Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Síða 33
Nýtt S. O. S. 33
fangi með að ýta þeim niður a£ inngang-
inum.
Allt í einu sá lestarstjórinn, livar tvær
gleraugnaslöngur höfðu hreiðrað um sig
ofan á kolunum í kolavagninum. Hann
hrópaði viðvörun til kyndarans, er slanga
renndi sér ofan af kolabingnum og hóf sig
til árásar.
UPP Á LÍF OG DAUÐA.
ICyndarinn kastaði frá sér skörungnum,
sem var allt of viðamikið vopn í návígi
og greip skúffu. Með tiana að vopni lagði
hann til atlögu.
Ghandi þreif í lestarhemilin og lestin
nam samstundis staðar. Þá greip hann lít-
inn járnkarl og flýtti sér til hjálpar félaga
sínum. Slangan séri sér þá að honum og
í sömu andrá greip Soga tækifærið. Hann
hjó skúffunni í haus slöngunnar og þrýsti
henni niður á gólfið. Lestarstjórinn var þá
ekki seinn á sér; hann greiddi slöngunni
mikið högg og hún lá eftir með brotinn
haus.
Onnur kobraslangan var nú komin í
námunda við þá, og brátt sást sú þriðja og
fjórða á kolabingnum. Mennirnir í stjóm-
klefanum börðust upp á líf og dauða.
Þeir hlupu fram og aftur og greiddu ó-
vættinum mikil högg. Þeim tókst að leggja
tvær að velli í viðbót. Kyndarinn reif upp
fellihurðina að eldhólfinu, og slöngurnar,
sem eru næturdýr, blinduðust. En aftur og
aftur glytti í gráðugar glyrnur í myrkr-
inu. Ghandi greip til þess eina ráðs, sem
tiltækt var. Hann lét lestina renna af stað
og staðnæmdist, er vatnið var orðið svo
djúpt, að lengra mátti ekki fara án þess,
að vatnið flasddi upp í eldana. Nú gátu
ekki fleiri dýr skriðið upp í lestina. En þá
var eftir að berjast við slöngurnar, sem
komnar voru í lestina. Tvísýnn bardagi,
þar sem dauðinn beið á næsta leiti, bar-
dagi án miskunnar!
VONLAUS AÐSTAÐA.
Hægt og hægt sniglast tíminn áfram.
Klukkustundirnar líða. Barátta samfara
ægilegri taugaspennu. Enn rigndi, flóðið
hækkaði. Þar að auki mátti búast við, að
uppfyllingin brysti á hverri stundu vegna
vatnsþrýstingsins. Þá var öllum búin vot
gröf. Örvilnun þeirra félaga náði hámarki.
„Það hefði líklega verið betra,“ sagði
kyndarinn um morguninn, ,,að slöngurnar
hefðu gert út af við okkur strax. Það hefði
að minnsta kosti tekið fljótt af! Sjáðu
þama; veginum hefur skolað burt á beygj-
unni fyrir framan okkur! Við erum hér
innikróaðir."
Ghandi kinkaði kolli. Hann hafði veitt
þessu athygli fyrir löngu. Þrátt fyrir það,
gætti hann þess vandlega, að eldrarnir
slokknuðu ekki, eins og björgun þeirra
væri undir því komin. „Þegar birtir af
degi verður okkar leitað,“ mælti hann von-
góður. „Þeir senda leitarflugvélar.“
Hann hafði rétt að mæla.
Nokkrum klukkustundum síðar var öll-
um, er í lestinni voru þessa ömurlegu nótt,
bjargað af koptum og bátum frá sjóhern-
um.
Útgefandi: Nýtt S. O. S., Vestinannaevjnm. Ritstjóri'
og ábyrgðarinaður: Gunnar Sigurmundsson. — Verð
hvers heftis kr. 12,00. — Afgreiðsla: Brimhólabraut
24, Vestmannaeyjum. — í Reykjavík: Óðinsgötu 17A,
Sími 14674. — Prentsmiðjan Eyrún h. f.