Kjarninn - 13.03.2014, Side 59
06/07 áLit
hægt að hækka laun umfram verðbólgu og þá sérstaklega
lægstu taxta. Sú farsæla ákvörðun var tekin að rjúfa þessi
tengsl, en frá þessum tíma hafa meðallaun hækkað um
þriðjung umfram verðlagsvísitölu og lægstu laun mun meira.
Nýtt kerfi varð til á uppgangsárunum eftir árið 1986 og raun-
laun sprengdu sig frá öllum kjarasamningum. Grunnlaun
urðu reiknitala sem sveiflaðist í takt við efnahagsástandið
hverju sinni. Raunlaun náðu hæstu hæðum á árunum 1986
og 1987, enda mikið í gangi hér landi. Bygging flugstöðvar,
Kringlunnar og Blönduvirkjunar. Allt það hrundi niður árið
1989 og raunlaunin með, en þau fara síðan fara hækkandi
eftir árið 1993. Hér á landi varð reyndar bankahrun 1990 eins
og í hinum Norðurlandaríkjunum en það
tókst að fela það hrun í hinni handstýrðu
krónu og efnahagur stórs hluta íslenskra
heimila var í rústum á þessum árum. At-
burðirnir 2008 eru ekki eina hrunið sem
hefur orðið hér á landi, þótt margir virðist
halda það.
Skráð atvinnuleysi hér á landi var 1,7% af
áætluðu vinnuafli árið 1989. Það er sannarlega
ekki há tala, í það minnsta ef hún er skoðuð
með tilliti til annarra Evrópulanda. Hún
verður hins vegar mjög há í augum íslenskra
launamanna þegar litið er til þess að á
árunum 1970–1988 var atvinnuleysi hér á landi
aðeins þriðjungur þess, að meðaltali 0,6%. Ótti við atvinnu leysi
átti stóran þátt í að þjóðarsáttin náði fylgi í verkalýðs félögum.
OECD skoðaði stöðu verknámsfólks í samanburði við bóknáms-
fólk. Atvinnuþátttaka fólks á Íslandi er mjög há. Atvinnuþátt-
taka fólks með starfsmenntun er 86% hér á landi, 73% meðal
stúdenta. Atvinnuleysi meðal starfsmenntaðra er þriðjungi
minna en hjá þeim sem hafa tekið stúdentspróf.
Munur á litlum vinnumarkaði og stórum
Oft hefur komið til tals meðal starfsmanna menntamála
að búa eigi til fleiri námsleiðir með skilgreindu lokaprófi.
„Hagstofa Íslands
skilgreinir brott-
fall þannig að skrái
nemendur í fram-
haldsskólum sig
ekki í skóla ári síðar
og hafi ekki útskrif-
ast í milli tíðinni
teljast þeir til brott-
fallsnemenda.“