Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Page 21
Vilt þú ráða þínum
námshraða
sími 464-6300 | www.laugar.is
Framhaldsskólinn á laugum
nemendum við Framhaldsskólann á laugum gefst kostur
á að ljúka stúdentsprófi á tveimur til fjórum árum.
sveigjanlegt námsumhverfi og persónubundin námsáætlun
Í Framhaldsskólanum á Laugum miða kennsluhættir að því að hver nemandi vinni sam-
kvæmt persónubundinni námsáætlun. Þannig gefst kostur á að hraða námi og ljúka
stúdentsprófi á allt frá tveimur árum eða bæta við hefðbundinn námstíma. Þarfir, geta og
vilji hvers og eins ráða för og námshraða.
Námsumhverfið er sveigjanlegra og gerð krafa um sjálfstæði í námi og öguð vinnubrögð.
Veitt er markviss leiðsögn og aðstoð og vinnudagur nemandans er samfelldur. Það býður
upp á að nemendur geti lokið námi til stúdentsprófs fyrr en ella, séu þeir tilbúnir að leggja
á sig þá vinnu sem til þarf.
Þetta kerfi hentar vel metnaðarfullum nemendum sem vilja taka námið hraðar en gengur
og gerist, og einnig þeim sem þurfa að aga vinnubrögð sín og ná betri tökum á náminu.
kynntu þér málið á www.laugar.is
Fréttir úr skólalíFinu
nýtt námsfyrirkomulag
gefur góða raun
Í vetur var farið af stað með nýtt
námsfyrirkomulag þar sem nemendur
hafa meiri stjórn á námi sínu. Var þetta
gert sem tilraunaverkefni á fyrsta ári og
kom það vel út að kerfið verður tekið
upp á öllum námsárum í vetur. Með
nýja fyrirkomulaginu geta nemendur
hraðað námi sínu og þannig stytt
námstímann um allt að tvö ár.
Vel heppnað vorboð á laugum
Fjöldi gesta sótti skólann heim á opnum
dögum sem haldnir voru fyrir
skemmstu. Gestirnir fylgdust með
störfum nemenda og starfsfólks, þáðu
góðar veitingar og skoðuðu sig um á
staðnum. Gestir voru bæði foreldrar og
systkini nemenda og aðrir velunnarar
skólans, sumir komnir um langan veg.
Meðal gesta voru Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra og Halldór
Blöndal, fyrrverandi ráðherra og forseti
Alþingis.
ný stjórn nemendafélagsins
Kosið var í þrjú embætti stjórnar
Nemendafélags Framhaldsskólans á
Laugum í síðustu viku. Gunnar
Sigfússon var kjörinn forseti, Einar
Guðmundsson féhirðir og Kristín Lea
Sigríðardóttir nótaríus. Kosið verður um
tvo meðstjórnendur þegar skólastarf
hefst aftur í haust og skal minnst annar
þeirra koma úr röðum nýnema.
aðstaða á skólasvæðinu námsframboð og brautir
heimavistir
Við skólann eru fjórar heimavistir.
Þær heita Tröllasteinn,
Dvergasteinn, Fjall og Gamli
skóli. Hægt er að velja á milli
eins og tveggja manna herbergja
og einnig er hægt að velja á milli
herbergja með eða án
baðherbergis.
Í herbergjum er tenging við internet en aðgangur að netinu er
nemendum að kostnaðarlausu. Þá er tengi fyrir sjónvarp og
hægt að velja úr fjölda gervihnattarása.
íþróttaaðstaða
Við skólann er frábær aðstaða til
íþróttaiðkunar og líkamsræktar.
Þar er stór íþróttasalur sem
nemendur hafa frjáls afnot af,
nemendur fá auk þess ókeypis
aðgang að þrektækjasal og
nýverið var reist glæsileg 25 metra útisundlaug sem
nemendur geta sótt sér að kostnaðarlausu.
Þá er góð aðstaða til útiíþrótta á Laugavelli sem var
stórbættur vegna Unglingalandsmóts UMFÍ sem fór fram á
Laugum í fyrra. Þá var lagt gerviefni á hlaupa- og
atrennubrautir og er aðstaða til frjálsíþróttaiðkunar ein sú
besta á landinu.
aðstaða til náms
Nemendur hafa aðgang að vel búnu bókasafni sem er í
aðalbyggingu skólans. Þar eru einnig tölvur til verkefnavinnu
og heimildaleitar. Þá er góð aðstaða í herbergjum á heimavist
þar sem hægt er að sökkva sér í lærdóminn.
náttúrufræðibraut
Nám á náttúrufræðibraut er 140 einingar. Námið skiptist í 98
eininga kjarna, kjörsvið sem er 30 einingar og 12 eininga val.
Möguleiki er á mismunandi útfærslum á kjörsviði. Á stúdents-
braut er lögð áhersla á að búa nemendur undir háskólanám og
annað framhaldsnám, bóklegt og verklegt. Lögð er áhersla á
raungreinar og stærðfræði.
Félagsfræðibraut
Nám á félagsfræðibraut er 140 einingar og er skiptingin sú
sama og á náttúrufræðibraut. Möguleiki er á mismunandi
útfærslum á kjörsviði. Á stúdentsbraut er lögð áhersla á að búa
nemendur undir háskólanám og annað framhaldsnám, bóklegt
og verklegt. Lögð er áhersla á félags- og uppeldisgreinar.
stúdentsbraut með starfsnámi í íþróttafræðum
Starfsnám í íþróttafræði og íþróttagreinum er 24-30 einingar
og hefur það markmið að búa nemendur undir þjálfun barna og
unglinga hjá félagasamtökum og skólum, jafnframt því sem
það er heppilegur undirbúningur fyrir háskólanám í íþróttafræð-
um, jafnt hérlendis sem erlendis. Námið er tekið meðfram
félagsfræði- eða náttúrufræðibraut til stúdentsprófs.
almenn braut
Almenn braut er valkostur fyrir þá nemendur sem ekki hafa náð
viðunandi árangri á grunnskólaprófi eða fullnægja ekki inntöku-
skilyrðum á aðrar brautir og vilja bæta árangur sinn. Námið á
brautinni er einstaklingsmiðað og tekur tillit til getu nemenda.
Framhaldsskólinn á laugum
laugar í reykjadal
Á Laugum er mikil náttúrufegurð en
einnig gott aðgengi að þjónustu.
Þá er stutt í helstu þéttbýliskjarna.
Vegalengdir:
Akureyri 60 km
Húsavík 40 km
Framhaldsskólinn á laugum er í senn ungur og gamall
skóli. Skólinn tók fyrst til starfa árið 1925 sem héraðs-
skóli en hefur starfað sem framhaldsskóli síðan 1988.
Við skólann eru að jafnaði um 110 til 120 nemendur.
Fyrir vikið verður mikil samheldni meðal nemenda.
Lögð er áhersla á persónulega þjónustu og umhyggju
gagnvart nemendum, en jafnframt eru gerðar til þeirra
kröfur í námi og samskiptum. Þeir nemendur sem sækja
heimavistarskóla búa að því alla ævi, bæði hvað varðar
vini sem þeir eignast á námsárunum og hæfni til félags-
legra samskipta. Í heimavistarskóla læra menn ekki aðeins
á bókina, dvölin þar er jafnframt góður skóli í mannlegum
samkiptum.
í skólanum er öflugt og fjölbreytt félagslíf.
Umsóknarfrestur um skólavist og heimavist er til
11. júní 2007. Frekari upplýsingar um námsframboð
má sjá á vefsíðu skólans, www.laugar.is