Hagtíðindi - 01.02.1917, Blaðsíða 7
1917
HAGTÍÐINDI
3
Yfirlitið sýnir, að allmikil verðhækkun hefur átt sjer stað síðan
í októbermánuði. Að meðaltali hafa allar þær vörur, sem taldar eru
í yfiriitinu, hækkað um 7% á síðasta ársfjórðungi. Þó eru það ekki
nærri allar vörurnar, sem hækkað hafa í verði, en þær sem hafa
gert það, hafa hækkað því meir. Kol og steinolía hafa haldist í sama
verði, ávextir eru heldur ódýrari, verð á te og súkkulaði er mjög likt.
Verð á brauðum var einnig hið sama í byrjun janúarmánuðar eins
og 1 októbermánuði, því að síðasta verðhækkunin á þeim varð ekki
fyr en síðar (29. janúar). Kornvörur hafa að meðaltali hækkað um
rúml. 5°/o á síðasta ársQórðungnum 1916. Sykur mátti heita ófáan-
legur í byrjun janúarmánaðar, nema púðursykur. Að eins einn kaup-
maður tilfærði höggvinn sykur. Var hann kominn frá Spáni með
»Braga« og miklu dýrari heldur en sykur sá, sem áður fjekst hjer.
Strausykur var sómuleiðis að eins tilfærður af einum kaupmanní.
Síðar í janúarmánuði Qekk landsstjórnin sj'kur frá Danmörku og
var hann seldur töluvert ódýrar, en þó miklu dýrar heldur en sykur
var seldur í október (höggvinn sykur kr. 1.10 pr. kg., strausykur
kr. 0.95 pr. kg.). Tiltölulega mest hefur verðhækkunin síðasta árs-
fjórðunginn verið á fiskinum, 18°/'o að meðaltali, en jafnvel 60°/o
á nýja fiskinum. Sömuleiðis hefur mjög mikil verðhækkun orðið á
smjöri, mjólk og eggjum (20°/o, 17°/o og 37%).
Ef verðið á öllum þeim vörum, sem yfirlitið tilgreinir, er talið
100 í júlímánuði 1914 eða rjett áður en stríðið byrjaði, þá hefur
það verið að meðaltali 139 í janúar 1916, 171 í október 1916 og 183
í janúar þ. á. Til þess að taka með allar vörurnar í hvert skifti, eru
vörur þær, sem ekki koma fyrir í einhverjum ársfjórðungi, taldar
með sama verði sem í næsta ársfjórðungi á undan. t*au 2^2 ár, sem
liðin eru síðan ófriðurinn byrjaði, hafa vörur þær, sem hjer er um
að ræða, hækkað í verði um rúmlega 80% að meðaltali.
í eftirfarandi yfirliti hefur vörum þeim, sem hjer um ræðir,
verið skift í flokka og sýnt hve mikil verðhækkunin hefur verið að
meðaltali í hverjum flokki, bæði alls síðan ófriðurinn byrjaði og á
síðastliðnum ársQórðungi.
Veröhækkun
júli 1914-jan. 1917 okt. 1916-jan. 1917
Brauð (3 teg.) 65°/o 0°/»
Kornvörur (11 teg.) 99— 5-
Garðávextir og kál (4 teg.)... 72— 6—
Ávextir (5 teg.) 71— -r- 4—
Sykur (5 teg.) 116— 26-
KaíTi (3 teg.) 16— 5—
Te, súkkulaði og kakaó (3 teg.) 41— -f- 1—
Smjör og feiti (4 teg.) 73- 11—