Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Síða 26
Föstudagur 25. maí 200726 Helgarblað DV
á háskólastigi og hlutfallsleg fjölgun
á því stigi er mun meiri hér en ann-
ars staðar í Evrópu. Við þurfum að
gæta þess vel að hröð þróun og fjölg-
unin leiði ekki af sér rýrari gæði. Eitt
af stærri verkefnum míns ráðuneyt-
is fram undan er að sinna gæðaeft-
irliti á öllum skólastigum. Við eigum
að gera ríkari kröfur til gæða og innri
starfsemi skólanna, það fer ekki alltaf
saman aukið fjárstreymi og gæði. Ég
á von á því að fjölbreyttari rekstrar-
form komi til í skólastarfi enda hafa
einkareknar menntastofnanir gefið
góða raun.“
Skref inn í framtíðina
Á meðan Geir H. Haarde, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, og Jón
Sigurðsson, formaður Framsóknar-
flokksins, ræddu möguleika á áfram-
haldandi ríkisstjórnarsamstarfi
flokkanna hafði Þorgerður Katrín
það hlutverk að ræða við forystu-
menn hinna flokkanna. Aðspurð um
þátt sinn í að leggja grunn að mynd-
un nýrrar ríkisstjórnar brosir Þor-
gerður Katrín út í annað. „Það var
aldrei um neinn trúnaðarbrest að
ræða. Auðvitað er það alltaf þannig
að í stjórnmálum tala menn sam-
an. Það á við um alla flokka og ég
ræddi ekki eingöngu við Samfylking-
una. Fyrst og síðast voru það Geir og
Ingibjörg sem kláruðu viðræðurn-
ar. Mitt hlutverk var að ræða við for-
ystumenn flokkanna til að sjá hvort
hægt væri að byggja upp samband
og traust. Ég er sannfærð um að við
getum treyst Ingibjörgu Sólrúnu,“
segir Þorgerður Katrín.
Ef horft er um öxl telur Þorgerð-
ur Katrín árin í samstarfi viðFram-
sóknarflokkinn góð ár og hún ber
fráfarandi formanni flokksins, Jóni
Sigurðssyni, góða sögu. Hún segir
hins vegar að mikilvægt hafi verið að
horfa raunsætt til þess að meirihlut-
inn hélt aðeins með einum manni.
Henni þótti leiðinlegt að heyra
Framsóknarmenn tala um trúnaðar-
brest milli flokkanna.
„Mér fannst miður að heyra
hvernig framsóknarmenn töluðu.
Sérstaklega vil ég taka það fram að
samstarf við Framsókn og ekki síst
samstarf við Jón Sigurðsson var gott.
Hann er einstaklega traustur mað-
ur, víðsýnn og umburðarlyndur. Það
var gott að vinna með honum og
því finnst mér miður hvernig fram-
sóknarmenn tóku á móti honum. Að
mörgu leyti var Framsóknarflokkur-
inn ekkert óskabú til að taka við og
ég er ekki viss um að neinn hafi ósk-
að sér þess að taka við flokknum eins
og hann leit út. Vandinn er fyrst og
fremst innanbúðarmál hjá flokknum
og mikilvægt að hann reisi sig upp
að nýju á jákvæðum og skynsömum
nótum.“
Þegar Þorgerður Katrín er spurð
að því hvernig henni líst á nýja sam-
starfsflokkinn í ríkisstjórninni er ljóst
á svörum hennar að hún hefur mikla
trú á jákvæðu samstarfi flokkanna.
„Ég er mjög ánægð með nýju ríkis-
stjórnina. Mannval hennar er gott
og útlit fyrir samheldinn hóp. Hana
myndar fólk sem þorir að ganga til
þeirra verkefna sem blasa við. Já-
kvæðast í þessu er að formenn flokk-
anna, fólk sem þekktist ekkert allt-
of vel, virðist ná vel saman. Á milli
þeirra ríkir góður andi og það er al-
gjört lykilatriði að svo sé. Ingibjörg
og Geir virðast hafa þann kjark sem
til þarf og þor til að stíga skref inn í
framtíðina.“
Mikilvægt að fylgja forystunni
Í ráðherraliði Sjálfstæðisflokks-
ins er Þorgerður Katrín eina konan.
