Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 36
36 Nýtt S O S
EFNI NÆSTA HEFTIS:
Að lokum bíður gálginn
Semper paratus! Ávallt viðbúinn, er letr-
að sem kjörorð í fána strandbæzlu Banda-
ríkjanna. Strandgæzla þessi tekur öllum
öðrum fram að öllunr búnaði. Hún hef-
ur yfir að ráða hundruðum hraðbáta, sem
eru búnir ratsjá, talstöðvum og liríðskota-
byssum. Þúsundir sjómanna starfa í þjón-
ustu strandgæzlunnar og hún lrefur yfir
að ráða fjölda kopta og sjóflugvéla, og
strandvarðstöðvarnar eru eins og þéttrið-
ið net frá Kanda til Mexikó. Strendurnar,
sem liggja jafnt að Atlantshafi sem Kyrra-
liafi eru varðar svo sem bezt verður á kos-
ið. Strandgæzlan berst gegn smyglurum,
landhelgisbrjótum og er til taks, ef sjó-
slys ber að höndum undan ströndinni.
Það var Alexander Hamilton, þáverandi
fjármálaráðlterra Bandaríkjanna, sent skipu
lagði hinar fyrstu strandvarnir hins unga
ríkis árið 1791. Fyrstu átta árin voru þetta
einungis litla skútur, einmastraðar, búnar
frumstæðum vopnum. Þær voru þá einu
vopnuðu skipin í þjónustu Bandaríkjanna.
Nokkru síðar fékk tollgæzlan hraðskreið-
ar skonnortur og var nú betur í stakk bú-
in til þess að hefja baráttu gegn smygl-
urum, þrælasölum og sjóræningjum, er
gerðu sig heimakomna við strendur þessa
víðlenda ríkis. Þá var nú líf í tuskunum!
Og nú bregðum við okkur um borð í
frægasta strandgæzluskip þeirra tírna og
dveljum einn dag meðal þeirra hraustu
drengja, er börðust undir kjörorðinu:
Semper paratus! Ávallt viðbúinn!