Búskapur hins opinbera 1990-1998 - 01.11.1999, Blaðsíða 5
Formáli
Töfluhefti þetta gefur talnalegt yfirlit um búskap hins opinbera. Með búskap
hins opinbera er átt við starfsemi ríkis, sveitarfélaga og almannatryggingakerfis.
Hér er þó undanskilin starfsemi fyrirtækja og sjóða í opinberri eigu enda er slíkri
starfsemi að jafnaði ætlað að standa undir sér með sölu á vöru eða þjónustu á
almennum markaði.
I ritinu er meðal annars að finna yfírlit um tekjur, útgjöld og afkomu hins
opinbera. Birt eru sundurliðuð yfírlit og tölur dregnar saman fyrir hið opinbera í
heild. Jafníramt er að fínna ítarlega sundurliðun á tekjum og útgjöldum ríkissjóðs
og sveitarfélaga á árunum 1990-1998 á samræmdum grunni. Þá er að fínna yfirlit
um skuldir og kröfur hins opinbera svo fátt eitt sé nefnt.
Rétt er að vekja athygli á því að í þessu riti líkt og í síðustu fjórum er fylgt
þeirri breyttu skilgreiningu á umfangi hins opinbera sem kynnt var i Búskap hins
opinbera 1992-1993, sem út kom í apríl 1994. Eldra uppgjör um fjármál hins
opinbera hefur því verið leiðrétt til samræmis við þessa nýju skilgreiningu. Hér er
um að ræða ýmsar viðbætur við tekjur og útgjöld hins opinbera, sem teljast að réttu
með samkvæmt þjóðhagsreikningakerfí Sameinuðu þjóðanna. Þessar breytingar
tengjast breytingum á reikningsskilum ríkisins, sem nú hafa verið samþykktar á
Alþingi. A sínum tíma var hins vegar ekki unnt að taka tillit til allra þeirra
breytinga sem nýjar fjárreiður ríkisreiknings hafa í för með sér. Við uppgjör ársins
1998 er því tekið tillit til þeirra viðbótartekna og útgjalda hins opinbera sem ekki
voru talin með við ofangreindu leiðréttingu. Nær þessi leiðrétting nú, sem ekki er
stór í sniðum, aftur til ársins 1990, þannig að um samræmt uppgjör er að ræða fyrir
tímabilið 1990-1998.
Uppistaða ritsins er talnaefni fyrir árin 1990-1998. Jafhframt er að fínna talna-
efni sem nær allt aftur til ársins 1945. Gerð er grein fyrir þessu talnaefni í fyrsta
hluta ritsins og þar er lögð áhersla á búskap hins opinbera í heild.
Áður hafa komið út níu rit um sama efni; árin 1983, 1986, 1991, 1993, 1994,
1995, 1996, 1997 og 1999. Ritið sem gefíð var út í mars 1999 spannaði tímabilið
1990-1997. Nú bætist við árið 1998, auk þess sem nokkrar leiðréttingar eru gerðar
aftur til ársins 1990 eins og áður segir. Ritið kemur út árlega, en að þessu sinni er
áhersla þess fyrst og fremst á talnaefni fyrir tímabilið 1990-1998 en minna áhersla
lögð á greiningu og túlkun á þætti hins opinbera í efnahagsstarfseminni eins og í
fyrri ritum. Á vegum Þjóðhagsstofnunar hefur Jóhann Rúnar Björgvinsson einkum
unnið að gerð þessa rits, tekið saman talnaefnið og samið skýringar.
Þjóðhagsstofnun
í nóvember 1999
Þórður Friðjónsson
3