Hagtíðindi - 01.02.1968, Qupperneq 1
(3)
Viðskiptaiválaráðuneytið
Rvk.
HAGTÍÐ INDI
GEFIN
53. árgangur
Nr. 2
ÍSLANDS
Febrúar
1968
Ný vísitala framfærslukostnaðar á grunntíma 2. janúar 1968 og í febrúarbyrjun 1968.
í fyrri málsgr. 2. gr. laga nr. 70/1967 er kveðið svo á, að Kauplagsnefnd skuli reikna vísitölu
framfærslukostnaðar í Reykjavík samkvæmt niðurstöðum rannsóknar, sem gerð var á neyzlu
launþega í Reykjavík 1964 og 1965. Skal grunntala þessarar nýju vísitölu miðuð við verðlag í jan-
úarbyrjun 1968, og síðan skal hún reiknuð fjórum sinnum á ári, miðað við byrjun mánaðanna
febrúar, maí, ágúst og nóvember, eftir grundvallarreglum, sem Kauplagsnefnd setur.
Kauplagsnefnd hefur ákveðið, að grunntala hinnar nýju framfærsluvísitölu skuli vera útgjalda-
upphæðin 10.000 kr. í janúarbyrjun 1968. í samræmi við það mun útreikningur vísitölunnar í febrúar-
byrjun 1968 og framvegis sýna, hvað greiða þarf á hverjum tíma fyrir þær vörur, þjónustu o.fl.,
sem í janúarbyrjun 1968 kostaði 10.000 kr. Hafi útgjaldaupphæðin t.d. hækkað í 10.276 kr., verður
vísitalan 103 stig, en 97 stig, ef hún hefur lækkað í 9.726 kr. Við ákvörðun hverrar vísitölu er sleppt
broti úr stigi, hálfu eða minna, en annars hækkað í heilt stig.
Kauplagsnefnd hefur nú ákveðið grundvöll hinnar nýju framfærsluvísitölu og er greinargerð
um hann á öðrum stað í þessu blaði Hagtíðinda. Vísast til hennar.
I eftirfarandi yfirliti er grundvöllur vísitölunnar 2. janúar 1968 og útreikningur hennar í febrúar-
byrjun 1968, ásamt með vísitölum einstakra útgjaldaflokka.
Útgjaldaskipting Vísitölur.
miðuð við 10.000 kr. Janúar
nettóútgj. á grunntíma 1968 = 100
Jan.1968 Febr. 1968 Febr. 1968
A. Vörur ogþjónusta:
Matvörur 2.671 2.693 101
Þar af: Brauð, kex, mjölvara (277) (281) 101
Kjöt og kjötvörur (743) (763) 103
Fiskur og fiskvörur (219) (219) 100
Mjólk, mjólkurvörur, feitmeti, egg (755) (757) 100
Ávextir (235) (228) 97
Aðrar matvörur (442) (445) 101
Drykkjarvörur (kaffi, gosdr., áfengi o.fl.) 345 345 100
Tóbak 262 262 100
Föt og skófatnaður 1.159 1.180 102
Hiti og rafmagn 384 391 102
Heimilisbúnaður, hreinlætisvörur o.fl 795 797 100
Snyrtivörur og snyrting 171 172 101
Heilsuvernd 197 213 108
Eigin bifreið 867 888 102
Fargjöld o.þ.h 159 162 102
Síma- og póstútgjöld 128 128 100
Lestrarefni, hljóðvarp, sjónvarp, skemmtanir o.fl 1.082 1.089 101
Annað 126 128 102
Samtals A 8.346 8.448 101
B. Húsnceði 1.608 1.608 100
C. Gjöld til opinberra aðila (almannatryggingaiðgjald, sjúkra- samlagsgjald o.fl.) 342 342 100
Samtals 10.296 10.398 101
Frádregst: Fjölskyldubætur 296 296 100
Vísitala framfœrslukostnaðar 10.000 10.102 101