Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Side 51
DV Helgarblað föstudagur 25. maí 2007 51
Þetta er frábært
sumum finnst þetta kannski ósmekklegt en
öðrum skemmtilega smart. sígarettuhálsmen
sem ekki allir geta borið en þeir sem geta
það eru svo sannarlega alvöru töffarar. Þetta
fallega sígómen er úr glamúr og það eru
einnig til eyrnalokkar. töff, töff, töff.
SérStakur Sumarilmur
Þeir sem eru hrifnir af Burberry geta verið kátir núna því Burberry gerði í fyrsta sinn
sérstakan sumarilm bæði fyrir dömur og herra. Innblásturinn kemur frá sumarlínunni
2007 og minnir á sumarsiglingar, en þær voru hugsaðar sem aðalþemað. Þetta eru
léttari útgáfur af hinum upprunalegu Burberry-ilmum og eru alveg í anda sumarsins.
Persónan
Helmut Newton lést árið
2004 en á að baki einstakan
ljósmyndaferil. Helmut sem
er af þýsku bergi brotin vakti
hvað mesta athygli fyrir
myndir af nöktum konum. Á
unga aldri var það ljósmynd-
un sem heillaði Helmut og
ungur að aldri vann hann
með þýska ljósmyndaranum
Yva (Else Neulander simon).
Helmut flúði nasistana árið
1938 og vann stutt í
singapore en flutti síðan til
melbourne í Ástralíu. Þar
giftist hann leikkonunni June
Browne sem er þekkt í
ljósmyndabransanum undir
nafninu alice springs.
Helmut opnaði stúdíó þar
sem hann vann aðallega að
tískuljósmyndun en hann og
ljósmyndarinn Henry talbot
voru í miklu samstarfi en stúdíóið bar nafnið Helmut Newton and Henry
talbot. Leiðin lá til Parísar þar sem ljósmyndirnar hans voru í öllum
helstu tískutímaritunum en
stíllinn hans er erótískur,
fetatískur (fetishistic) og soldið í
anda sadómasó. Big Nudes-
serían hans vakti gífurlega
athygli árið 1980 en raunin er sú
að sjón er sögu ríkari og því er
um að gera að kíkja á hið fagra
frá Helmut Newton.
Naktar koNur
og erótík
töfrum líkaSt
Haust- og vetrarlínan 2007-8 frá smeilinener er ótrúlega flott. Litirnir, efnin og
munstrið eru frábær í alla staði enda erum við kolfallin. Okkur langar í þessar fallegu
flíkur strax í dag. Nakti apinn er með puttann á púlsinum og er með vörur frá þeim
en ferðalangar sem eiga leið um Kaupmannahöfn, Helsinki eða Berlín geta svo
sannarlega tekið upp pyngjuna og brosað breitt. Þeir sem vilja svala forvitninni geta
kíkt inn á heimasíðuna smeilinener.de.
birgir ísleifur
Nafn? „Biggi... oft kallaður Birgir ísleifur gunnarsson.
sumir kalla mig Bigga mix. Ekki Bix... það er annar...og
ekki rugla mér saman við Bigga í maus eða listamann-
inn sem hét einu sinni Bibbi, þá annars mætu menn.
Það eru alltof margir sem heita Birgir. stundum hugsa
ég um að taka upp listamannsnafnið Birgár dan.“
Aldur? „26.“
Starf? „tónlistarmennska.“
Stíllinn þinn? „Hvað þýðir það? Ég myndi áætla að hér
sé átt við einhvers konar fas eða tísku. Eða er það ekki?
Ég hef alltaf gefið mig út fyrir að vera elegant.“
Hvað er möst að eiga? „Peninga og aftur peninga.
Peningar eru það eina sem skiptir mig máli.“
Hvað keyptir þú þér síðast? „Hlutabréf.“
Hverju færð þú ekki nóg af? „Bryan ferry.“
Hvert fórstu síðast í ferðalag og hver var tilgangur-
inn? „Ég fór síðast til Perú á vegum fyrirtækis sem ég
stofnaði á dögunum með félaga mínum frauder
arnhold. Við vorum að kynna vöru sem ber heitið
soundfiler sem er prótótýpa af stýringu á gagnaflutn-
ingum í gegnum móðurborð í farartækjum sem eru
reyndar ekki ennþá komin á markað. fyrirtækið ber
nafnið tonewhale, bara svo að það komi fram. Við
erum að auglýsa eftir hljóðmönnum nú þegar svo að
endilega hafið samband.“
Hvenær fórstu að sofa í gærnótt? „Ég hef ekkert sofið
af neinu viti í viku. Það er ótrúleg upplifun. Ég reikna
með að sofa eitthvað í júní.“
Þér er boðið í partí í kvöld, í hverju ferðu? „Bara
einhverju úr Jacky [Jack and Jones], skiptir ekki máli
hvað það er. Ég gæti klæðst slæðu, axlaböndum og
kakíbuxum eða einhverju hördóti. Það skiptir mig engu
máli hvað það er... aLLt úr Jacky klæðir mig. Ég mætti
einu sinni á stjórnarfund í fyrirtækinu mínu í slopp frá
Jack og Jones og enginn sagði neitt, það voru allir bara
mjög sáttir og nóta bene, fannst ég smart. Nei annars,
ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég með nokkra
aðila sem að sérsauma á mig fötin. Þetta eru að mestu
leyti ungir fatahönnuðir frá Bretlandi. Ég fer út
nokkrum sinnum á ári og læt þá tékka á því hvort ég
hafi nokkuð gildnað.“
Hvenær hefur þú það best? „Klukkan 10 á morgnana,
áður en stressið tekur öll völd og rífur mann úr sætinu.
mitt takmark í lífinu er að geta setið og gert ekkert. um
leið og ég hef náð því takmarki verð ég ánægður og þá
get ég aftur byrjað að gera eitthvað.“
Afrek vikunnar? „Ég hef ekki ennþá afrekað neitt af
viti í þessari viku fyrir utan það að halda mér vakandi.
Jú annars tókst mér að halda nokkrar motion Boys-
æfingar og ætli það sé ekki afrek.“