Kjarninn - 13.03.2014, Page 62
01/05 piStiLL
n
ú er útlit fyrir að við, það er að segja yfirvöld
í nafni íslensku þjóðarinnar, ætlum að vísa
roskinni ömmu, dóttur hennar og sjö ára
dótturdóttur úr landi.
Þessar konur eru ættaðar frá Kólumbíu en
eiga bæði ættingja og traust bakland hér á landi. Elsta konan
á dóttur sem er íslenskur ríkisborgari og barnið hefur búið á
Íslandi þriðjung ævi sinnar, enda liðin meira en tvö ár síðan
telpan kom hingað með ömmunni, Susana Ortiz de Suarez.
Mamman, Johanna, hefur menntað sig á Íslandi og á bæði
íslenskan kærasta og systur hérna. Systirin er Mary Luz
Suarez, kona sem hefur lengi verið meira en þyngdar sinnar
virði í gulli sem dagmóðir hér á landi. Hún kom til Íslands
ásamt sonum sínum og fleiri kólumbískum konum árið 2007
en nokkrum árum síðar fékk hún íslenskan ríkisborgararétt
eftir umtalsverða baráttu, þrátt fyrir gott orðspor sem dag-
móðir og vilyrði stjórnvalda.
Mæðgur í hakkavél
möppudýra
Auður Jónsdóttir segir frá tilveru fólks frá Kólumbíu sem stendur til að vísa úr landi
piStiLL
auður jónsdóttir
rithöfundur
kjarninn 13. mars 2014