Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 44

Sagnir - 01.06.2006, Page 44
y iðfiorj"jsíendinja tíf úaótriöóins lðyy-iyoz ‘fjdöurstöö ur Þótt átökin í Suður-Aíríku stæðu fjarri Islendingum töldu margir að hugsanlegur ósigur Bretaveldis myndi veikja stöðu þess í Evrópu og það kynni að valda því að Rússaveldi efldist að sama skapien slíkt var Islendingum óljúft. Sumir þeirra töldu sigur Bretaveldis réttlætanlegan í ljósi þess en lýstu um leið vanþóknun sinni á „græðgi” Breta. Raunar mætti segja að í huga Islendinga, hafi græðgin verið rót alls ills í þessu máli. Margir þeirra töldu sig fullvissa um að breski auðkýfingurinn Cecil Rhodes stæði að baki ófriðnum. Rannsóknir breska sagnfræðinga benda þó til þess að þáttur Rhodes hafi verið óverulegur í stríðinu. Helsti hvatamaðurinn hafi verið embættismaður sem fáir þekktu, Sir Alfred Milner, og með klókindum hafi honum tekist að steypa Bretum út í ófriðinn. Islendingar voru á þessum tíma enn í sambandi við Dani, sem virtist órjúfanlegt. Hagur smáþjóðanna var þeim kær. Islendingar höfðu því ríka ástæðu til aö styðja Búa. Þeir voru ekki einir um það, víða í Evrópu bar mikið á óvild í garð Breta fyrir yfirgang þeirra gegn Búum. Að sumu leyti endurspeglaði umræðan á Islandi orðræðuna í Evrópu. Ekki þarf það þó að skiljast svo að Islendingar hafi hugsunarlaust apað allt upp eftir öðrum Evrópuþjóðum. Þeir höfðu sterkar skoðanir á þessu máli enda töldu þeir sig í hópi „siðmenntaðra” þjóða. Einnig bar á því að Islendingar sæju Búa í miklum hetjuljóma og þá var ekki langt í fortíðarþrána hjá þeim sjálfum. Einstakir Búaforingjar voru til dæmis bomir saman við fomar kempur íslendinga í sumum íslensku blaðanna, sem þóttust finna þar hliðstæður. Eins og komið hefur fram áður þá er ekki hægt að fullyrða með neinni vissu hve stór hluti íslensku þjóðarinnar studdi Breta i Búastríðinu. Mikill meirihluti blaðanna var þó klárlega á bandi Búa. A stöku stað má að vísu finna eindreginn stuðning við Breta. Þau blöð sem skera sig úr að þessu leyti vom stóm Vesturheimsblöðin, Lögberg og Heimskringla. Bæði tóku afar eindregna afstöðu með Bretum og gagnrýndu íslensku blöðin fyrir að flytja íslensku þjóðinni ósannindi og sýna Bretaveldi rangindi. Islendingar bám óneitanlega mikla virðingu fyrir Bretum, háttum þeirra og lífsstíl. En yfirgangur þeirra gagnvart Búum var í flestra augum Ijóður á annars glæsilegu heimsveldi. TJifvísanir 1 Þessi grein er að hluta til byggð á lokaritgerð höfúndar til BA- prófs vorið 2006. 2 Stephan G. Stephansson: Andvökur. Sigurður Nordal sá um útgáfu, Reykjavík, 1980. bls. 422-433. USS Maine sökk í höfninni í Havana þann 15. febrúar 1898. 3 Hendrik Ottósson: Frá Hliðarhúsum til Bjarmalands. 2. útgáfa, Hafnaríjörður, 1979, bls. 77. 4 Pakenham, Thomas: The Boer War. London, 2000, bls. XXI. 5 Pakenham, Thomas: The Boer War, bls. 16-19. Sama heimild, bls. 12-13 og 20. 7 „Josep Chamberlain." Austri, 9. febrúar 1900, bls. 16. 8 Pakenham, Thomas: The Boer War, bls. 49, 54-55, 64. 9 Sama heimild, bls. 28-30. 10 Réttindi útlendinga vom virt í Oranjefríríkinu, en það deildi ekki sömu auðæfum og nágrannar þeirra í Transvaal. Fyrst og fremst var það frændsemi þeirra við Transvaal-Búa sem rak þá í stríð gegn Bretum. 