Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Page 41
Starfsferill
Ingibjörg Sólrún fæddist í Reykja-
vík 31.12. 1954 og ólst þar upp. Hún
lauk stúdentsprófi frá MT 1974, BA-
prófi í sagnfræði og bókmenntum
frá HÍ 1979, var gestanemi í sagn-
fræði við Kaupmannahafnarháskóla
1979-81 og stundaði cand. mag. nám
í sagnfræði við HÍ 1981-83.
Ingibjörg Sólrún stundaði ýmis
almenn störf með námi 1974-81,
var starfsmaður dönsku póstþjón-
ustunnar 1979-81, var borgarfulltrúi
Kvennaframboðs í Reykjavík 1982-86
og Kvennalistans í Reykjavík 1986-
88, sat í borgarráði 1987-88, var rit-
stjóri tímaritsins Veru 1988-90 og
sinnti ýmsum ritstörfum og blaða-
mennsku 1990-91, var alþingis-
maður fyrir Kvennalistann í Reykja-
vík 1991-94, borgarstjóri í Reykjavík
1994-2003 og borgarfulltrúi frá 1994,
varaþingmaður fyrir Samfylkinguna
í Reykjavík 2003- 2005, alþingismað-
ur fyrir Samfylkinguna í Reykjavík
frá 2005, var varaformaður Samfylk-
ingarinnar 2003-2005 og formaður
hennar frá 2005. Ingibjörg Sólrún
var formaður Stúdentaráðs HÍ 1977-
1978, sat í skipulagsnefnd Reykjavík-
urborgar 1982-86, sat í félagsmála-
ráði Reykjavíkurborgar 1986-89, var
formaður borgarráðs 1994-2003,
var formaður stjórnar Lífeyrissjóðs
starfsmanna Reykjavíkur 1994-2002,
sat í stjórn Landsvirkjunar 1999-
2000, var formaður miðborgar-
stjórnar 1999-2002, formaður stjórn-
ar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
2000-2003, í stjórn Samtaka sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu 2002-
2003, formaður dómnefndar um
skipulagssamkeppni vegna Tónlist-
ar- og ráðstefnuhúss 2001, formaður
stjórnar Aflvaka frá 2002 og formað-
ur hverfisráðs miðborgar frá 2002.
Ingibjörg Sólrún sat á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna 1987, sat
í þingmannanefnd EFTA/EES 1991-
1994, hefur setið í stjórnarskrárnefnd
frá 2005, sat í utanríkismálanefnd Al-
þingis 1991-1993, félagsmálanefnd
1991-1994, heilbrigðis- og trygginga-
nefnd 1991-1994, efnahags- og við-
skiptanefnd 2005-2006 og í Íslands-
deild þingmannanefndar EFTA frá
2005. Hún hefur setið í bankaráði
Seðlabanka Íslands frá 2003.
Ingibjörg Sólrún skrifaði bókina
Þegar sálin fer á kreik, minningar
Sigurveigar Guðmundsdóttur kenn-
ara, 1991. Þá hefur hún skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit um almenn
stjórnmál og kvenréttindamálefni.
Fjölskylda
Ingibjörg Sólrún giftist 29.7. 1994
Hjörleifi Sveinbjarnarsyni, f. 11.12.
1949, deildarstjóra hjá Íslenska út-
varpsfélaginu. Hann er sonur Svein-
björns Einarssonar barnakennara og
Huldu Hjörleifsdóttur húsmóður.
Synir Ingibjargar Sólrúnar og
Hjörleifs eru Sveinbjörn, f. 26.1.
1983, nemi í bókmenntafræði við HÍ;
Hrafnkell, f. 10.11. 1985, nemi.
Systkini Ingibjargar Sólrúnar eru
Kristinn Hilmar, f. 25.11. 1945, vél-
stjóri í Reykjavík; Halldóra Jenný,
f. 14.11. 1947, kennari í Reykjavík;
Kjartan, f. 9.7. 1950, rekstrarstjóri
hjá Reykjavíkurborg; Óskar Sveinn, f.
26.9. 1951, stýrimaður og verkstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Ingibjargar Sólrúnar eru
Gísli Gíslason, f. 30.11. 1916, d. 23.10.
2006, verslunarmaður í Reykjavík, og
Ingibjörg J. Níelsdóttir, f. 23.2. 1918,
húsmóðir.
Ætt
Gísli var sonur Gísla þjóðhaga-
smiðs á Haugi, bróður Jóns, móð-
urafa Helgu Sigurjónsdóttur, fyrrv.
bæjarfulltrúa í Kópavogi. Syst-
ir Gísla á Haugi var Guðrún, lang-
amma Hrafnhildar Stefánsdóttur
lögfræðings. Gísli var sonur Brynj-
ólfs, hreppstjóra og dbrm. á Sól-
eyjarbakka Einarssonar, bróður
Matthíasar, langafa Haralds Matthí-
assonar menntaskólakennara, föð-
ur Ólafs, fyrrv. alþm. Matthías var
einnig langalangafa Alfreðs Flóka.
