Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Page 43
DV Helgarblað föstudagur 25. maí 2007 43 annakristine@dv.is Íslenskur uppruni gerði mig að þeim sem ég er En til að ná langt þarf mikinn aga. Sjálfur fór ég ekki að taka almenni- lega á fyrr en ég var fimmtán, sext- án ára og vissi að ég vildi gera dans- inn að lífsstarfi. Það eru margir sem hreinlega gefast upp í ballettnámi þegar þeir gera sér grein fyrir hversu mikil vinna fylgir því að vera góður dansari. Í skólanum hjá okkur í San Francisco byrja um 350 nemendur á aldrinum sjö til átta ára en í elsta hópnum, sautján til átján ára, eru kannski ekki nema fimmtán, tuttugu dansarar eftir. Margir hafa byrjað í ballett því foreldrarnir senda þá – en þegar alvaran tekur við þarf fólk mik- inn sjálfsaga.“ Vissi ég kæmist alla leið... Hann segir góðan dansara þurfa að hafa líkama sem samsvarar sér vel, „stutt bak og langir leggir hent- ar til dæmis ekki“, og áhorfendur vilji fegurð. „Dansarar þurfa að líta vel út að öllu leyti,“ segir hann. „Áhorfendur vilja fegurð – fallegt andlit, fallegan líkama, fallegar hreyfingar. Dansari þarf að vera músikalskur, einbeittur og ákveðinn í að vilja komast áfram. Það þarf gríðarlega vinnu til að ná því marki. Það tekur frá átta upp í tíu ár að þjálfa dansara þar til hann kemst í dansflokk og þá er alls ekki öruggt að viðkomandi nái á toppinn.“ Sjálfur segist hann hafa vitað frá unglingsaldri að þangað myndi hann ná en til þess þyrfti hann að leggja hart að sér. „Það var einhver innri rödd sem sagði mér að ég kæmist á toppinn,“ segir hann blátt áfram. „Um leið og ég hafði tekið ákvörðun vissi ég að ég myndi fara alla leið.“ Það er í raun eiginkonunni Marl- ene að þakka að við sitjum þarna í búningsherberginu á spjalli. Skila- boðaskjóða Borgarleikhússins var greinilega biluð þennan dag. Helgi fór af æfingu inn í búningsherbergi að bíða eftir blaðamanni, sem hafði verið sagt að bíða í forsal leikhússins. Dýrmætar fjörutíu mínútur fóru for- görðum. Tíminn sem hann hafði tek- ið frá fyrir DV var að líða þegar við fundum hvort annað. Hann sagðist ekki hafa meiri tíma, ég sagði að ég yrði rekin. Það var eiginkonan Mar- lene Tómasson sem tók af skarið: „Tuttugu mínútur,“ sagði hún. Heill- andi kona sem Helgi hlýtur að hafa orðið ástfanginn af við fyrstu sýn. „Já, það var ást við fyrstu sýn,“ svar- ar hann þegar ég spyr um fyrsta fund þeirra Marlene. „Ég var að dansa hjá Joffrey-ballettinum í New York þeg- ar hún kom þangað í kennslustund. Ég hugsaði með mér hvað þetta væri falleg stúlka, hún væri eins og prins- essa,“ segir hann og horfir ástúðlega á konu sína. Marlene brosir hlýlega þegar ég spyr hana sömu spurningar. „Ef það er til eitthvað sem heit- ir „ást við fyrstu sýn“, þá passar sú lýsing við þá stund þegar við Helgi hittumst fyrst. Mér fannst hann stór- kostlegur dansari og við náðum vel saman frá fyrstu stundu.“ Harður heimur Árið var 1963 og Helgi ákvað að láta ekki þessa fallegu stúlku sér úr greipum ganga. Hann bauð henni strax á kaffihús „Þú þurftir eftirlitsmann!“ segir hann og brosir til konu sinnar sem greinilega stendur undir því að vera kletturinn í lífi hans eins og sagt hef- ur verið. „Já, hún er kletturinn í lífi mínu,“ samsinnir hann. „Marlene er sjálf dansari þótt hún hafi kosið að hætta dansferlinum þegar við eignuðumst synina, Kristin og Eric. Við giftum okkur ári eftir okkar fyrstu kynni og höfum því verið gift í 43 ár. Fyrst bjuggum við í New York en eftir að synirnir fæddust fluttum við til New Jersey og þaðan keyrði ég á hverjum degi til vinnu minnar við New York City Ballet.