Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Qupperneq 14

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Qupperneq 14
i4 Nýtt S. O. S. White Star-línunni, sigldi vitaskipið við Nantucket í kaf. Fyrir tveim árum, í október 1954, mun- aði minnstu, að sænska farjregaskipið „Kungsholm" sigldi „Italia" í kaf á svip- uðum slóðum. Svo að segja á síðustu mín- útu tókst að hindra árekstur. Calamai skipstjóri hugsar: „Það er ekki á góðu von. Yið erum allir reknir áfram miskunnarlaust. Hnefinn rekinn í hnakk- ann á okkur. Hnefi ferðaáætlunarinnar og hnefi stjórnarinnar. Hver klukkustund er reiknuð í háum fjárupphæðum. Ferðaá- ætlunin verður að halda, hvað sem Jrað kostar. Skipin eiga að halda áætlun svo ekki skeiki klukkustund, hvort sem Jrau hreppa storm, Jioku eða blindhríð. „Ratsjártækið er óvirkt," tilkynnir einn stýrimannanna. Rafstraumurinn fór óðum minnkandi. Calamai skipstjóri sá Jiað á lömpunum á bátaþilfarinu. Hann yppti öxlum. Cala- mani hefur ekki sérstaklega mikið dálæti á radamum. Hann minnist niðurstöðu sjó- réttarins í Hamborg ,er taldi sannað, að slcipin „Schauenburg“ og „Jakara“ hefðu rekizt á á Ermarsundi einmitt vergna Jiess, áð þau voru búin radartækjum! Einhvers staðar úr skipinu berst þung- ur skarkali. „Kannske er það Chrysler- vagninn í bílageyslunni, sem er að veltast um kolI,“ sagði Franchini. „Hann er tryggður fyrir 75 milljónir líra.“ í vestri er skotið þrem rakettum. Fleiri skip koma á vettvang. Calamai þykist Jiess nú fullviss, að flestum faijiegunum verði bjargað. Nema fólkið, sem hefur lokazt inni niðri í skipinu. Skemmtigöngujiilfar Andrea Doria liggur nú í sjó. Nú er það aðeins afturskipið sem gnæfir hátt upp úr sjó. Viðgerðarskip Bandaríkjaflotans, „St. Joseph P. Kelly“ tilkynnir komu sína. í lofti heyrist flugvéladynur. Þar eru á ferð koptar, er um var beðið, til Jiess að sækja l'ólk, er hefur slasazt og koma með lækna. Vegna dimmviðris heppnast aðeins að setja læknana um borð, en ekki að taka á móti særðum farþegum. „Hve margir farþegar eru enn um borð?" spurði Calamai skipstjóri fyrsta stýrimann, er bar að í þessum svifum. „Líklega sem næst. fimm hundruð far- begar og þrjú hundruð skipverjar." Calamai skipstjóri reiknar í huganum. 140 manns af áhöfninni er ætlað pláss í björgunarbátunum stjórnborðsmegin. En Jiáð hefur ekki heldur farið fram hjá hön- um, að í æsingunni eftir áreksturinn höfðu nokkrir matsveinar og léttadrengir stolizt frá borði. F.n engir sannir sjómenn, engir sannir skipverjar á Andrea Doria voru meðal þeirra. Þjónarnir gera sér allt far um að hjálpa farjregunum. Alltaf er verið að koma með kaðla og net, svo farþegum gangi sem greiðlegast að komast í bátana. í vélarúmi er hver maður á sínum stað. Úr öllum hátölurum Andrea Doria hljómar nú rödd skipstjórans: „Farið að öllu með ró og stillingu! Það er engin ástæða til ótta. Björgunarbátar munu korna og taka alla, sem enn eru um borð!“ Þótt undarlegt sé, er þessi tilkyniiing flutt aðeins á ítölsku, þó áttatíu af hundr- aði farþeganna séu ekki ítalir. Yfirþjónninn, F.ra Serra, kemur upp í brú: „Nokkrir farþegar á fyrsta farrými heimta, að farangur þeirra sé borinn út og látinn í bátana." Calamai skipstjóri trúir ekki sínum eig- in eyrum. „Segið Jieim, að þetta sé útilok- að,“ svaraði hann stillilega. „Vissulega, Signor Commandante, við

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.