Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 61

Sagnir - 01.06.2006, Page 61
zAc££rar fiucjfeicSinjar u?n stjcrn- cj saynj?éfacjsjerQ> Qjrænfancfs á yniðcfifum <j\éttarstaé>a fjrænfancfs Uklegt er talið að landnámið á Grænlandi og íslandi hafi einkennst af einkaframtaki einstaklinga og smáhópa og bendir það til þess að skipulagsleysi hafi einkennt grænlenskt samfélag í fyrstu. Því má ætla að stjómskipan Grænlands hafi ekki orðið formföst íyrr en síðar. En hvemig var henni háttað fyrir 1261? Var Grænland sjálfstætt þjóðveldi líkt og Island á sama tíma eða var það hugsanlega hluti af íslenska þjóðveldinu? Það er að segja vegna þess að það hafi byggst að mestu leyti af íslenskum landnemum? Olíklegt er að valdsvið íslensku goðana hafi náð til annarra landa og stjómkerfi þeirra. Það stafar einkum af því að íslenska stjómkerfið einkenndistafvalddreifingusemfólstímörgumsmáumhöfðingjadæmum, goðorðunum. Þau vom með sameiginlega lagasetningu og dómgæslu á sameiginlegu þingi, alþingi. Allsherjarframkvæmdavald vantaði. Það er auðskilið að slíkt „ríki“ hlýtur að vera mjög veikt, ekki síst út á við, og illa til þess fallið að hafa völd utan endimarka landsins. Nokkur ákvæói í Grágás benda þó til að Grænland hafi haft nokkra sérstöðu og það hafi verið íslandi nákomnara en önnur lönd.3 Með tilliti til þess að ætla má að allur þorri landnámsmanna á Grænlandi hafi verið islenskur, og þeir hafi flutt með sér til landsins þekkingu á íslenskum lögum, þá em mörg rök fyrir því að lög þeirra hafa verið mjög svipuð. Þegar Grænlendingar komu á fót stjómkerfi hjá sér og settu sér lög, þá er líklegt að þeir hafi fyrst og fremst farið eftir íslenskum íyrirmyndum. íslensk lög hafa og í öllum aðalatriðum átt við á Grænlandi. Landshættir vora svipaðir og menning þjóðanna lík. Úr því má draga þá ályktun að Grænland hafi ekki verið hluti af íslenska þjóðveldinu og að það gekkst ekki undir Noregskonung fyrr en 1261.4 Þá má segja að Grænland hafi verið sjálfstætt land á þessu umrædda tímabili. En hvers konar stjómkerfi var þá ríkjandi í landinu? P°eraf(ffej stjcrnvcfcf Heimildir sýna að hinir tveir meginþættir i stjórnvaldinu hjá öllum germönskum þjóðum, höfðingjavaldið og þingið, hafi verið til á Grænlandi. Grænlensku höfðingjamir vora nefhdir goðorðsmenn eins og íslensku höfðingjamir. Þorgrímur trölli Einarsson á Löngunesi í Einarsfirði er beinlínis nefndur goðorðsmaður.5 Sennilegt er að goðorð hafi einnig verið í höndum Bratthlíðinga og þá í ætt Eiríks rauða. Hann og niðjar hans era nefndir höfðingjar yfir Eiríksfirði og hefor þá líklega fylgt goðorð. Því til sönnunar er þess getið í Fóstbræðrasögu að Gamli, bóndi í Eiríksfjarðarbotni, er talinn þingtnaður Þorkels Leifssonar Eiríkssonar rauða.6 Af þessu má sjá að a.m.k. tvö goðorð hafi verið á Grænlandi, goðorð Bratthlíðinga og goðorð Einarsfirðinga og era bæði þessi goðorð í Eystribyggð. Hins vegar telur Ólafur Lárasson líklegt að enn eitt goðorðið hafi verið til og það hafi verið í Vestribyggð.7 Ekki er vitað hvað varð af þessum goðorðum eftir að Grænlendingar gengu Noregskonungi á hönd en líklega vora þau aflögð og upptekin sýsluskipan sem hæfði miðstýrðu konungsvaldi. Bjöm Jónsson á Skarðsá fullyrti að minnsta kosti að Bjöm bóndi Einarsson Jórsalafari (u.