Gremju mátti greina meðal þing-
kvenna flokksins er sú niðurstaða
var ljós en þær lögðu áherslu á að
þær styddu ákvörðun formanns-
ins við val á ráðherrum. Þorgerður
Katrín telur þessa samstöðu skipta
miklu máli. „Fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn eru stóru hagsmunirnir þeir að
samheldni ríki innan hans til þess
að málefnunum sé fylgt eftir. Það er
mikilvægt að fylgja forystunni og hef-
ur alltaf sýnt sig að þegar sundrung
hefur verið í flokknum hefur hann
komið illa út úr kosningum. Það er
hins vegar enginn sem minnist á það
að konum fjölgaði í þingflokki okkar
við þessar kosningar. Enginn ann-
ar flokkur hefur jafnmargar konur á
þingi og það gleymist í umræðunni,“
segir Þorgerður Katrín ákveðin.
„Í mínu kjördæmi hefur veg-
ur kvenna iðulega verið mikill enda
konur verið mjög sýnilegar í kjör-
dæminu. Það er stórkostlegur árang-
ur sem við náðum, að bæta við okkur
í þessu öfluga kjördæmi. Í grunninn
er ég á móti kynjakvótum þó svo að
jafnvægi kynjanna sé mjög mikil-
vægt. Hér í ráðuneytinu hugsa ég
markvisst um kynjajafnvægi starfs-
liðsins. Kynjakvóti getur hins vegar
snúist gegn konum í baráttunni og
sterkara er að koma inn meðvituð-
um hugsunarhætti að jafnvægi sé
eðlilegt. Meðvitundin verður að vera
sterkari og það á við um allt þjóðfé-
lagið. Launamunur kynjanna er al-
gjörlega óþolandi og síður en svo til
sóma. Ríkisstjórnin ætlar að beita sér
sérstaklega fyrir því að laga þennan
mun og hennar bíður nokkurt verk.“
Ég er engin strengjabrúða
Á Alþingi Íslendinga eru kven-
þingmenn einungis tæpur þriðjung-
ur allra. Ef horft er til kynjaskiptingu
ráðherra nýrrar ríkisstjórnar hallar
enn frekar á kvenþjóðina, ekki síst
í þingmannaliði Sjálfstæðisflokks-
ins. Þegar Þorgerður Katrín er spurð
hvernig er að vera sterk kona í karla-
heimi stjórnmálanna getur hún ekki
stillt sig um að brosa. „Þetta finnst
mér kurteislega orðað hjá þér. Sumir
spyrja mig frekar hvernig er að vera
svona mikil frekja. Mér finnst óskap-
lega gaman að taka þátt í stjórnmál-
um. Auðvitað hef ég fundið fyrir því
sem kona að ég þarf oft á tíðum að
standa fastar á mínu. Ég dreg ekki
dul á það og að mörgu leyti þurfum
við konur að berjast meira fyrir hlut-
unum í pólitíkinni,“ segir Þorgerður
Katrín.
„Það hef ég upplifað svo oft á síð-
ustu árum og á tíma var gjarnan tal-
að um mig sem strengjabrúðu Dav-
íðs. Hvert skref sem ég tek er hins
vegar byggt á sjálfstæðum hugsun-
um og íhugun. Við stelpurnar þurf-
um gjarnan að taka lengra tilhlaup
en karlarnir í stjórnmálunum. Konur
er gjarnan litnar gagnrýnni augum
og framkoma okkar er meira undir
smásjánni. Mikilvægt er fyrir okkur
konur í pólitíkinni að vera fastar fyrir
og með allar röksemdir á hreinu því
hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér. Við
þurfum að sýna þrjósku og þraut-
seigju, leggja okkur hart fram og láta
finna fyrir okkur.“
„Konur og karlar eru ekki eins
og vonandi verðum við það aldrei,
við konur eigum að vera ófeimnar
og ekki skammast okkar fyrir neitt. Í
eðli mínu er ég mikil strákastelpa og
berst kröftuglega fyrir mínum hug-
sjónum svo jaðrar ábyggilega við
þrjósku á köflum. Fyrst og síðast er
þó mikilvægast að hafa gaman af því
sem maður er að gera. Óhætt er að
segja að ég hef ofsalega gaman af því
sem ég er að gera,“ bætir Þorgerður
Katrín við.
Því sem manni er trúað fyrir er
manni trúað fyrir
Þá berst talið að forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins. Þorgerður Katr-
ín segir skipta verulegu máli hversu
góðan stuðning þeir fengu frá flokks-
mönnum. Hún er sannfærð um að
flokkurinn haldi áfram að bæta við
sig fylgi. „Það skiptir miklu máli að
við sjálfstæðismenn höldum áfram
að vera skynsamir og heilbrigðir.