Einar var sonur Gísla, b. á Sóleyjar-
bakka Jónssonar, b. á Spóastöðum
Guðmundssonar, ættföður Kóps-
vatnsættar Þorsteinssonar. Móðir
Gísla á Haugi var Valgerður, syst-
ir Bjarna, afa Guðmundar blinda
í Víði. Móðir Valgerðar var Gróa
Gísladóttir, systir Gests á Hæli,
langafa Steinþórs, fyrrv. alþm., föð-
ur Gests skattstjóra.
Móðir Gísla verslunarmanns
var Kristín Jónsdóttir, b. í Austur-
Meðalholtum í Flóa Magnússon-
ar, b. á Baugsstöðum Hannesson-
ar, af Bergsætt. Móðir Kristínar var
Kristín, systir Guðnýjar, ömmu Sig-
urjóns Ólafssonar myndhöggvara
og langömmu Erlings Gíslasonar
leikara, föður Benedikts, leikara og
leikstjóra. Kristín var dóttir Hann-
esar, hreppstjóra í Kaldaðarnesi,
bróður Þorkels í Mundakoti, lang-
afa Guðna Jónssonar prófessors og
Ragnars í Smára. Hannes var sonur
Einars, spítalahaldara í Kaldaðar-
nesi Hannessonar, ættföður Kald-
aðarnesættarinnar Jónssonar.
Ingibjörg er dóttir Níelsar, b. á
Kóngsbakka Sveinssonar, sjómanns
á Skagaströnd, Guðmundssonar.
Móðir Níelsar var María, systir Jóns á
Másstöðum, föður Ingibjargar J. Ól-
afsson, fyrrv. aðalframkvæmdastjóra
KFUM á Norðurlöndum, og langafa
Guðrúnar Halldórsdóttur, fyrrv. for-
stöðukonu Námsflokka Reykjavík-
ur og alþk. Kvennalistans. María var
dóttir Ólafs, b. á Barkarstöðum Páls-
sonar.
Móðir Ingibjargar var Hall-
dóra, systir Rósu, móður Hallgríms
Guðjónssonar, fyrrv. hreppstjóra í
Hvammi í Vatnsdal, og móður Þór-
hildar, konu Jóns Ísbergs, fyrrv. sýslu-
manns og móður Arngríms Ísberg
héraðsdómara. Halldóra var dóttir
Ívars, sjómanns frá Skeggjastöðum
Jóhannessonar, og Ingibjargar Krist-
mundsdóttur, systur Þorleifs, föður
Þórarins, skálds á Skúfi, afa Þorleifs
Kristmundssonar, prófasts á Kol-
freyjustað, og langafa Þórðar Skúla-
sonar, framkvæmdastjóra Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
DV Ættfræði Föstudagur 25. maí 2007 41
Framvegis mun DV birta tilkynning-
ar um stórafmæli, afmælisbörnum
að kostnaðarlausu. Tilkynningarnar
munu birtast á ættfræðiopnunni sem
verður í helgarblaði DV á föstudög-
um. Með stórafmælum er hér átt við
40 ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75 ára,
80 ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og 100
ára afmæli.
Þær upplýsingar sem hægt er að
koma á framfæri í slíkum tilkynn-
ingum eru nafn afmælisbarnsins,
fæðingardagur þess og ár, starfsheiti,
heimilisfang, nafn maka, starfsheiti
maka, nöfn barna (án fæðingardags,
starfsheitis eða maka), nöfn foreldra
afmælisbarnsins og tilkynning um
gestamóttöku eða önnur áform varð-
andi afmælisdaginn.
Á hverjum föstudegi verða birtar
slíkar tilkynningar um þá sem eiga
afmæli á föstudeginum sem blaðið
kemur út á til fimmtudags í vikunni á
eftir. Þannig verða tilkynningarnar
um afmæli á sjálfum útgáfudeginum
og næstu viku fram í tímann.
Senda skal afmælistilkynningar á
netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarn-
ar verða að berast blaðinu eigi síðar
en kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar
AfmælistilkynningAr á ættfræðisíðu
KONA VIKUNNAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
formaður SamfylkingarinnarSigurður A. Magnússon
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, er al-
mennt talin hafa styrkt stöðu sína
og Samfylkingarinnar með stjórn-
arsamstarfi við Sjálfstæðisflokk-
inn. Sú skoðun er meðal annars
byggð á þeirri afstöðu að svo stór
stjórnmálaflokkur geti ekki með
góðu móti verið utan stjórnar öllu
lengur.
Þessi skoðun er einnig byggð á
þeirri afstöðu að íslenskt samfélag
hafi á undanförnum árum verið
í hraðri þróun sem ekki sjái fyrir
endann á.
Veisla í miðborginni
Veislukompaníið er alhliða veislu- og
fundaþjónusta, nýr og spennandi valkostur
í miðborginni. Þú gengur að fyrsta flokks
húsnæði með öllum tæknibúnaði, frábærum
veitingum og þjónustu á besta stað í bænum.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is