Hagtíðindi - 01.06.1969, Blaðsíða 17
1969
HAGTlÐINDl
109
Hér fara á eftir upplýsingar um fjárhagsafkomu Þjóðleikhússins þessi ár:
Rekstrargjöld á árinu, þús. kr 1965 23.239 1966 28.391 1967 28.208
Tekjur á árinu, þús. kr.: af aðgöngumiðasölu 11.807 12.040 8.239
af skemmtanaskatti 7.335 6.900 8.100
aðrar tekjur 1.133 1.405 1.525
Tekjuhalli, þús. kr 2.964 8.046 10.344
Framlag ríkissjóðs upp í tekjuhalla, þús. kr. ... 4.153 6.173 7.389
Tveir skólar eru reknir af Þjóðleikhúsinu: Leiklistarskóli Þjóðleikhússins, sem tók til starfa
árið 1950, og Listdansskóli Þjóðleikhússins, sem tók til starfa 1952.
Leikfélag Reykjavikur var stofnað árið 1897, og tók til starfa seint á því ári í húsi Iðnaðar-
mannafélagsins, sem þá var nýreist, og hefur verið þar til húsa síðan. Síðan 1959 hefur Leikfélagið
rekið leiklistarskóla. Áður en hann var stofnaður höfðu einstakir leikarar einkaleikskóla á sínum
vegum. — Áhorfendasæti í Iðnó eru 230 talsins. Af alls 274 sýningum L. R. árið 1965 voru 42 utan
Reykjavíkur, 1966 voru 40 sýningar utan Reykjavíkur af alls 257 sýningum, en 1967 var engin
sýning utan Reykjavíkur. Tala starfsmanna Leikfélagsins hefur verið sem hér segir í árslok:
1965 1966 1967
Fastráðnir leikarar 9 10 8
Lausráðnir 40 48 48
Aðrir listamenn 7 9 8
Aðrir starfsmenn, fastráðnir 7 9 9
Aðstoðarmenn, lausráðnir 23 25 26
Alls 86 101 99
Hér fer á eftir yfirlit um fjárhagsafkomu Leikfélags Reykjavíkur leikárin 1964—65, 1965—66
og 1966—67 (leikárið er frá 1. sept. til jafnlengdar næsta ár):
Rekstrargjöld, þús. kr.........
Tekjur, þús. kr.:
af aðgöngumiðasölu .......
framlag borgarsjóðs, þús. kr.
framlag ríkissjóðs, þús. kr. .
1964—65 1965—66 1966—67
5.636 6.811 8.064
3.831 4.640 5.406
900 1.200 2.000
200 300 500
Bandalag íslenzkra leikfélaga var stofnað árið 1950. Tilgangur þess cr m.a. að annast alls konar
fyrirgreiðslu fyrir meðlimi sína, eftir því sem efni og aðstæður leyfa. Hefur bandalagið flest leikfélög
utan Þjóðleikhússins, Leikfélags Reykjavíkur og Leikfélags Kópavogs innan sinna vébanda. Árið
1965 fengust skýrslur yfir 36 starfandi leikfélög, árið 1966 voru þau 39[og 1967 35. Þó munu eitthvað
fleiri leikfélög vera innan B.Í.L., einkum þau, sem starfa óreglulega. Þannig voru 46 leikfélög í
B.Í.L. 1967. Af starfandi leikfélögum sýndu flest aðeins eitt leikrit á hverju leikári, en þó voru að
meðaltali 5 eða 6 leikfélög, sem sýndu fleira en eitt leikrit.
Tafla 5. Hljómleikahald 1965—67.
1965 1966 1967
Sinfóniu- hljómsveit Tónlistar- félag Sinfóníu- hljómsveit Tónlistar- félag Sinfóníu- hljómsveit Tónlistar- félag
Tala hljómleika Tala hljómleikagesta 34 24.839 20 13.000*) 38 30.261 20 12.000*) 40 28.468 20 12.000*)
*) Áætluð tala.
Sinfóniuhljómsveit íslands var stofnuð árið 1950. Fær hún rekstrarstyrki frá ríkissjóði, Reykja-
víkurborg, Ríkisútvarpinu og Þjóðleikhúsinu. Frá 1950 til 1961 voru hljómleikar haldnir reglulega í
Þjóðleikhúsinu, en þó féll hljómleikahald niður árið 1956 sökum endurskipulagningar á hljóm-
sveitinni. Árið 1961 tók Ríkisútvarpið við rekstri hljómsveitarinnar fyrir hönd þeirra aðila, semað
henni standa, og síðan hefur hún haldið hljómleika í Háskólabíói. Hljómsveit Reykjavíkur, sem
starfaði á árunum 1925 til 1949, var fyrirrennari Sinfóníuhljómsveitar íslands. — Tala hljóðfæra-
leikara í árslok 1965 var 81, þar af 45 fastráðnir og 36 lausráðnir. í árslok 1966 voru samsvarandi