Kjarninn - 13.03.2014, Page 36
01/01 Sjö Spurningar
Hvað á að gera um helgina?
Fara með mömmu og systur minni
á Furðulegt háttalag hunds um
nótt í Borgarleikúsinu á föstudags-
kvöldinu, óska bróður mínum til
hamingju með daginn í kaffiboði
suður með sjó á laugardeginum
og slappa af með fjölskyldunni á
sunnudeginum.
Hvaða plata kemur þér alltaf í
stuð?
Gling-gló með Björk, tekin upp á
Borginni, plokkar í hjartastrengina
á mér og gerir mig meyra.
Stundum þarf maður að komast í
þess konar stuð.
Hver er uppáhaldsbíómyndin
þín?
Æ, ég á svo erfitt með svona uppá-
halds, finnst eins og ég sé að gera
upp á milli barnanna minna, en
ég elska ævintýri, hvort sem þau
gerast í geimnum eins og gömlu
Star Wars-myndirnar, í kastala
með Harry Potter eða í skógi eins
og The Princess Bride. og flest allt
sem Tarantino snertir. Lesist, ég
er nörd.
Hvaða bók ertu að lesa?
Kjaftað um kynlíf við börn frá
fæðingu til framhaldsskólans.
Horfðir þú á bardaga Gunnars
Nelson?
u, nei. Var hann ekki sýndur frekar
seint? Æ, í fyrsta lagi á ég ekki
sjónvarp og í annan stað hef ég
örugglega verið að horfa á House
of Cards.
Af hverju hefur þú helst
áhyggjur á Íslandi í dag?
Ég hef áhyggjur af vondri lykt
grassins víðs vegar um borgina, ég
hef áhyggjur af vöntun á leikskóla-
plássi, ég hef áhyggjur af næstu
borgarstjórnarkosningum og
almennum minnisglöpum.
Hverju klikkar fólk helst á í
kynlífi?
Það gleymir að tala saman og
segja hvað því þyki gott og spyrja
bólfélaganum hvað honum þyki
gott. Þetta er eins og að panta
pizzu – talið saman um áleggin
áður en þið leggið inn pöntun.
Svo er öllum sama hversu margar
pizzur þú hefur borðað á ævinni,
það kemur málinu ekkert við.
Sjö Spurningar
Sigga Dögg
kynfræðingur
01/01 sjö sPURNINGAR kjarninn 13. mars 2014