Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Qupperneq 26
Myndin er byggð á sannri sögu
Clifford Irving sem selur ævisögu
flugmógúlsins Howard Hughes til
útgáfurisa fyrir milljónir. Gallinn er
bara að Howard Hughes hefur ekki
hugmynd um þessa ætlan Irving. En
sagan stækkar bara og stækkar. Því
einkalíf Irving er ekkert grín og stúd-
eringar hans á Hughes kenna honum
ýmsar brellur til að knýja áfram sinn
vilja við samstarfsmenn og ástkonu.
Ekki skemmir fyrir að Irving virðist
vera sannfærandi lygari, svo mikill
að það jaðrar við geðveiki. Að lok-
um veit maður ekki lengur hvað er
lygi, geðveiki eða sannleikur. Enda er
hér um ótrúlega sögu að ræða. Rich-
ard Gere leikur Irving vafasamt vel
miðað við fyrri störf og skilar hér
allt annarri týpu en maður hef-
ur séð hann sem áður. Ég hef aldrei
séð Gere jafn góðan og það fer hon-
um vel að renna úr sínu dæmigerða
hlutverki. Hann leikur á sannfær-
andi hátt mann sem er síður en svo
gallalaus, hefur alvarlega veikleika
og ber það með sér í hegðun. Alfred
Molina leikur síðan stórhlægilegan
samstarfsmann Irving, barnabóka-
höfundinn Dick Susskind og skil-
ar því vel. Leikstjórinn Lasse Halls-
tröm hefur iðulega gert frábærar
myndir. Bæði í heimalandi sínu Sví-
þjóð „Mitt liv som hund“ og einnig
„What´s eating Gilbert Grape”“ svo
maður nefni eitthvað. Hann held-
ur í hefðina og kemur hér með góða
mynd sem er hægt að gagnrýna fyrir
fátt eitt. Eina sem gæti skemmt fyr-
ir er ef til vill áhugaleysi Evrópubúa
á þessum leyndardómsfulla flug-
risa. Móttökur Aviator í Bandaríkj-
unum sýna hvað áhuginn á Howard
Hughes er skuggalega mikill þar. En
einkalíf Howard Hughes er eitthvað
sem fæstir utan Bandaríkjanna eru
að missa sig yfir. Lasse nær samt að
gera söguna eins spennandi og kost-
ur er. Persónusköpun, minni flétt-
ur sögunnar, samræður, texti og allt
birtist gallalaust. Að auki ýjar hann
að óbeinum tengingum bókarinnar
við Watergate hneyksli Nixon stjórn-
arinnar. Í heildina ótrúleg mynd um
trúlegustu lygasögu sem þú hefur
séð lengi og það er engin lygi.
Erpur Þ. Eyvindarson
Tónlistarhátíðin G! Festival verður haldin í Fær-
eyjum þann nítjánda til tuttugasta og fyrsta júlí. Eftir-
spurn ferða á hátíðina hefur aukist gríðarlega enda var
hátíðin valin ein af tuttugu og fimm bestu tónlistarhá-
tíðum í heimi af tímaritinu URBAN. Flugfélag Færey-
inga, Atlantic Airways hefur brugðist við aukinni eftir-
spurn með því að bæta einu aukaflugi við reglubundið
áætlanaflug sitt á milli Íslands og Færeyja. G!Festivalið
er vinsælasta tónlistarhátíðin meðal Íslendinga á eft-
ir Hróarskelduhátíðinni svo búist er við því að auka-
flugið fyllist á næstunni. Bókanir frá Íslandi eru í full-
um gangi og er hægt að kaupa pakkaferðir í gegnum
vefsíðuna greengate.fo fyrir einungis þrjátíu og fjögur
þúsund krónur. Innifalið í því verði er flug báðar leið-
ir, flugvallaskattar, helgarpassi og aðgangar að tjald-
svæðinu. G! hátíðin fer fram á ströndinni í Götu sem
er þúsund manna þorp á Austureyju í Færeyjum. Um-
hverfið og öll umgjörð hátíðarinnar er einsog best er á
kosið svo engin að furða að hátíðin sé orðin eins vin-
sæl og raun ber vitni. Meðal þeirra íslensku sveita sem
ætla að spila á G!Festivalinu í ár eru Ultra Mega Tecno-
bandið Stefán og Dr.Spock.
