Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Side 11
ÍSLAND Á EM DV Sport mánudagur 18. júní 2007 11 Sport sport@dv.is Frábær sigur á Frökkum Birgir Leifur Hafþórsson atvinnu- kylfingur lenti í 26. sæti á Open de Saint-Omer mótinu í Frakklandi. Birgir sýndi mikinn styrk eftir slæma byrjun á lokadeginum og endaði vel. Engu að síður telur hann sig hafa getað gert betur á mótinu. „Ég var sáttur við að rífa mig upp á lokahringnum en var svo sem ekki sáttur við spilamennskuna í mót- inu yfir höfuð. Þetta var svona bar- áttumót þar sem ég var oft að redda mér úr erfiðri aðstöðu. Þessi völlur er fljótur að refsa manni og það var stutt á milli þess að fá skolla og fugl. Vandræðin hjá mér í þessu móti voru þau að ég tók of mörg slæm golfhögg og hitti brautir og flatir ekki nægilega vel,“ segir Birgir. Birgir spilaði lokadaginn á 72 höggum og á 4 höggum yfir pari alls á mótinu. Á lokadaginn byrjaði hann illa og fékk fjóra skolla á fyrstu fimm holunum. Síðan kom hann til baka með þremur fuglum í röð og var einu yfir eftir níu holur. Hann fékk síð- an skolla á 18. holu og paraði síðan næstu sjö holur og endaði með fugli á lokaholunni. Fyrir mótið var hann í 155. sæti á peningalistanum og ef að líkum læt- ur mun hann hækka sig um 5-6 sæti á peningalistanum með þesum ár- angri í Frakklandi. Birgir Leifur hefur sýnt jafnari spilamennsku að undanförnu. „Ég er að sýna meiri þolinmæði og er fljót- ari að jafna mig eftir slæm högg og það kemur bara með reynslunni. Framundan eru rólegar vikur hjá mér því það er erfitt að komast í mót um þessar mundir. Ég ætla að nota tímann til þess að æfa mig. Í júlí er úrtökumót fyrir British Open og það verður gaman að taka þátt í því,“ seg- ir Birgir að lokum. vidar@dv.is Birgir Leifur Hafþórsson keppti á Evrópsku mótaröðinni í gær og lenti í 26. sæti. Þrátt fyrir góðan árangur vildi Birgir Leifur gera enn betur: Ósáttur við 26. sæti Ísland áfram á em eftir sigur Í frábærum handboltaleik þar sem sóknarleikurinn var Í fyrirrúmi. Mánudagur 18. júní 2007 Stöðugur Birgir Leifur Hafþórsson er að standa sig vel á Evrópsku mótaröðinni. Real Madrid meistari á Spáni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.