Hagtíðindi - 01.02.1917, Page 10
6
HAGTÍÐINDI
1917
Á hvert barn, sem í barnaskóla gekk, hefur kostnaðurinn að
nieðaltali orðið kr. 40.92, í kaupstöðunum beldur meiri, kr. 43.24,
en utan kaupstaðanna aftur ekki nema kr. 38.52.
Tekjur skólanna eru lítt teljandi nema landssjóðsstyrkurinn og
tillagið úr bæjar- eða hreppssjóði. Landssjóðsstyrkurinn er alls 30
þús. kr. á ári (10 þús. til kaupstaðaskóla, og 20 þús. til annara),
en tillagið úr bæja- og hreppssjóðum var þetta ár rúm 102 þús. kr.
(61 þús. til kaupstaðaskóla og 41 þús. til annara).
Farskólar.
í 149 fræðsluhjeruðum var haldið uppi farskólum, en í 18
fræðsluhjeruðum hefur engin farskólakensla fram farið. í helmingn-
um af þessum farskólalausu fræðsluhjeruðum (9), hefur þó kennari
haft eftirlit með heimafræðslunni, en í 6 fræðsluhjeruðum hefur eng-
in opinber barnafræðsla átt sjer stað. Úr 3 fræðsluhjeruðum hefur
engin skýrsla fengist þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir og mun mega
gera ráð fyrir, að í þeim hafi heldur engin opinber barnakensla átt
sjer stað. — í 6 fræðsluhjeruðum, sem haldið hafa uppi farskóla-
kenslu hefur einnig verið eftirlit með heimafræðslu, þar sem far-
skólakenslan náði ekki til.
í öllum farskólum á landinu nutu alls kenslu 3 362 börn, þar
af 1 786 piltar og 1 576 stúlkur. Af börnunum voru 123 yngri en 10
ára, 39 eldri en 14 ára, en bin á aldrinum 10—14 ára.
Eftir lengd námstímans skiftast börnin þannig:
135 nutu kenslu skemur en 4 vikur
588 — — 4— 7 vikur
1951 — - 8-11 —
445 — — 12—15 —
111 — — 16—19 —
29 — — 20-23 —
44 — — 24—27 —,
en um námstíma 59 barna vantar upplýsingar.
Auk farskólakenslunnar hefur farið fram eftirlit með heima-
fræðslu 327 barna, sem ekki nutu farkenslu.
Barnapróf hafa alls tekið í fræðsluhjeruðunum 4 297 börn, þar
af 3 228 árspróf og 1 069 fullnaðarpróf. Sýnir þessi tala, að mjög
mörg börn hafa ekki notið neinnar opinberrar fræðslu, heldur aðeins
heimafræðslu.
Farskólakennarar hafa alls verið 202, þar af 150 karlar og 52
konur. Af þeim hafa 145 fengið 6 kr. um vikuna auk fæðis, 7 kr.
hafa 16 fengið, 8 kr. 10, en þar yfir 20, 2 hafa fengið minna en 6
kr., 1 hefur ekkert kaup fengið og um 8 er óupplýst.