Við eigum að finna hjartsláttinn hjá
þjóðinni og megum aldrei gleyma
því sem okkur var treyst fyrir. Því sem
manni er trúað fyrir er manni trúað
fyrir á að vera lífsmottó allra stjórn-
málamanna,“ segir Þorgerður Katr-
ín. „Ef Sjálfstæðisflokkurinn heldur í
þetta og gleymir aldrei uppruna sín-
um á okkur eftir að vegna vel áfram.
Stefnu flokksins hefur aldrei þurft að
breyta og hún á alltaf við.“
Vikurnar fyrir kosningar kom-
ust nokkur mál í umræðuna í þjóð-
félaginu þar sem örlaði á fyrir-
greiðslupólitík og fólk velti fyrir sér
hugsanlegum spilltum starfsháttum
stjórnmálamanna. Þorgerður Katrín
er sannfærð um að Ísland sé minnst
spillta land veraldar. „Það koma allt-
af upp einhver svona dæmi og við
verðum auðvitað bara að læra af
þeim. Við sjáum það hins vegar í öll-
um samanburði að Ísland er minnst
spillta land í heimi og fjölmiðlafrelsi
er hvergi meira en hér. Í grunninn tel
ég íslenskt samfélag heilbrigt sam-
félag og mikilvægt að við pössum
okkur á því að stjórnsýslan fjarlægist
ekki íbúana og megum aldrei van-
meta áhrifamátt frjálsra félagasam-
taka í þessum efnum,“ segir Þorgerð-
ur Katrín.
Ég vil meira af Geir
Þegar Davíð Oddsson hvarf af
sviði stjórnmálanna óttuðust marg-
ir að Geir myndi reynast erfitt að feta
í fótspor hans sem formanns og for-
sætisráðherra. Engu að síður tókst
forystu flokksins, Geir og Þorgerði
Katrínu, að bæta við sig töluverðu
fylgi í síðustu kosningum. Hún segir
engan vafa leika á því að flokkurinn
hafi breyst eftir að Geir tók við for-
mannsembættinu. „Í megindráttum
var ég mjög stolt af því sem Davíð
gerði í formannstíð sinni. Það þýðir
hins vegar ekki að ég sé gagnrýnis-
laus á hann karlinn. Hann var svaka-
lega skemmtilegur og heillandi, er
hann var upp á sitt allra besta stóðst
honum enginn snúning,“ segir Þor-
gerður Katrín
„Geir er náttúrlega allt öðruvísi
karakter en Davíð. Hann hefur mikla
hlýju og greinilegt að hann nýt-
ur mikils traust. Foringjahæfileikar
Geirs eru ótvíræðir og í formanns-
tíð hans hefur leiðin bara legið upp á
við. Það hefur hann gert með því að
marka sína braut og fara sínar leiðir
án þess að vera bundinn við fortíð-
ina.“
Sem formaður flokksins og for-
sætisráðherra hefur Geir stundum
verið gagnrýndur fyrir að vera ekki
nógu sýnilegur. Þorgerður Katrín
segist einlægur stuðningsmaður for-
mannsins og segir hann fullan af víð-
sýni og umburðarlyndi.
„Geir hefur ekki verið upptekin
af því að eiga sviðið einn. Hann hef-
ur það einfalda markmið að efla ís-
lenskt samfélag og efla Sjálfstæðis-
flokkinn, það er nú bara þannig að
þetta tvennt fer iðulega saman. Þeg-
ar Sjálfstæðisflokknum vegnar vel
vegnar þjóðinni vel, við skulum bara
játa það. Auðvitað finnst mér allt-
af gott þegar ég sé nóg af Geir því í
kringum hann er gott að vera. Ég vil
meira af Geir.“ trausti@dv.is
„Þegar
Sjálfstæðisflokknum
vegnar vel vegnar
þjóðinni vel, við skulum
bara játa það. Auðvitað
finnst mér alltaf gott
þegar ég sé nóg af Geir
því í kringum hann
er gott að vera. Ég vil
meira af Geir.“
Kröftug kona í karlaheimi
Þorgerður Katrín segir mikilvægt að konur í
stjórnmálum standi fast á sínu og láti finna fyrir
sér. Hún þakkar foreldrum sínum hlýtt uppeldi
og hefur brynjað sig gegn kjaftasögum.