Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Blaðsíða 18
Eins og venja er eftir hverja um- ferð í Landsbankadeild karla í knatt- spyrnu velur íþróttadeild DV lið umferðarinnar. Að þessu sinni eru FH-ingar og Blikar áberandi í liði umferðarinnar enda unnu bæði lið góða sigra í 6. umferð. Daði Lárusson (FH): Daði varði eins og berserkur í leik KR og FH. Hann er með trausta verði fyrir fram- an sig en varði vel þegar á reyndi og sumar markvörslunar voru frábærar. Tommy Nielsen (FH): Gríðarlega traustur varnarmaður og mikill feng- ur fyrir FH að hafa slíkan leiðtoga í vörn liðsins. Útsjónasamur varn- armaður sem tapar ekki mörgum skallaeinvígum. Guðmundur Sævarsson (FH): Guðmundur var sífellt ógnandi í hægri bakverðinum á móti KR. Vinnusamur bakvörður sem þorir að sækja. Hann og Matthías eru stór- hættulegir með hlaupum sínum. David Hannah (Fylki): Leið- toginn í vörn Fylkis sem fær ekki mörg mörk á sig. Hannah átti góðan leik gegn HK og stöðvaði ófáar sóknir Kópavogspilta. Arnór Aðalsteinsson (Breiða- bliki): Arnór átti góðan leik gegn ÍA líkt og flest allir í liði Blika. Skaga- menn komust lítt áleiðis og það var ekki síst Arnóri að þakka. Arnar Grétarsson (Breiðabliki): Arnar sýndi og sannaði gegn ÍA að hann er einn besti miðjumaður landsins þegar sá gállinn er á hon- um. Gríðarlega útsjónasamur leik- maður sem er öruggur í sínum að- gerðum. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (FH): Gríðarlega vinnusamur leikmaður sem fær kannski ekki alltaf það hrós sem hann á skilið. Vann vel í leiknum gegn KR og uppskar mark. Jónas Guðni Sævarsson (Kefla- vík): Orðatiltækið „margur er knár þótt hann sé smár“ á vel við Jónas Guðna. Einn besti miðjumaður deildarinnar hér á ferð. Hann er dug- legur og með góðar sendingar. Matthías Guðmundsson (FH): Þegar Matthías nær sér á strik er fátt sem fær hann stöðvað. Olli miklum usla í vörn KR með hraða sínum og útsjónarsemi. Helgi Sigurðsson (Val): Helgi skoraði tvö mörk gegn Víkingum og er markahæsti leikmaður deildarinn- ar. Helgi er fæddur markaskorari og fáir varnarmenn ráða við hraða hans. Prince Rajcomar (Breiðabliki): Leikurinn gegn ÍA var klárlega besti leikur Prince til þessa á tímabilinu. Hann var sífellt ógnandi og varnar- menn ÍA áttu í mesta basli með hann í leiknum. MÁNudagur 18. JÚNÍ 200718 Sport DV LandsbankadeiLdin Lið fimmtu umferðar Daði Lárusson David Hannah Ásgeir Gunnar Ásgeirsson Guðmundur SævarssonArnór Aðalsteinsson Matthías Guðmundsson Helgi Sigurðsson Jónas Guðni SævarssonArnar Grétarsson Prince Rajcomar Tommy Nielsen Leiðtoginn á miðjunni arnar grétarsson sýndi og sannaði gegn Ía að hann er einn besti miðjumaður landsins. Ásgeir átti mjög góðan leik Vinnuhesturinn Ásgeir gunnar Ásgeirsson átti mjög góðan leik gegn Kr og uppskar mark í þokkabót. Stjórn Arsenal mun ekki hindra Henry í að fara til Barcelona, vilji hann það: Arsene Wenger ræður ferðinni Keith Edelman, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá Arsenal, hefur stað- fest að stjórn félagsins muni ekki standa í vegi fyrir Thierry Henry, vilji hann yfirgefa Arsenal. Edelman bætti við að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Ars- enal, hefði þó síðasta orðið í því hvort Henry færi til Barcelona fyr- ir fimmtán milljónir punda eða rétt tæpa tvo milljarða króna. „Þetta er ákvörðun fyrir Arsene. Það er hans starf að stjórna lið- inu og þetta er undir honum kom- ið. Þannig höfum við alltaf unn- ið með Arsene,“ sagði Edelman. „Hann mun ráða leikmannamál- um. Stjórnin mun koma að málinu en við munum gera það sem Ars- ene segir okkur að gera,“ bætti Ed- elman við. Þráðlátur orðrómur hefur verið uppi um að Henry sé á leið til Bar- celona. Fregnir bárust að því í síð- ustu viku að Wenger hafi fundað með stjórnarmönnum Barcelona í París þar sem umræðuefnið á að hafa verið hugsanleg viðskipti með Henry. „Ég veit að þegar Thierry Henry vill fara þá mun hann banka á dyrn- ar hjá mér og segja mér það. Hann hefur ekki gert það. Thierry átti slakt tímabil, hann er fyrsti maður- inn til að viðurkenna það. Samt ef maður skoðar hvað hann spilaði marga leiki og hvað hann skoraði mörg mörk er það ekki slæmt því hann skoraði tíu mörk (í úrvalsdeildinni) í sautján leikj- um. Í hreinskilni sagt er það frá- bært. Hann er pirraður, en hann vill koma aftur á næstu leiktíð og eiga gott tímabil,“ sagði Arsene Wenger. Frammistaða Henry er líklega besta dæmið um kænsku Arsene Wenger sem knattspyrnustjóra. Henry var keyptur til Arsenal frá Juventus í ágústmánuði árið 1999. Hann hafði ekki staðið undir vænt- ingum hjá Juventus og efasemdir voru uppi um að Henry væri rétti leikmaðurinn fyrir Arsenal. Á þeim árum sem hann hefur spilað fyrir Arsenal hefur Henry rit- að nafn sitt í sögubækurnar hjá Ars- enal og er álitinn einn besti sóknar- maður samtímans. dagur@dv.is Á leið til barcelona? Vitað er að Barcelona hefur mikinn áhuga á að krækja í Thierry Henry, enda er hann einn besti framherji heims.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.