Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Síða 21

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Síða 21
Nýtt S. O. S. 21 Allt í einu brakar harkalega einhvers- staðar í gólfinu. Hnoðnaglar spretta upp eins og korktappar undan vatnsþrýstingn- uin. Og nú streymir sjórinn inn í skipið fyrir ofan dælurnar. Mennirnir hósta og spúa. „Við skulum að minnsta kosti deyja undir heiðum himni, skipstjóri,“ segir einn vélamannanna. „Við skulum ekki láta kæfa o.kkur í óloftinu. Bara sjá sólina einu sinni enn. Svo er mér ekkert að van- búnaði . . .“ Calamai skípstjóri horfir á menn sína stjörfum augum. Hvert orð hæfir hann í hjartastað. Hann veit ekki á sig sök á því, er skeð hefur. Hann hefur gætt skyldu sinnar í hvívetna. Hann var nauðbeygður til að víkja til vinstri, af því hann sá Stockholm koma á móti sér frá hægri. Nú er annarra að sjá fyrir því, hvort Andrea Doria verður lyft frá hafsbotni einhvern- tíma seinna. Honum er ljóst, að um leið og skipið hallast lítið eitt meira, brestur botninn í skipinu og sjórinn flæðir inn í vélarúmið og hinir tápmiklu menn hans munu láta þar líf sitt. Calamai hugsar: Ef vélamennirnir far- ast, ferst ég líka. F.n hvaða tilgangi þjón- aði það? „Farið upp á þilfar, piltar! “ skipaði hann og Iiélt í áttina til stigans. „Eg sendi „William Tliomas“ loftskeyti urn, að þeir eigi að hafa bát tilbúinn handa ykkur —“ Er Calamai skipstjóri kemur í brúna, fær annar stýrimaður honum skeyti. „Skeyti til yðar beint frá Rónt.“ Calantai skipstjóri les: „Skipun frá framkvæmdastjóra ítalska skipaútgerðarfélagsins Cassiani til Calamai skipstjóra: Yfirgefið skip yðar, ef þér álítið frekari dvöl þar lífshættulega! Cassiani." Calamai skipstjóri lætur færa sér lista yfir þá, sem enn eru í skipinu. Hann merkir við átta nöfn. „Segið Ameríkan- anum að senda okkur bát!“ „Þér hafið rnerkt við nafn mitt,“ segir annar stýrimaður og má kenna nokkurrar þykkjti í röddinni. „Já, þér og sjö aðrir yfirgefið skipið. Atta manns! Fortunato hefur rangt fyrir sér. Það geta gerzt tæknileg undur. Hafið bát til reiðu í nánd við okkur! F.f það versta skyldi ske yfirgefum við líka ,,Doriu“ okkar.“ Nokkrum mínútum síðar heldur litli vélbáturinn á brott. Þá hafði sjórinn flot- ið upp að aðaljjilfari Andrea Doria. FJl- efu menn eru enn um borð í skipinu. * Calamai skipstjóri berst til þrautar. Skömmu áður en rafstraumurinn rofnaði með öllu náði loftskeytamaðurinn sam- bandi við Rode Island. Samkvæmt beiðni skipstjórans fara tveir aflmiklir dráttar- bátar úr sjóhernum frá Rhode Island til þess að freista þess að draga Andrea Doria til hafnar. í iðrum skipsins rvmja dælurn- ar ennþá. Svo heyrir umheimurinn ekkert meira frá Andrea Doria. Loftskeytastöð skipsins þegir. Kl. 6,45. Loftskeytamaðurinn á Stock- holm tilkynnir: „Ekkert loftskeytasamband lengur við Andrea Doria. Getur sennilega ekki notað loftskeytatækin lengur." Kl. 6,yO. Strandgæzlan tilkynnir: „An- drea Doria er með mikinn hliðarhalla. Neðsta þilfar á kafi í sjó.“ Á stjórnpallinum standa nokrkir menn og verða að ríghalda sér. Þessir menn eru skipstjórinn, tveir stýrimenn og nokkrir hásetar. Þeir horfa í xesturátt, því þaðan eiga þeir von á dráttarskipunum á hverri mínútu. Einn stýrimannanna er að störf-

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.