Hagtíðindi - 01.02.1968, Síða 14
38
HAGTÍÐINDI
1968
Efnahagur viðskiptabankanna.
f millj. ki. 1964 1965 1966 1967
31. des. 31. des. 31.des. 30. sept. 31. okt. 30. nóv. 31. des.
Eignir
Sjóður 50,3 72,7 67,3 180,4 205,2 152,7 88,1
Seðlabankinn 1.297,5 1.447,2 1.477,9 1.600,8 1.689,0 1.550,4 1.620,6
Erlendar eignir, nettó ... 4-225,9 4-170,2 4-419,7 4-452,7 4-410,0 4-556,8 4-580,0
Yfirdráttarlán o. fl 1.837,4 2.027,9 2.483,2 2.714,5 2.605,2 2.746,9 2.609,9
Afurðalán 941,7 1.427,6 1.642,2 1.467,9 1.624,9 1.690,6 1.689,0
Innlendir víxlar 1.990,4 2.501,3 2.765,6 3.106,3 3.126,8 3.088,5 3.167,8
Endurlánað erlent lánsfé. 166,5 155,0 319,2 279,5 262 6 313,0 384,6
Vaxtabréf l n 243,2 250,7 244,1 244,9
Skuldabréf 1.248,9 1.261,2 1.279,3 1.313,7
Ýmislegt 248,0 300,6 402,3 707,3 769,0 889,8 479,7
Samtals 7.190,9 9.021,8 10.202,6 11.096,1 11.384,6 11.398,5 11.018,3
Skuldir
Hlaupareikn. og
geymslufé 1.075,9 1.262,4 1.278,5 1.270,5 1.267,0 1.325,2 1.088,2
Sparisjóðsávísanabækur . 353,8 476,7 500,7 573,5 594,1 555,4 543,4
Spariinnlán 4.061,8 5.084,4 5.895,8 6.082,0 6.118,8 5.939,6 6.423,7
Endurseld afurðalán . .. 777,0 1.165,1 1.312,8 1.171,9 1.318,2 1.341,3 1.304,0
Lán á viðskiptareikn. o.fl. 19,2 - 76,5 275,3 260,9 354,9 412,7
Ýmislegt 234,1 280,0 287,1 868,8 971,5 1.028,0 303,7
Stofnfé og annað eigið fé. 669,1 753,2 851,2 854,1 854,1 854,1 942,6
Samtals 7.190,9 9.021,8 10.202,6 11.096,1 11.384,6 11.398,5 11.018,3
Ábyrgðir=áb.tryggingar 1.197,5 1.257,2 1.303,1 1.322,3 1.566,6 1.515,0 1.490,7
Sjá'aths. viö töfluna „Þróun peningamála“ á öðrum staö i þessu hefti Hagtíðinda.
Tekjur einstakra starfsstétta á árinu 1966 samkvæmt framtölum 1967.
Frá og með tekjuárinu 1962 hafa, hér í Hagtíðindum, verið birtar töflur, er m. a. sýndu meðal-
tekjur einstaklinga samkvæmt framtölum, síðast fyrir tekjuárið 1965, í febrúarblaði Hagtíðinda
1967. Hér eru birtar samsvarandi töflur fyrir tekjuárið 1966, samkvæmt skattskrám 1967. Áður
birtar skýringar við töflur þessar í heild eru endurprentaðar hér með áorðum breytingum, en að því
er snertir skýringar við einstakar töflur vísast til nóvemberblaðs Hagtíðinda 1965 og til sérstakra
greinargerða um breytingar á töflu 2 og töflum 3 og 4 neðanmáls við þær.
Skýrslugerð þessi tekur aðeins til einstaklinga, ekki til félaga, og í töflum 1—5 hér á eftir eru
helztu niðurstöður hennar fyrir tekjuárið 1966 (framtalsárið 1967). f töflu I, sem sýnir heildartekjur
eftir kaupstöðum og sýslum, eru bæði brúttótekjur og nettótekjur, en í öllum hinum töflunum eru
aðeins brúttótekjur. Með brúttótekjum er hér átt við tekjur samkvæmt III. kafla persónuframtals
án nokkurs frádráttar. f brúttótekjum eru þannig, auk launatekna í peningum og hlunnindum, allar
fram taldar og/eða áætlaðar tekjur: „hreinar tekjur" af atvinnurekstri, húsaleigutekjur af eigin
íbúð og af útleigðu húsnæði, skattskyldar vaxtatekjur, arður af hlutabréfum, hvers konar lífeyrir
og bætur (þar nieð fjölskyldubætur, en ekki barnalífeyrir og meðlög, sem eru eigi færð í III. kafla),
að jafnaði tekjur eiginkonu og tekjur barna (sjá síðar). Nettótekjur eru hins vegar tekjur samkvæmt
III. kafla persónuframtals að frádregnum leyfðum heildarfrádrætti samkv. IV. kafla þess. f frá-
drætti þessum er kostnaður við húseignir, vaxtagjöld, sum opinber gjöld, 50% af launatekjum
konu, sjómannafrádráttur og ýmislegt fleira. Hins vegar er persónufrádráttur ekki meðal þeirra
liða, sem dragast frá brúttótekjum til þess að fram fáist nettótekjur. — Samkvæmt töflu I voru á
árinu 1966 nettótekjur í heild 81,0% af brúttótekjum í heild, á móti 81,7% árið 1965. — Rétt er
að geta þess, að neikvæðar nettótekjur (frádráttur meiri en brúttótekjur) hafa, í töflu 1, ekki verið
reiknaðar til frádráttar, heldur hefur þeim verið sleppt.
Samkvæmt framan sögðu eiga hreinar tekjur af atvinnurekstri að vera innifaldar í brúttótekjum
framteljenda, en frá þeirri reglu eru imdantekningar, sem gera það að verkum, að brúttótekjur sumra
starfstétta samkvæmt töflum 2—5 eru ekki sambærilegar við tekjur annarra starfsstétta. Hér er um
það að ræða, að ,,hreinar tekjur" af atvinnurekstri eru oftaidar í brúttótekjum persónuframtals.