Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Page 55
Fellirúllur
-Nýjung á Íslandi
Sumarhúsaeigendur ættu að skoða kosti fellirúlla þegar loka á bústaðnum vel og
vandlega fyrir veturinn eða þegar enginn er í honum. Þær auka öryggið, sérstaklega
gegn innbrotum því erfitt er að komast inn fyrir fellirúllur úr sterku áli.
Hér á landi eru gluggar á húsum almennt hafðir stórir til þess að fá sem mest af
dagsbirtunni inn. Fellirúllur koma í veg fyrir það að sólin hiti húsið of mikið og einnig
að hún uppliti húsmuni. Að sama skapi gefa fellirúllurnar gott skjól í vetrarveðrum
þegar vindur, regn og snjór lemur á gluggunum.
Fellirúllur má setja upp innan dyra eða utan. Hægt er að setja upp fellirúllur á eldri
húsum eða gera ráð fyrir þeim á meðan húsið er í hönnun.
Hægt er að fá fellirúllur í öllum stærðum og margvíslegum litum til þess að tóna við
litaval hússins. Fellirúllurnar verða þannig prýði á hverju húsi fyrir utan þægindin
sem fylgja.
NOTAGILDI FELLIRÚLLANNA
1. Orkusparnaður: Hiti helst betur inni í húsum og hitastigið verður stöðugra.
Þess vegna er hér um ákveðna einangrun að ræða.
2. Verndun innanstokksmuna: Fellirúllur vernda húsmuni fyrir
upplitun af völdum sólarljóssins.
3. Hljóðvörn: Fellirúllur einangra húsið fyrir hávaða í umhverfinu og sérstaklega
gegn umferðarnið.
4. Fok- og vindvörn: Fellirúllur útiloka að rúður brotni í ofsaveðrum vegna
vindstyrks eða foks á lausamunum.
5. Gler og gluggar: Fellirúllur vernda glerið og auka endingu þess og einnig
gluggaumbúnaðar.
6. Vörn gegn innbrotum: Erfitt er fyrir innbrotsþjófa að komast inn um
glugga þar sem fellirúllur eru fyrir.
7. Vörn gegn náttúruhamförum: Fellirúllur verja gegn minni háttar snjóflóðum
og aurskriðum því þær verja rúður sem auðveldlega brotna við slíkar aðstæður.
8. Verndun einkalífsins: Fellirúllurnar virka sem þykk gluggatjöld og fyrir
bragðið sér enginn inn í húsið.
Nánari upplýsingar hjá Víðitré, Kauptúni 1, Fellabæ.
Sími: 824-2210 / 866-6239 / 824-2219 • Netfang: sbloendal@visir.is
Fellirúllur eru nýjung á markaði hérlendis en margir hafa beðið eftir þessum val-
kosti. Á meginlandi Evrópu hafa rúmlega 90% heimila fellirúllur og sama er að
segja um Bandaríkin. Í mörgum löndum koma fellirúllur oft í stað gluggatjalda
því þær þjóna hlutverki þeirra til að byrgja gluggana fyrir utanaðkomandi.
Nánari upplýsingar hjá Víðitré, Kauptúni 1, Fellabæ.
Sími: 824-2210 / 866-6239 / Netfang: sbloendal@visir.is
Nánari upplýsingar hjá Víðitré , Hléskóar 2 Egilsstaðir
Sími: 866 6239 - Netfang: viditre@simnet.is