MÁNudagur 18. JÚNÍ 200726 Bíó DV
álfabakka
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
ZODIAC kl. 6 - 9 16
BLADES OF GLORY kl. 6 12
ROBINSON ÍSL TAL kl. 4 L
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 L
OCEAN´S 13 kl. 6 - 8 - 9 - 10:40 7
OCEAN´S 13 VIP kl. 8 - 10:40
PIRATES 3 kl. 6 - 8 - 10 10
PIRATES 3 VIP kl. 4
kRINGlUNNI
DIGITal
DIGITal
akUREYRI
CODE NAME CLEANER kl. 6 - 8 - 10 10
OCEAN´S 13 kl. 8 - 10:10 7
kEflaVÍk
www.SAMbio.is 575 8900
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FANTASTIC FOUR kl. 8 L
OCEAN’S 13 kl. 8 - 10:20 12
ZODIAC kl. 10 16
Þegar óhreinindin er orðin of mikil
þarf einhvern til að taka til hendinni!
Nicollette Sheridan Cedric the Entertainer Lucy Liu
CODE NAME CLEANER kl. 6 - 8 - 10:10 10
OCEAN´S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 7
PIRATES 3 kl. 7:20 - 10:30 10
FANTASTIC FOUR 2 kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
FANTASTIC FOUR 2 LÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
HOSTEL 2 kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE LAST MIMZY kl. 3.40
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3 kl. 5 - 9
SPIDERMAN 3 kl. 5 - 8
SÍMI 551 9000
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
NÝTT Í BÍÓ!
HEIMSFRUMSÝNING!
EIN SVALASTA
STÓRMYND
ÁRSINS!
SÍMI 530 1919
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6 - 8.20 -10.30
THE HOAX kl. 5.30 - 8 - 10.30
28 WEEKS LATER kl. 6 - 8 - 10
FRACTURE kl. 8 - 10.30
THE PAINTED VEIL kl. 5.30
18
10
10
12
16
16
18
16
16
14
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6 - 8 - 10
HOSTEL 2 kl. 6 - 8 - 10 18
STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 16 ÁRA
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
QUENTIN
TARANTINO
KYNNIR
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6 - 8 - 10
HOSTEL 2 kl. 8 - 10
THE INVISIBLE kl. 6 - 10.30
28 WEEKS LATER kl. 6 - 8 - 10
THE LIVES OF OTHERS kl. 5.30 - 8
FANTASTIC FOUR 2 kl. 4, 6, 8 og 10 L
HOSTEL 2 kl. 6, 8 og 10 18
THE LAST MIMZY kl. 4 og 6 L
DELTA FARCE kl. 8 og 10 10
ÚTI ER ÆVINTÝRI kl. 4 -450 kr.- L
www.laugarasbio.is
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Sími: 553 2075
Bíódómur
Niðurstaða: HHHHH
Molina, Marcia Gay Harden, Julie Delpy og Hope Davis
HOAX
Í heildina ótrúleg mynd um trú-
legustu lygasögu sem þú hefur
séð lengi og það er engin lygi.
Leikstjóri: Lasse Hallström
Aðalhlutverk:Richard Gere, Alfred
Sönn lygasaga
Hoax Myndin er byggð á sannri sögu
Clifford Irving sem selur ævisögu
flugmógúlsins Howard Hughes til
útgáfurisa fyrir milljónir.
Gere er góður „Ég hef aldrei séð gere
jafn góðan og það fer honum vel að
renna úr sínu dæmigerða hlutverki.“
Fleiri flug til Fær-
eyja á G!Festival
Vegna gríðarlegra vinsælda á tónlistarhátíðina
G!Festival í Færeyjum hefur flugfélagið Atlantic
Airways brugðið á það ráð að fjölga flugferðum frá
Íslandi til Færeyja meðan hátíðin stendur yfir.
G!Festival Hefur verið valin ein af 25
bestu tónlistarhátíðum heims.