Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Síða 37
DV Helgarblað Föstudagur 25. maí 2007 37
ist hrífa, virðist nú gera hans útvöldu hreint
ærða. Ef hann er svo heppinn að vera ekki
enn kvæntur henni ætti hann að segja henni
upp á stundinni. Ef breytingin á sér ekki stað
fyrr en eftir brúðkaupið, ætti hann að reyna
að gefa henni holla ráðningu eða duglegan
vinstri handar löðrung. En hann gerir venju-
lega hvorugt. Hann kvænist og þegir og held-
ur áfram að vera kvæntur en finnur sér fleiri
og fleiri tækifæri til þess að finna eftirvinnu og
vera sem sjaldnast heima...“
Kostur að vera kvenleg
Í bókinni eru sérstakar leiðbeiningar um
hvernig geðjast á karlmönnum og höfundur
segir konur sem hafi talið sig kynnast einhverj-
um „vopnum“ við lestur kafla um það efni í bók-
inni hafa án efa orðið fyrir vonbrigðum:
„Að vísu eru enn til fáeinar konur, leifar frá
öðru tímabili í sögunni sem eru „á veiðum“ eft-
ir karlmönnum og gengur vel. Og ávallt mun
vera til hópur þessara hræddu kvenna sem eru
svo reikular í ráði sínu og lítið öruggar að þær
hlaða undir vinsældir sínar og vald. En þetta
kvenfólk, sem hefur það að eins konar atvinnu-
grein að vera sírenur sinna tíma, eru ekki konur
af holdi og blóði. Konur vorra tíma hafa öðrum
og meiri verkefnum að sinna. Þær standa við hlið
karlmannanna í sinni hörðu baráttu, sem nú er
háð víða um heim fyrir frelsi og öryggi einstakl-
inganna.“
Og svo kemur lykillinn að leyndardóminum:
Hvernig á konan að vera?
„Konan geðjast karlmanninum best á þann
hátt að vera kvenleg, eins aðlaðandi og tími og
geta leyfir, eins blíð og góðlynd og konunni er eig-
inlegt að vera og eins full af áhuga fyrir heimin-
um, sem hún lifir og hrærist í og karlmaðurinn
sjálfur, sem er viðbúinn að leggja lífið í sölurnar
þegar á reynir.“
Að vera góð húsmóðir
Einn kafli bókarinnar heitir „Búhyggindi“
og þar eru talin upp nokkur skilyrði fyrir því að
heimilisstörfin gangi vel. Þar ber regla og skipu-
lag hæst. Skipuleggja skal hin ýmsu störf og hafa
verksmiðjuhraða á vinnunni. En það er í þriðju
búhyggindareglunni sem höfundur bókarinnar
lýsir sjálfum sér og kennir okkur hinum um leið
hvernig húsmóður ber að haga sér:
„Húsmóðirin verður að kunna til margra
hluta, eftir því sem þörf krefur í það og það sinn-
ið. Oft verður hún að vera allt í senn, matreiðslu-
kona, hjúkrunarkona og ráðskona og hún verður
að annast reikningshald, vöruinnkaup, dæma í
mörgum málum, vera sáttasemjari, góður fé-
lagi, húsfreyja, eiginkona og móðir. ...Ég er laus
við hið sífellda strit og erfiði, sem er svo þreyt-
andi fyrir okkur að við njótum okkar ekki til
fulls,“ segir Joan Bennet, höfundur bókarinn-
ar. „Engu að síður er ég stundum, eins og aðr-
ar konur, dauðþreytt. En ég reyni samt ávallt
eftir bestu getu að hafa heimilið sem vistleg-
ast, gera það að skemmtilegum dvalarstað
fyrir börnin og eiginmanninn, svo að þau
hlakki til að koma heim til máltíða og geti
verið örugg um að heima sé gott að vera, þar
sé hlýtt og hreint, þar ríki gleði og hlátur. Því
að hvað sem líður ríkidæmi eða fátækt, þá
er það fyrst og fremst húsmóðirin sem setur
sinn svip á heimilið, hún ræður mestu um
það hvernig andrúmsloft heimilisins er og
heimilisbragur allur...“
Samantekt úr bókinni Aðlaðandi er
konan ánægð, eftir Joan Bennet. Íslensk
þýðing: Þórunn Hafstein, Bókfellsútgáfan
h.f. 1945.
annakristine@dv.is
Konur sinni heimilinu
Konur eiga ávallt að hafa heimilið
sem vistlegast, gera það að
skemmtilegum dvalarstað fyrir
börnin og eiginmanninn, svo að
þau hlakki til að koma heim.
Allt í senn
Húsmóðirin verður að kunna til
margra hluta. Oft verður hún að
vera allt í senn, matreiðslukona,
hjúkrunarkona og ráðskona.