Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Side 40

Sagnir - 01.06.2006, Side 40
yidhvrj jsJencThija tiJ cjjúastriz>sins lóyy-iyoz landamæraborgimarLadysmith, Kimberly og Mafeking. Fæstirbjuggust við að fáliðaðir Búar gætu staðið her Breta á sporði og spáðu flestir að stríðinu myndi ljúka fyrir jól. Svo fórþó ekki. Herlið Breta sem sent var til að létta á umsátrinu beið hvem ósigurinn á fætur öðmm. Lundúnarbúar fagna sigri í Ladvsmith. Ástæða þessa var þó ekki aðeins vaskleg framganga Búa, heldur einnig úreltur hugsunarháttur breskra hershöfðingja. Á meðan Búar vörðust bak við kletta og í skotgröfum þrömmuðu bresku hermennimir í hnapp, þétt saman, líkt og forverar þeirra höfðu gert í orrustunni við Waterloo röskri öld áður. Allt var þetta eftir bókinni. Stórskotaliðið hóf leikinn, síðan sótti fótgönguliðið fram og að lokum átti riddaraliðið að elta uppi veikburða andstæðinga og gera út af við þá. Svona hafði hemaði verið háttað á meginlandi Evrópu. Þjóðverjar höfðu beitt þessari aðferð gegn Frökkum 1870 og Bretar höfðu notast við þessar sömu aðferðir gegn ýmsum vanþróaðri þjóðum í hinum mörgu smáu stríðum Viktoríutímabilsins með góðum árangri. En þessi aðferð mátti sín lítið gegn andstæðingi sem hafði komið sér fyrir til vamar, andstæðingi sem var búinn nýtísku þýskum riflum og var með afbrigðum skotfimur.14 í janúar árið 1900 tók Roberts lávarður við stjórn herja Breta í Suður-Afríku. Roberts kaus að hverfa frá þeirri stefnu sem fylgt hafði verið í upphafi stríðsins. Hann sneri vöm í sókn og í því augnamiði fyrirskipaði hann innrás í ríki Búa. Hann taldi að með þeim hætti mætti létta umsátrinu um Kimberly, Ladysmith og Mafeking, því herir Búar neyddust til að veija fósturjörðina. Þann 13. mars árið 1900 tóku Bretar höfuðborg Oraníufríríkisins og þann 5. júní sama ár féll Pretoría, höfuðborg Transvaals.15 Eftir fall þessara höfuðborga héldu sumir að stríðinu væri lokið en við tók lengsta og erfiðasta tímabil átakanna þar sem Búar beittu skæmhernaði gegn Bretum. Hann fólst m.a. í skemmdarverkum á samgöngumannvirkjum Breta og skyndiáhlaupum á lið þeirra. Til að verjast þessum breyttu aðferðum tók eftirmaður Roberts, Kitchener lávarður, upp heldur óhefðbundnar aðferðir. Samhliða því að brenna bæi Búa, létu Bretar reisa fjölda smárra virkja um hin hemumdu lönd Búa. Þessum virkjum er lýst á eftirfarandi hátt í Arnfirðingi: Fara [Bretarj nú til og gera þar víðsvegar svo nefndar varðhúsagirðingar. Þær em svo gerðar að reist er nokkurra faðma laung jámflekagirðing og mannhá. Hún er úr tvöföldum þakjámsflekum og 4-5 þuml. þykt moldarlag á milli og í skotskörð. Þessir virkisbútar em reistir þjett og ekki haft milli þeirra nema 400-500 faðmar þar sem von getur verið á árás. Að baki hverju virki em 10-20 manna á verði og virkin öll sín á milli samteingd með margfljettuðum og riðnum gaddavir og á hringivjelar, sem andskotast ef við er komið svo að heyrir lángar leiðir og hersveitir jafnan í grendinni, sem þjóta að ef á liggur, því þetta er lagt fram með vegum og jámbrautum. Alt er þetta mesta tröllvirki og afar dýrt.16 Þegar