Heimilispósturinn - 18.03.1961, Qupperneq 9
Hvaða óhugnaður var það,
sem bróðir myrta piltsins, sem
sagt var frá í síðasta þætti,
fékk sendan bréfleiðis í arf
®ftír föður sinn, og ofsótti
bann upp frá því... ?
SEJVÐIMG í BRÉFI
fjrsvöl sumarnóttin hjúpar dalinn voðfeldi
^°kunnar, meðan fordæðuskapurinn býr um sig
1 hugum mannanna. Þeirra, sem á ferli eru með
'tít í huga, og þeirra, sem horfnir eru inn í dular-
beirna svefnsins, örmagna eftir erfiði dagsins.
^rjótandi og umlandi hvílir fólkið í fletum sín-
^ í þungu rökkri baðstofunnar, flest dauðfegið
Hvíldinni.
En ein er sú, sem ekki fær hvíldar notið. Hún
brýzt um, stynur og bandar frá sér. Illir draum-
ar og vanlíðan ásækja hana.
Skyndilega hendist hún upp í rúminu og æpir
upp yfir sig. Illúðlegu mennirnir tveir gera hon-
um Þorkatli hennar eitthvað mein ... Æ, það var
bá bara draumur!
^framhald þátfarins aff
^orkatli Pálssyni úr síðasta blaði.
PorkeSI gerir vart
við sig.
Þessir atburðir gerast heima
hjá foreldrum Þorkels að
Hraunshöfða nóttina, sem hann
hvarf úr hjásetunni. Þóttist
móðir hans þá strax viss um,
að eitthvað hræðilegt hefði
hent hann, og þegar Stefán
sveri kom daginn eftir að
Hraimshöfða til að tilkynna
þeim hvarf piltsins, þóttist hún
viss um, að það væri ekki ein-,
W EI M I L I E P 6STU H I N N
9