Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Page 27
Nýtt S. O. S. 27
ia. Stjórnborðsmegin hanga björgnnarbát-
arnir í uglunum. Númer bátanna og skips-
nafn er greinilega hægt að lesa.
í gegnum glugga efstu svefnklefanna sést
inn í skipið. Á fatasnögunum hangir ýni-
iskonar klæðnaður. Hálftæmdar töskur eru
á reki í svefnklefunum.
í einum klefanna eru uppþornuð blóm
á floti — dimmrauðar rósir.
Á neðra þilfari sjá kafararnir, að glugga-
rúður hafa brotnað af þrýstingnum. Þeir
áræða ekki að hætta sér þar inn. Soghljóð
mikil heyrast í iðrum skipsins. Kafararn-
ir skríða eftir skemmtigönguþilfarinu.
í afturlyftingu er fáninn dreginn að
hún. Hann liggur nærri lóðréttur í sjón-
um, eins og hann sé að teygja sig í átt-
ina til ljóssins . . .
Kafararnir taka kvikmyndir af flakinu,
en að því loknu búast þeir til ferðar upp.
Veröld lifenda tekur á móti þeim.
Daginn eftir fer kvikmyndaleiðangur
niður í djúpið. Einn kafaranna er stúdent
frá Columbia-háskólanum, tuttugu og
þriggja ára gamall, William F.dgarton að
nafni. Næsta dag á að veita honum dokt-
orsnafnbót. Hann fer fyrstur niður með
kvikmyndatökuvélina.
Þegar ekki bólar á honum til baka að
hálftíma liðnum fara hinir kafararnir nið-
ur. Þeir finna Edgarton niðri í skipinu.
Hann er látinn. —
Lífgunartilraunir eru gerðar um borð í
leiðangursskipinu, en þær bera ekki árang-.
ur. William Edgarton er síðasta fórn Án-
drea Doria.
*
Á meðan börn, mæður og feður syrgja
látna ástvini beinist hugur fólks í ótal
löndum að einum og sama brennipunkti:
Það heimtar einhvern sekan. Jafnvel þótt
enginn reynist raunverulega sekur!
Áreksturinn varð úti á rúmsjó. Útgerð-
arfélagið „Italia“, sem var eigandi Andrea
Doria, höfðaði mál gegn „Sænsk-amerísku
línunni," eiganda Ssockholm og krafðist
25 millj. dollara skaðabóta.
Sænska útgerðarfélagið lagði sín skjöl á
borðið Iijá United District Court (borgar-
dómstóll) í New York og krafðist sýknu.
Málið var útkljáð fyrir nefndum dóm-
stóli. Hvorki fleiri né færri en 50 lögfræð-
ingar fjölluðu um málið fyrir skipsfélög-
in og farþegana. Auk þess var nefnd sér-
fræðinga falið að rannsaka tildrög slyss-
ins og áttu sæti í henni meðal annarra,
É. L. Cochrane, varaðmíráll í flota Banda-
ríkjanna, H. C. Shepheard, aðmíráll, E.
M. Webster, skipherra, og H. L. Leward,.
prófessor í siglingarétti. Réttarhöldin yf-
ir skipstjórunum, öðrum yfirmönnum og
hásetum , stóðu mánuðum saman. Málinu
lauk með sáttargerð, er bæði skipafélögin
samþykktu og tryggingarfélögin.
Gjörðarbækurnar eru nokkur þúsund
síður. Auk þess voru vitnaleiðslurnar tekn-
ar upp á nokkur hundruð segulbandsspól-
ur.
En niðurstaða rannsóknanna breyth'
ekki þeirri staðreynd, að 50 manns létu
lífið á Andrea Doria og 5 hásetar á Stock-
holm.
Sérfræðingar í siglingarétti og lögfræð-
ingar komust að þeirri niðurstöðu, er hér
segir:
Piero Calamai, skipstjóri, hefur ekki get-
að vikið á stjórnborða, því hann óttaðist,
að með því lenti hann þvert fyrir leið
Stockholms. Tveim skilaboðum hans til
skipstjóra Stockholms um að breyta stefnu
Iiefur heldur ekki verið svarað. Hann
neyðist því til að taka það ráð, að víkja
'á bakborða, gagnstætt siglingareglum.
Hinsvegar hefur Nordensen skipstjóri á