Kjarninn - 13.03.2014, Síða 46
02/07 viðtaL
Þ
að vekur eðlilega athygli þegar heimsfrægir
listamenn hætta sér inn á svið stjórnmála til
að styðja við málefni sem þeir hafa óbilandi trú
á. Sérstaklega á það við þegar um er að ræða
erlendan leikstjóra sem hefur verið tilnefndur til
Óskarsverðlauna en heillast síðar upp úr skónum af nátt-
úru lítillar eyju úti í ballarhafi. Hann heillast svo mikið að
hann ákveður, ásamt þekktasta íbúa eyjunnar og þarlendum
náttúruverndar samtökum, að ráðast í tónlistarlegan stórvið-
burð til að krefjast þess að afturköllun nýrra náttúruverndar-
laga verði dregin til baka og þau taki gildi, eins og gert var
ráð fyrir, hinn 1. apríl 2014. Samhliða verður fé safnað fyrir
Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd.
Leikstjórinn heitir Darren Aronofsky
og leikstýrði meðal annars stórmyndunum
Requiem for a Dream, The Wrestler og Black
Swan. Hann eyddi sumrinu 2012 á Íslandi í
tökur á syndaflóðssögu biblíunnar, Noah.
Íbúinn þekkti sem stendur að viðburðinum
með honum er auðvitað Björk Guðmunds-
dóttir. Viðburðurinn mun samanstanda af
frumsýningu á Noah sem fylgt verður eftir
með stórtónleikum í Hörpu hinn 18. mars þar
sem fram koma Björk, Patti Smith, Lykke Li,
Of Monsters and Men, Mammút, Highlands,
Retro Stefson og Samaris.
Á blaðamannafundi sem haldinn var til að kynna við-
burðinn, sem ber yfirskriftinna „Stopp – Gætum garðsins!“
töluðu Aronofsky og Björk við þá sem á hlýddu í gegnum
Skype. Þar kom fram að Aronofsky væri ekki bara aðdáandi
íslenskrar náttúru, heldur líka Bjarkar. Hann sagðist í raun
mjög stressaður að fá að taka í höndinni á henni. Þar er
Björk Guðmundsdóttir í tilverunni. Hún gerir heimsfræga
verðlauna leikstjóra stressaða. Og aðkoma hennar að við-
burðinum mun ugglaust gera marga íslenska stjórnmála-
menn stressaða.
viðtaL
Þórður Snær Júlíusson
@thordurssnaer
„Þetta eru gamaldags úreltar
iðnbyltingarhugmyndir sem
eiga ekki lengur við. Það
er ekki of seint. Kosturinn
við að vera svona fá eins
og við Íslendingar erum er
að þá heyrist miklu hærra
í hverri manneskju!“