Kjarninn - 13.03.2014, Side 11
04/04 StjórnMáL
klára ekki málið fyrir kosningar?
Annar möguleiki sem ræddur hefur verið er að ljúka ekki
umræðu um málið fyrir þinglok þetta vorið, en aðeins
eru ríflega 20 starfsdagar eftir af þinginu og mörg mál á
dagskránni á þeim tíma, meðal annars skuldaniðurfell-
ingaráform ríkisstjórnarinnar. Búast má við því að miklar
um ræður muni fara fram um þau mál, sem muni taka mikinn
tíma frá öðrum málum. Samkvæmt heimildum Kjarnans eru
margir þingmenn stjórnarflokkanna hræddir um að mikið
tímahrak muni einkenna störf þingsins á síðustu metrunum.
Þetta geti leitt til þess að umræða um ESB fari fram í of
miklum flýti, með þeim afleiðingum að minni líkur séu til
sáttar um málið.
Spennuþrungnir dagar
Mikil spenna hefur einkennt þingstörfin að undanförnu, ekki
síður bak við tjöldin en á Alþingi sjálfu. Forystumenn margra
fyrirtækja hafa síendurtekið sett sig í samband við forystu
stjórnarflokkanna, einkum Sjálfstæðisflokksins, og þrýst
á um að draga ekki aðildarumsóknina formlega til baka.
Betra sé að stöðva viðræðurnar en að kæfa þær alveg. Þessu
samhliða hefur forystufólk Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka
atvinnu lífsins, Samtaka iðnaðarins og Alþýðusambands
Íslands óskað eftir því að stefna verði kynnt til langframa í
efnahagsmálum þjóðarinnar, ekki síst peningamálum, þar
sem lagt verði upp með tengja landið við markaði erlendis.
Mikil þörf sé fyrir slíka framtíðarsýn.