“ Hann viðurkennir að mikið sé tal- að um dans á heimili þeirra, annað sé ekki hægt. „Það er mér mjög mikilvægt að eiga konu sem skilur dans- og leik- húslífið,“ segir hann. „Starf mitt er þess eðlis að það er sólarhrings- starf alla daga vikunnar og Marlene hjálpar mér mjög mikið. Kannski er stundum talað of mikið um dans- inn á heimilinu, en það stafar af því að starf mitt sem listrænn stjórnandi þessa stóra dansflokks er mjög erf- itt. Ég sé um sjötíu dansara, sem allir leita til mín með allt. Ferill þeirra er í mínum höndum. Ég þjálfa þá, plan- legg öll ferðalög, hvar verður dans- að, hvað verður dansað, hver fer með hvaða hlutverk og hvaða dans- höfundar verða fyrir valinu. Það eru ekki allir alltaf jafn sáttir við ákvarð- anir mínar. Þetta er harður heimur. Ég sé um allt listrænt starf flokksins, ræð hvern einasta dansara, en það er líka ég sem þarf að segja fólki upp ef það stendur ekki undir væntingum. Það er einn erfiðasti hluti starfsins.“ Langar í laxveiði Í heimsókn Helga og fjölskyldu hans til Vestmannaeyja í síðustu viku var ljóst að Marlene var heilluð af staðnum, líkt og synirnir tveir. Þá sagði hún að það væri mikilvægt að Kristinn og Eric sæju Vestmannaeyj- ar þar sem arfleifð þeirra er. Helgi seg- ir Marlene strax hafa verið hlynnta því að eldri drengurinn hlyti íslenskt nafn. „Móðurbróðir minn hét Kristinn, afskaplega góður maður sem Marl- ene kynntist. Hún var því algjörlega samþykk því að við skírðum dreng- inn íslensku nafni, enda finnst henni nafnið mjög fallegt.“ Frá árinu 1985 hafa Helgi og Marlene búið í San Francisco. Það var árið sem Helgi hætti að starfa sem atvinnudansari og tók við list- rænni stjórn San Francisco balletts- ins, sem er talinn einn af bestu dans- hópum heims. En tengsl Helga við Ísland hafa aldrei rofnað, þrátt fyr- ir næstum hálfrar aldar búsetu í út- löndum. „Landið hefur alltaf átt sterk ítök í mér. Ég hafði auðvitað mikið sam- band við móður mína, fósturföður og hálfbróður minn. Ég kom hing- að heim af og til og sýndi dans og hef gætt þess að missa aldrei sjónar á því hvaðan ég kem. Okkur langar að koma oftar hingað og draumurinn er að komast í laxveiði.“ Afastolt Hann segir móður sína aldrei hafa reynt að hafa þau áhrif á hann að yfirgefa ekki ættjörðina og freista gæfunnar í framandi löndum. „Mamma vissi að ég yrði að fara til útlanda til að ná þeim árangri sem ég óskaði. Það var auðvitað erfitt fyrir hana, en hún lét minn hag sitja fyrir. Ég veit að margir foreldrar eiga erfitt með að sleppa tökunum á börnum sínum. Sjálfur ákvað ég að hafa móð- ur mína að fyrirmynd og koma ekki í veg fyrir að synir mínir létu sína drauma rætast. Kristinn er lærður bílahönnuður og bjó til dæmis í sjö ár í München í Þýskalandi þar sem hann starfaði fyrir BMW. Þá sáum við hann kannski í mesta lagi einu sinni á ári. Síðar bjó hann í London í tvö ár. Eric er kvikmyndagerðar- maður og ljósmyndari og bjó í Kan- ada og það er núna fyrst sem þeir eru báðir fluttir í nálægð við okkur. Eric er sá sem tekur allar myndirnar fyrir San Francisco ballettinn og býr þar, en Kristinn og kona hans eru nýflutt til Suður-Kaliforníu. Þau eiga son- inn Mikko sem er eins árs núna – á reyndar afmæli daginn sem DV kem- ur út með þessu viðtali, 25. maí,“ seg- ir Helgi og afastoltið leynir sér ekki. Dæmigerður Íslendingur Þegar ég bið hann að lýsa sjálfum sér kemur örlítið hik á Helga. Hann spyr Marlene hvernig hann eigi eig- inlega að lýsa sjálfum sér. Smá þögn. Ertu til dæmis rómantískur? „Já, ég held ég sé rómantískur...!