Heimilispósturinn - 18.03.1961, Page 6

Heimilispósturinn - 18.03.1961, Page 6
• hJ- Heftirðœ ekki gaman af að férðast ? var orðin talsvert leið á: því að vera sífellt að þvæl- ast í lestum, en þó nýt ég þess að ferðást. Ég veit, að það verður voða gaman að ferðast með Chris. — Chris? endurtek ég. — Ég kalla hann alltaf Chris, byrjaði á því strax og við kynntumst. —Mundu eftir því að skrifa það með ch, skýtur Kristmann inn í. — Við ætlum að fá okkur bíl óðar og við höfum efni á því, segir frú Steinunn. 7 Prú Steinunn og Kristmann giftust í júlí 1960. — Við höfðum þekkzt þá 31 dag nákvæmlega. Það eru 31 ár á milli okkar. Ég hafði alltaf haldið, að ef ég gifti mig, yrði maðurinn minn 13 árurn eldri en ég. Ég erfædd 13. desember, það kemur alltaf upp talan 1 og 3, 13 -— ég hef tekið eftir því svo oft varðandi líf mitt. Talan snerist við hjá okkur Chris, en það eru sömu tölu- stafirnir. — Er ekki erfitt að vera gift rithöfundi? spyr ég. Kristmann var nú niðursokk- inn í science-fiction, svo að hann tók ekki eftir spurningunni. — Ekki ef það er Chris, segir Steinunn. — Lestu handritin hans? — Ég er nú hrædd um það. Les þau fram og aftur, svo les ég prófarkirnar. — Er hún góður krítíker? Kristmann segir: — Dadí er bezti krítíker, sem ég hef nokkurn tima haft. Sá eini, sem ég hef haft gagn af. Ég er afar misk- unnarlaus við sjálfan mig, en verri er hún þó. Ef hún er að vélrita fyrir mig beint eftir upp- lestri, þá er segin saga, að hún setur ekki setningu á pappír nema hún sé ánægð með hana. Hún bara bíður, þar til það kemur eins og það á að vera hjá mér. — Já, eru konur svona góðir bókmenntarýnarar ? — Þær sjá það, sem máli 6 skiptir í hlutunum. Ef ég hef eitthvert vandamál, sem ég er að glíma við, þegar ég er að skrifa, og tala um það óbeint við konuna mína, þá leysist það vanalega upp og verður ljóst fyrir mér, segir Kristmann. — Þér finnst gaman að fylgj- ast með því, sem hann er að fást við? spyr ég Steinunni. — Auðvitað, segir hún. Það hlýtur að fara svo, að maður lifi sig inn í það með manni sínum, og það er hægara með rithöfundi en ef ég væri gift t.d. stærðfræðingi. — Af hvaða bók eftir mann- inn þinn ert þú hrifnust? — Þokunni rauðu, sérstaklega seinna bindinu. Bæði finnst mér hún vel skrifuð, og svo er það andinn á bak við, sem ég felli mig við. Annars er ég handviss um, að hann á eftir að skrifa sínar beztu bækur. — Ég er eiginlega á fjórða endurholdgunarstiginu, segir Kristmann, og því var spáð fyr- ir mér, að ég myndi þá skrifa mínar beztu bækur. — Hvernig kanntu við þig að vera húsmóðir? — Það er nú eiginlega hobbí hjá mér. Ég stend í svo mörgu öðru. Ég er að þýða bók, ég kenni, ég vélrita stundum fyrir Kristmann, ég skrifa bréf fyrir hann til útlanda og fleira og fleira. — Mér er aftur litið upp á hilluna til Tíbetsvitringsins og slöngunnar. Það er líka slanga á borðinu fyrir framan okkur. — Líttu aftur fyrir þig, segir Steinunn, sjáðu þessa við stand- lampann. Þarna hringaði sig slanga með eiturtungu, út úr sér, eins og viðbúin að bíta. — Hún er úr málmi sé ég, segi ég. Kjarvölsk fantasía, Vor- draumur, blasir við manni á veggnum gegnt manni, Kvöld- stemning eftir Jón Stefánsson er á öðrum vegg. Kolsvartur Stein- way-flygill, bogamyndaðar dyr og talsvert tréverk beggja vegna við sjást, þegar litið er til annarrar liandar. Dyrnar og þetta í krmg minnti á eitthvað kirkjulegt, og indverski reyk- elsisibnurinn í stofunni flutti mystíkina inn í andrúmsloftið og austurlenzku munirnir alhr- Það var skemmtilegt að sækja hjónin heim. Það var glatt a hjalla allan tímann. Þegar eS liafði þakkað þeim hjónum báð' inn viðmótið og skemmtunina a nýja lieimilinu þeirra — l,aU fluttu inn fyrir li/> mánuði og Kristmann fylgdi mér niður stigann að íslenzkum sið, sagð* ég, að hann væri hamingjusani- ur. — I fyrsta skipti, segir hann- Nú lief ég loks fundið það, sém ég lief verið að leita að. Frú Steinunn Briem í anddyri nýja heimdlS hennar og Kristmamis Guðmundssonar 11 ð Tómasarhaga 9. 8 Kristmann leggur frá sér vísindalegu skáldsöguna, og sker sér væna sneið af rjóma- tertunni og stingur upp í sig stórum bita. Ég hafði orð á því, að það væri óviturlegt að freista svona þykkvaxins manns með svona ó- hollustu, svona fitandi, seigdrep- andi fæðu, eins og rjómatertu. Það væri ekkert vit í því, nema eiginkonan vildi drepa hann hægt, og það varð að samkomu- lagi, að ég tæki sjálfur rífleg- an skammt af tertunni til að koma í veg fyrir, að Kristmann lifði tveimur árum skemur vegna tertuneyzlu. — Þakka þér fyrir að fórna tveim árum fyrir mig, segir Kristmann við mig. HEIMILISPDBTLIRINN

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.