11 Pakenham, Thomas: TheBoer War, bls. 101 & 117. 12 „Drottinn hersveitanna." ísafold, 3. febrúar 1900, bls. 26. Haft eftir Verdens gang. 13 „Útlend tíðindi.“ Arnfirðingur, 30. desember 1901, bls. 17. 14 Pakenham, Thomas: The Boer War, bls. 128-129. 15 Judd, Denis og Surridge, Keith: The Boer War. London, 2002, bls. 303-307. 16 „Útlend tíðindi." Arnfirðingur, 11. apríl 1902, bls. 53. 17 Judd, Denis & Surridge, Keith: The Boer War, bls. 269-270. 18 „Útlendar fréttir.“ Austri, 21. Júní 1902, bls. 75 19 „Um ofríki.“ Fjallkonan, 26. maí 1900, bls. 1-2. Grein Fjallkonunnar var byggð á greinum úr Review of Reviews, ritstjóri þess var hinn kunni enski stjómarandstæðingur W.T. Stead. 20 Sama heimild. 21 Sama heimild. 22 Sama heimild. 23 „Nokkrar hugleiðingar um Búastríðið.“ Austri 30. nóvember 1900, bls. 151. 24 „Réttur Breta.“ Heimskringla, 15. febrúar 1900, bls. 2. 25 Ami Pálsson:„Stórveldi framtiðarinnar." Eimreiðin, V, 1. tbl. (1899), bls. 103. Grein Ama var lauslega þýdd úr grein í bandarísku tímariti. 26 „Um ofríki.“ Fjallkonan, 8. maí 1900, bls. 1. 27 „Útlendar fréttir.“ Austri, 31. október 1899, bls. 117. 28 Sama heimild. 29 „Bretar og Búar.“ Norðurland, 7.janúar 1902, bls. 59. 30 Sama heimild. 31 „Stjóm Búanna í Transvaal.“ Lögberg, 11. janúar 1900, bls. 2. 32 Jón Ólafsson: „Heims-sjá ffá Nýjaári 1901 til Maí-loka 1902.“ Skírnir LXXVI (1901), bls. 32. 33 Sama heimild, bls. 32. 34 Sama heimild, bls. 32. 35 Sama heimild, bls. 32. 36 Jón Ólafsson: „Heims-sjá árið 1900.“ Skírnir LXXV (1900) bls. 25. 37 Sama heimild, bls. 25. 38 Bandaríkjamenn áttu á þessum tima í átökum við Spánverja um yfirráð á Kúbu. 39 Jón Ólafsson: „Tíðindi frá útlöndum 1899.“ Skírnir LXXIV (1899), bls. 27. 40 Sama heimild, bls. 27-28. 41 Jón Ólafsson: „Heims-sjá frá Nýjaári 1901 til Maí-loka 1902.“, bls. 32-33. 42 „Útlendar frjettir." Bjarki, 3. febrúar 1900, bls. 13. 43 Judd, Denis og Surridge, Keith: The Boer War, bls. 247. 44 „Búar og stórveldin." ísafold, 7. apríl 1900, bls. 75. 45 Sama heimild, bls. 75. 46 „Glæpur á glæp ofan.“ ísafold, 21. april 1900. bls. 87. 47 Judd, Denis og Surridge, Keith: The Boer War, bls. 238. 48 Sama heimild, bls. 239 & 240. 49 Pakenham, Thomas: The Boer War, bls. 464-466. 50 Judd, Denis og Surridge, Keith: The Boer War, bls. 252. 51„Frá útlöndumTFjallkonan, 3. febrúar 1900, bls. 1. 52 „Útlendar fréttir." Þjóðólfiur, 8. mars 1901, bls. 41. 53 Sbr. Þjóðólfi 15. júní 1900, bls. 110. 54 „Útlendar frjettir." Bjarki 4. nóvember 1899, bls. 173. 55 „Transvaal-stríðið." Lögberg, 28. desember 1899, bls. 4. 56 Pakenham, Thomas: The Boer War, bls. 505-508 & 510. 57 „Hormungar Búa.“ Arnfirðingur, 8. mars 1902, bls. 42 58 „Útlendar fréttír." Austri, 23. desember 1901, bls.165. ;'9„„Dauðabúðir.““ Arnfiróingur, 13. júní 1902, bls. 73. 60 „Útlend tíðindi", Arnfirðingur, 13. febrúar 1902, bls. 34. ZfdCyn ifasffrá Bls. 36. Búar. Tabitha Jackson: The Boer War. London 1999. Bls. 27. Bls. 38. The Relief of Ladysmith. Tabitha Jackson: The Boer War. London 1999. Bls. 97. Bls. 41. Fallnir við Spion Kop. Tabitha Jackson: The Boer War. London 1999. Bls. 79. yz ^Saynir Z.006
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.