Hagtíðindi - 01.01.1918, Page 8
4
II A G T í Ð I N U 1
1918
landsstjórnin verðið á sykurbyrgðum sínum 5. nóv. uin 25 aura
kílóið af höggnum sykri og 35 aura kílóið af strausykri, en 16. s. m.
var verðið aftur lækkað niður í það sama sem áður var.
Á feitmeti liefur verðhækkunin síðaslliðinn ársfjórðung orðið
liltölulega mest (17°/o). í byrjun ársfjórðungsins var hámarksverðið
á íslensku smjöri numið úr gildi. Verðið á nýmjólk var hækkað um
miðjan október úr 44 aurum upp í 48 aura. Kjöt og Ilesk liefur
lækkað í verði siðastliðinn ársfjórðung. Nýtt og saltað kindakjöl
hefur þó hækkað, en á kæfu og hangikjöt var sett hámarksverð í
mörgum flokkum í byrjun nóvembermánaðar.
.Hámarksverð á fiski var hækkað í októbermánuði og hefur
það síðan verið á smáfiski og ýsu óslægðu 28 au. kg, slægðu með
liaus 30 au., afhausuðu 32 au., þorski óslægðum 30 au., slægðum
með liaus 32 au., afhausuðum 34 au., smálúðu (undir 15 kg) 40
au., stórlúðu 50 au.
Kol hafa ekki hækkað í verði siðastliðinn ársfjórðung, enda
var verðhækkunin á þeim þá orðin margfalt meiri heldur en á
öðrum vörum. En á þessum ársfjórðungi úthlutaði bæjarstjórnin
kolum þeim, sem liún hafði fengið frá landsstjórninni með niður-
sellu verði eins og aðrar sveitarstjórnir samkvæmt ályktun siðasta
alþingis. Verðið á kolum þessum ákvað hæjarstjórnin misjafnlega
hátt eftir útsvarsliæð manna, 75 kr., 125 kr., 160 kr. og 200 kr.
tonnið, en takmarkað var, hve mikið hver gæli fengið með þessum
kjörum, þannig að yfirleitt var ekki lálið nema 80 kg fyrir hvern
fullorðinn heimilismann og 100 kg fyrir hvert barn innan 7 ára, þó
ekki yfir 1 tonn alls.
Ef verðið á öllum þeim vörum, sem yfirlitið tilgreinir, er talið
100 í júlímánuði 1914 eða rjelt áður en stríðið byrjaði, þá hefur
það verið að meðaltali 183 i janúar 1917, 264 í oklóber 1917 og
274 i janúar þ. á. Hefur þá verðhækkunin numið að meðaltali á
þessum vörum 174°/o síðan slríðið byrjaði, 50% síðan í fyrravetur
og 4% á síðasta ársfjórðungi. Hjer við er þó aðgætandi, að upp á
síðkaslið eru ýmsar af þeim vörum, sem hjer eru taldar, orðnar
ófáanlegar (í janúar þ. á. voru það 10 vörutegundir af 63) og eru
þær taldar með sama verði eins og þær fengust síðast. Þær fylgjast
því ekki lengur með verðhækkuninni og draga meðaltalið niður á
við. En ef slept er þessum 10 vörulegundum, sem ekki fengust
samkvæmt skýrslunum í byrjun janúarmánaðar, og að eins lilið á
þær 53, sem eftir eru, þá hafa þær að meðaltali hækkað í verði
um 183% síðan stríðið byrjaði, um 55°/o síðan í fyrravetur og um
5°/o síðastliðinn ársfjórðung.