Búskapur hins opinbera 1990-1998 - 01.11.1999, Side 5

Búskapur hins opinbera 1990-1998 - 01.11.1999, Side 5
Formáli Töfluhefti þetta gefur talnalegt yfirlit um búskap hins opinbera. Með búskap hins opinbera er átt við starfsemi ríkis, sveitarfélaga og almannatryggingakerfis. Hér er þó undanskilin starfsemi fyrirtækja og sjóða í opinberri eigu enda er slíkri starfsemi að jafnaði ætlað að standa undir sér með sölu á vöru eða þjónustu á almennum markaði. I ritinu er meðal annars að finna yfírlit um tekjur, útgjöld og afkomu hins opinbera. Birt eru sundurliðuð yfírlit og tölur dregnar saman fyrir hið opinbera í heild. Jafníramt er að fínna ítarlega sundurliðun á tekjum og útgjöldum ríkissjóðs og sveitarfélaga á árunum 1990-1998 á samræmdum grunni. Þá er að fínna yfirlit um skuldir og kröfur hins opinbera svo fátt eitt sé nefnt. Rétt er að vekja athygli á því að í þessu riti líkt og í síðustu fjórum er fylgt þeirri breyttu skilgreiningu á umfangi hins opinbera sem kynnt var i Búskap hins opinbera 1992-1993, sem út kom í apríl 1994. Eldra uppgjör um fjármál hins opinbera hefur því verið leiðrétt til samræmis við þessa nýju skilgreiningu. Hér er um að ræða ýmsar viðbætur við tekjur og útgjöld hins opinbera, sem teljast að réttu með samkvæmt þjóðhagsreikningakerfí Sameinuðu þjóðanna. Þessar breytingar tengjast breytingum á reikningsskilum ríkisins, sem nú hafa verið samþykktar á Alþingi. A sínum tíma var hins vegar ekki unnt að taka tillit til allra þeirra breytinga sem nýjar fjárreiður ríkisreiknings hafa í för með sér. Við uppgjör ársins 1998 er því tekið tillit til þeirra viðbótartekna og útgjalda hins opinbera sem ekki voru talin með við ofangreindu leiðréttingu. Nær þessi leiðrétting nú, sem ekki er stór í sniðum, aftur til ársins 1990, þannig að um samræmt uppgjör er að ræða fyrir tímabilið 1990-1998. Uppistaða ritsins er talnaefni fyrir árin 1990-1998. Jafhframt er að fínna talna- efni sem nær allt aftur til ársins 1945. Gerð er grein fyrir þessu talnaefni í fyrsta hluta ritsins og þar er lögð áhersla á búskap hins opinbera í heild. Áður hafa komið út níu rit um sama efni; árin 1983, 1986, 1991, 1993, 1994, 1995, 1996, 1997 og 1999. Ritið sem gefíð var út í mars 1999 spannaði tímabilið 1990-1997. Nú bætist við árið 1998, auk þess sem nokkrar leiðréttingar eru gerðar aftur til ársins 1990 eins og áður segir. Ritið kemur út árlega, en að þessu sinni er áhersla þess fyrst og fremst á talnaefni fyrir tímabilið 1990-1998 en minna áhersla lögð á greiningu og túlkun á þætti hins opinbera í efnahagsstarfseminni eins og í fyrri ritum. Á vegum Þjóðhagsstofnunar hefur Jóhann Rúnar Björgvinsson einkum unnið að gerð þessa rits, tekið saman talnaefnið og samið skýringar. Þjóðhagsstofnun í nóvember 1999 Þórður Friðjónsson 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Búskapur hins opinbera 1990-1998

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búskapur hins opinbera 1990-1998
https://timarit.is/publication/1011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.