Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Page 4
4 Nýtt S. O. S.
skip í næturmyrkri og þoku, heldur hvert
það brak, sem kynni að fljóta á sjónum.
Hjá skerminum er bergmálsdýptarmælir-
inn, er mælir sjávardýpið.
Calamai' skipstjóri hristir höfuðið. Mik-
ið var maður nú ánægður með lífið og til
veruna í þá daga. Tuttugu ára gamall og
lífið framundan. Þá bar maður ekki á-
byrgð ;i skipi með 60 þús. hestafla vélum,
sem kostaði þrettán milljarða líra. Skip
með 1284 farþegaklefum, þrem sundlaug-
um, þrem kvikmyndasölum og kapellu,
sem var á stærð við litla kirkju . . .
*
Klukkan 25,00. „Signor Commandante,“
h.rópar stýrimaðurinn við radartækið.
„Þarna kemur einhver á móti okkur. Lík-
lega stórt skip. Hraði tuttugu hnútar. Eða
jafnvel meira —
Calamai skipstjóri skundar að radar-
skerminum ásamt Franchini stýrimanni.
„Skipið nálgast stefnu okkar, en fer
hálfri mílu norðar.“
„Fjarlægðin?“ spyr Calamai.
„Níu til tíu sjómílur."
Nú sést greinilega, að skipið færist inn
í miðju hringsins. Það þýðir, að skipið
er nú nákvæmlega í stefnu á leið Andrea
Doria.
„Skipun til loftskeytamannsins,“ tilkynn
ir Calamai. „Sendið ókunna skipinu
skeyti; Ef við höldum sömu stefnu er
hætta á árekstri. Er móttaka skeytis frá
oss hefur verið viðurkennd, munum vér
víkja á stjórnborða. Skipstjóri á Andrea
Doria.“
Annar og þriðji loftskeytamaður bíða
óþolinmóðir eftir svari.
„Þeir eru ekkert að flýta sér,“ sagði
annar loftskeytamaður. „Þetta lítiur ekki
vel út. Þeir halda í átt á stefnu okkar.“
„Getum við þá ekki vikið á stjórnborða
samkvæmi reglunni?“ sagði þriðji loft-
skeytamaður.
„Jú, en ókunna skipið er nokkuð til
hægri við okkur. Við siglum þá ef til vill
fyrir stefni þess? Hlustaðu! Loftskeyti lrá
skipinu!"
Hann tekur á móti skeytinu.
„Staðfestum móttöku skeytis yðar. Nord
ensen, skipstjóri á „Stockholm.““
„Gott,“ sagði Calamai skipstjóri. „Þá
beygir liann líklega til norðurs, og fer
fram hjá okkur á stjórnborða. Við getum
þvt ekki vikið á stjórnborða úr því sem
komið er.“
*
Klukkan er 23,05. „Stockholm“ heldur
áfram í austurátt án þess að draga úr hrað-
anum. Þriðji stýrimaður, Carsteins-Johann-
sen fer í annað sinn inn í kortaklefann til
jness að færa inn stefnuna. Enginn tekur
að sér störf hans í brúnni á meðan. Nord-
ensen skipstjóri hafði farið af stjórnpalli
klukkan 21,40. Nú hefur þriðji stýrimað-
ur sagt honum fréttirnar og liann kemur
þegar í stað upp í brúna.
„Hvar var Andrea Doria miðuð síðast?
spurði skipstjóri Carstens-Johannsen, er