komið var fram á vormánuði 1902 fóm sumir leiðtogar Búa að velta því fýrir sér hvort sjálfstæði þjóða þeirra væri þess virði að halda áfram baráttunni. Land þeirra hafði verið eyðilagt og konur þeirra og böm dáið þúsundum saman í fangabúðum Breta. Athygli vekur að það vomm einkum leiðtogar Transvaals, þar á meðal Louis Botha, sem vildu knýja á um frið á meðan leiðtogar Oraníufríríkisins vom harðari í afstöðu sinni og vildu halda baráttunni áfram. Þegar stríði hófst þremur árum áður, þá hafði þessu verið öfugt farið. Meðal Breta ríkti einnig ósætti. Sir Alffed Milner krafðist þess að Búar gæfust skilmálalaust upp en Kitchener lávarður vildi koma til móts við kröfur þeirra. Á friðarráðstefnu í borginni Vereeniging í maí 1902 var samið um frið. Búum vom gefnar upp sakir og Bretar samþykktu að hjálpa til við uppbyggingu landsvæða þeirra. Á móti afsöluðu Búar sér sjálfstæði sínu.17 Austri komst svo að orði þegar ljóst varð að friður væri kominn á í Suður-Afríku: Svo sorglegt sem þetta stríð og mikla mannfall er í sjálfu sér, þá verpur það þó hinum dýrðlegasta frægðarljóma á hina aðdáanlegu vöm og hreysti Búa, er aldrei mun fymast, og gefúr smáþjóðunum hið glæsilegasta eptirdæmi og vissa von þolanlegra málaloka, þó við ofúrefli sé að eiga, ef hreysti og föðurlandsást fylgjast að.18 Árið 1910 varð Sambandsríki Suður-Afríku að vemleika. Búar komust þar í forsæti því Louis Botha var kjörinn fyrsti forsætisráðherra ríkisins. Suður-Afríka studdi dyggilega við bakið á Bretum í báðum heimsstyrjöldunum, en féll í ónáð eftir að hafa komið á aðskilnaði(apartheid) á milli svarta meirihlutans og hvíta minnihlutans árið 1947. cfjjstaða ísfen sJzxajjöfm i&fa JJúastri&sins í maí árið 1900 birti Fjallkonan grein þar sem harðlega var deilt á Bandaríkin og England. I niðurlagi þeirrar greinar sagði m.a. að engin útlend þjóð hefir sýnt hér annan eins ójöfnuð eða misboðið landsmönnum jafn-hrottalega og [Englendingar]. Um alla 15. öldina stóð ofríki og ránskapur Englendinga hér með mestum blóma, og enn þótt enska verzlunin, sem þá var rekin hér, væri að mörgu leyti betri en danska og norska verzlunin, þá myrkvaðist þessi tími samt ákaflega mikið af þeim hryðjuverkum, sem framin voru á landsmönnum, vamarlausum og án efa að mestu saklausum.19 Þessi söguskýring kom í kjölfar spumingar sem höfúndur spurði sig, þ.e. hvort Búastríðið snerti á einhvem hátt hag íslendinga. Höfundur taldi svo vera, þar sem stríðið kynni að leiða til Evrópustríðs enda ólíklegt að „hin stórveldin vilji eða geti þolað til lengdar, að Englendingar gangi yfir alt ljósum logum með því að leggja undir sig meginhluta Asíu og Afríku."20 Þótt Bretaveldi tækist að sigra Búa og leggja lönd þeirra undir sig, þá væri erfitt að sjá að Bretum gæti tekist að halda löndunum saman. Slíkt þarfnaðist mikils mannafla og benti höfundur á að Bretar væm of fámennir og ennfremur væm „Englendingar í rauninni miklu fremur fyrirtækjamenn og kaupmenn heldur en hermenn.“21 1 lok greinarinnar áréttaði þó höfúndur að skrif sín væra alls ekki jZS ^SaynirZ006
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.