Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Blaðsíða 33

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Blaðsíða 33
Þ J Ó Ð I N 175 riddaraskapur var ekki dauöur í henni veröld. Hinsvegar þurfti hún að horga 5 pund áður en hr. Butters- by, með takmarkraðri ábyrgð, vildi leysa vandræði hennar, og þar ryki lielmingurinn af liöfuðstól hennar. Það var áhættu-spil. Þessi hugsun var svo geigvænleg, að Lísa ákvað að híða átekta. Svaraði liún því livorki hr. Buttersby né sendi auglýsingu. Hún eyddi tímanum í það eitt að sækja um kennara- og matreiðslukonu- stöður, en allt kom fyrir ekki. Annað hréf frá frænku hennar vakti hana óþægilega til meðvitund- ar um raunhæfni lifsins, og með næsta pósti kom áminning frá lir. Buttersby. Frænka hennar skrifaði, að hún hefði orðið að selja síðustu ættardýr- gripina til að leysa út ónýta ávísun útgefna af bróður hennar. Lísa var fegin því, að hann skyldi þó hafa gefið ávísunina út á eigið nafn en ekki einhvers kunningjans, en henni fannst þó hlífisskildi nógu lengi hald- ið fyrir hann. T. Buttersby (með takmarkaðri á- byrgð) virtist frekar hnugginn en undrandi yfir því að hafa ekkert lieyrt frá henni. Hann benti henni á, að ef það væru peningarnir, sem stæðu í veginum fyrir samkomulags- umleitunum þeirra í milli, þá myndi hann fara eins vægt í sakirnar og frekast væri unnt. Hann fullvissaði hana um, að honum væri umhugað um velfarnað hennar, og að hún þyrfti ekki að eyða peningum til þess að láta innritast. Hann myndi setja hana i samband við þokkalegan aug- lýsanda, ef hún kærði sig um, en þá þyrfti hún að koma og tala við sig persónulega. Það kostaði aðeins 5 skildinga. Augsýnilega var tími til kominn að kynnast hr. Buttersby með tak- markaðri ábyrgð, og Lísa héít til London í annað sinn undir tannpinu- yfirskini. Hr. Buttersby (með takmarkaðri á- byrgð) reyndist að vera lítill, feitur og sköllóttur maður í lítilli skrifstofu innar af mjög dimmri biðstofu uppi á 6. hæð í liúsi hálægt Fleet Street. Hann sýndi á sér ánægjusnið við komu Lísu, en hve ánægður hann var lét hann liana ekki verða vara við. Merkilegt, hugsaði hr. Buttersby með sjálfum sér, hvað vill hún út á þessa galeiðu? Furðulegt, að hún skuli ekki vita af því sjálf, að hún getur náð í hvaða mann sem vera skal með þessu útliti. Hann var allur á hjólum fyrir Lísu. Iiann sagði henni og að sönnu, að stúlkur eins og hún væru fáséðar á ski’ifstofunni og að honum dytti ekki í hug að kynna hana fyrir nema allra heztu viðskiptavinum skrifstofunnar. Síð- an.bætti hann við og bankaði með blýantinum á framtennurnar: — Það eru nokkrir, sem gætu kom- ið til mála, en ég held, að þeir séu samt ekki alveg eftir yðar höfði. Við skulura sjá — ég hefi hérna mjög góðan mann — hann er metódisti — og þeir kváðu vera góðir eiginmenn, — en bann hefur áhuga fyrir garð- rækt, og það hafið þér ekki, segið þér, svo það er kannske — — liann bankaði aftur á framtennurnar m,eð blýantinum. - Einhvernveginn get ég ekki hugsað mér yður gifta sértrúar-

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.