“ Marlene tekur undir þau orð. „Helgi er rómantískur,“ segir hún. „Hann er duglegur og ástríðufullur í því sem hann tekur sér fyrir hendur, sama hvað það er. Hann er dæmi- gerður Íslendingur að því leyti að honum finnst allt vera mögulegt og gefst ekki auðveldlega upp.“ Sá staður sem þau njóta hvíld- ar á frá erli stórborgarinnar er sum- arbústaður þeirra í Napa-dalnum. Þar rækta þau vín og sækja sér hvíld í garðvinnu. „Við finnum mikla ró við garð- vinnuna og Marlene er núna að rækta tómata. Við erum með stóran rósagarð. Það nýjasta hjá mér er að hjálpa Marlene við matseldina; hún býr til sérstaklega góðan mat og hef- ur síðustu árin lofað mér að hjálpa til í eldhúsinu. Ég er bara nokkuð góður í að brytja niður! Mér finnst afskap- lega gaman að sýsla í eldhúsinu, en samt ekki næstum því eins gaman og að borða góðan mat! Ítalskur mat- ur er í mestu uppáhaldi og ástæðan fyrir því að við fitnum ekki er sú að við göngum mikið og borðum hollan mat. Ég hef eiginlega ekki tíma til að fitna, ég er alltaf á ferð og flugi.“ Stærstu stundirnar Stærstu sigrana og mestu sorgirn- ar á ævinni á hann erfitt með að skil- greina. „Það eru margar gleðistund- ir sem koma upp í hugann,“ segir hann. „Stærstu stundirnar í lífi mínu voru giftingin okkar Marlene og þeg- ar synirnir fæddust. Varðandi dans- ferilinn er svo ótalmargs að minnast; margar stórsýningar í heimsborg- um sem er erfitt að gera upp á milli. Erfiðasta stundin var hins vegar sú þegar ég var að ganga inn á svið í Washington og fékk símhringingu frá fósturföður mínum að bera mér þá fregn að móðir mín væri látin, 66 ára að aldri. Hún hafði greinst með krabbamein nokkru áður, en enginn átti von á að andlát hennar bæri svo brátt að. Þetta var erfiðasta sýning sem ég hef nokkru sinni dansað.“ Gýs ekki eins og eldfjöllin En hann er fagmaður. Tilfinning- arnar lét hann ekki í ljósi fyrr en tjöld- in féllu. „Ég kann að gráta og ég kann að hlæja,“ segir hann. „Ég á ekkert erf- itt með að láta tifinningar mínar í ljósi og er gífurlega viðkvæmur. Þess vegna gat ég ekki annað en tárast þegar mér var sýndur sá heiður að vera sæmdur stórkrossinum. Þessi tími á Íslandi hefur verið stórkost- legur og ég er þakklátur fyrir þær við- tökur sem við fengum hér, ekki síst hjá gestum í Borgarleikhúsinu og þær góðu viðtökur sem ballettflokk- urinn fékk.“ Orðið sem fólk notar til að lýsa Helga Tómassyni er auðmjúkur og þá auðmýkt sýndi hann þegar hann tók á móti stórkrossinum. „Já, ég er auðmjúkur. Ég er fædd- ur þannig og get ekkert að því gert,“ segir hann og brosir hlýlega. „Ég er jafngeðja og ef eitthvað kemur mér úr jafnvægi tel ég upp að tíu. Þótt ég gjósi ekki eins og eldfjöllin á Ís- landi, þá býr eldfjall innra með mér. Ég gleymi aldrei hvaðan ég er. Það að vera Íslendingur hefur gert mig að þeim manni sem ég er.“ „Þegar börn eru að byrja í ballettnámi finnst þeim yfirleitt bara gaman og þau upp- lifa þetta sem leik. En til að ná langt þarf mikinn aga. Í skólanum hjá okkur í San Francisco byrja um 350 nemendur á aldrinum sjö til átta ára en í elsta hópnum, sautján til átján ára, eru kannski ekki nema fimmtán, tuttugu dansarar eftir.“ DV-MYND ÁSGEIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.