigurðsson, hafa verið að halda slíku fram. Þetta er einkennilegt og kómískt, jafnvel tragí-kómískt háttalag. Hvernig dettur þeim í hug að halda þessari vitleysu fram? Kosningablað DV var liður í kynningarátaki nýrrar ritstjórn- ar á nýjum efnistökum blaðsins. Í stað þess að láta stjórnmála- mennina eina um að taka út verk sín var það blaðið sjálft sem stóð að uppgjörinu. Þetta var gott blað en það var gagnrýnið. Um það er ástæðulaust að deila. DV er komið til að vera og vonandi heldur blaðið áfram á þessari braut. Skoðar verk stjórnmála- manna með gagnrýnu hugarfari sama hvaða flokkur á í hlut. Það er í þjónustu fólksins og DV ætlar að tala rödd þess eftir bestu getu samkvæmt yfirlýsingum ritstjóra blaðsins. Þó að ég hafi lýst ánægju með nýja ríkisstjórn og stefnuyfirlýs- ingu hennar verður ekki hjá því komist að gagnrýna hve hlutur kvenna er rýr í ráðherraliði Sjálf- stæðisflokksins. Samfylkingin lyftir tveimur afgerandi konum til vegs og virðingar auk formanns- ins, þeim Þórunni Sveinbjarnar- dóttur og Jóhönnu Sigurðardótt- ur. Sjálfstæðismenn hefðu vel getað teflt fram heilsteyptum, vel menntuðum og öflugum konum í ráðherrastóla, til dæmis Arn- björgu Sveinsdóttur, Ástu Möll- er eða Guðfinnu S. Bjarnadótt- ur. Þær hafa ekkert síður erindi í ráðherrastólana en karlarnir sem völdust til þeirra verka. Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir er mjög frambærilegur stjórnmálamaður en það hefði sýnt mikinn styrk og verið til marks um breytta tíma ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið að dæmi Samfylkingarinnar, valið þrjár konur til ráðherrastarfa og til dæmis skipað þær Guðfinnu og Arnbjörgu við hlið Þorgerðar . Vegna þessa get ég því ekki gef- ið ríkisstjórninni nema 9,5 í ein- kunn og dreg þá hálfan frá vegna ráðherravalsins. Hreinn loftsson lögmaður skrifar „Framsóknarmenn voru áttavilltir fyrst eftir kosningarnar og virtist fyrirmunað að líta í eigin barm varðandi skýringar á óförum sínum.“ Farsæl stjórn til framtíðar Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Dugguvogi 12 - 104 Reykjavík - S: 517 7040 - www.hobbyhusid.is Opnunartími: mán-föst 10.00-18.00, laugard 13.00-17.00, sunnud 13.00-16.00 Mikið úRval af hjólhýSuM verð frá 1.690.000 og húsbílar verð frá 4.990.000 Skoðaðu úrvalið hjá okkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.