þ.b. 1350 - 1415), hafi haft sýsluvöld í landinu. Hann sagði að þeir Grænlendingar hafi veitt Bimi bónda Eiríksfjarðarsýslu meðan hann var þar. Hér vísar Bjöm á Skarðsá á reisubók Bjöms Jórsalafara, sem nú er glötuð, og follyrðir að upplýsingar sínar hafi hann beint úr henni en í >,stytzta ágripi“.8 Vitað er að Bjöm kom að minnsta kosti einu sinni til Grænlands en þá hafði hann lent ásamt fylgdarliði í hafvillu til landsins, sennilega um 1384 og dvalist þar í um 2 ár.9 Ef ekki er hægt að taka mark á þessari ofangreindu heimild um að sýsluskipan hafi verið í landinu þá má a.m.k. færa rökfræðilega niðurstöðu fyrir því að svo hafi verið. Benda má á að Noregskonungur deildi valdi sínu niður í ákveðnar landfræðilega afmarkaðar einingar, sýslur, sem hann setti sýslumann yfir til stjómunar. Þennan hátt hafði hann á í Noregi, á íslandi og í Færeyjum. Því er rökrétt að álykta að hann hafi einnig gert það á Grænlandi. Hvað sem um það má segja, þá er það líklegt að sýslur hafi að minnsta kosti verið tvær á Grænlandi, hvor í sinni byggð. Þetta mat byggist á því að fjarlægðir vora miklar á milli þessara byggða (6 daga i'óður) og erfitt var að ferðast á milli vegna erfiðrar veðráttu mestallt árið. Þær vora þar með einangraðar og aðskildar að mestu. Um þing Grænlendinga er einkum getið í Fóstbrœðrasögu og í Grœnlendingaþœtti Flateyjarbókar}0 Sérstaklega er getið um það við árið 1120." Þingið var háð á Görðum í Einarsfirði við biskupssetur Grænlendinga. Þetta þing hefur sennilega verið alþingi, enda er það orð notað yfir þennan þingstað í bréfi dagsettu í Björgvin þann 20. maí 1389,12 sem og í Grænlendingaþætti sem einnig staðsetur þingið á Görðum.13 Á þessu þingi var skipaður lögmaður eftir að landið gekkst undir Noregskonung en fyrir þann tíma hefur lögsögumaður sennilega verið æðsti oddviti þingsins eins og á Islandi. Ivar Bárðarson minnist á það kringum 1350, að lögmaðurinn hafi búið í Brattahlíð.14 Þá greinir að minnsta kosti ein heimild frá því að til hafi verið sérstök grænlensk lög. í Grœnlendingaþœtti er svo sagt frá því að þegar deilur hafi komið upp um skiptingu góss úr skipsflaki einu hafi verið farið eftir grænlenskum lögum.15 Þá follyrðir Bjöm Jónsson á Skarðsá að hreppaskipan hafi verið í landinu. Hann sagði svo frá að „...vísast allir þeir fimmtíu hreppar sem Leif Eireksson kristnaði, því svo finnst skrifað í einu annáli: Á þeim vetri kristnaði Leifor (Eireksson) fimtíu hreppa á Grænlandi.“16 Það hlýtur að vera rétt að það hafi verið hreppar á Grænlandi. Eins og bent hefur verið á hér fyrr í greininni, var samfélagslíkan Grænlands mjög líkt því íslenska og því er mjög líklegt að svo hafi verið. Athyglisvert er, og verður að hafa í huga þegar grænlenskt samfélag á miðöldum er skoðað, að bændaþorp skorti á Grænlandi en hlutverk þeirra í Evrópu var að skipuleggja samskipti manna. Eitthvert samfélagskerfi varð að annast þetta hlutverk, t.d. að skipuleggja fátækrahjálp. Grænlensku hreppamir munu því hafa annast félagsleg samskipti líkt og á Islandi. Þeir hafa verið eins konar undirstjómkerfi í höndum bænda og hreppamir haldist óbreyttir þrátt íyrir að stjómskipan í landinu hafi breyst um 1261. Samkvæmt fomum íslenskum lögum áttu að vera að minnsta kosti 20 lögbýli í hverjum hrepp. Ef svo var einnig á Grænlandi, og að hreppamir hafi verið 50 talsins eins og Bjöm hélt fram, þá hafa að minnsta kosti verið um 1000 lögbýli á Grænlandi sem er nokkuð há tala. Af ofansögðu má draga þá ályktun að á Grænlandi hafi verið norrænt stjómkerfi, ekki ólíkt því sem var á sama tíma við lýði á Islandi og það hafi tekið nokkram breytingum við að Grænlendingar gengu Noregskonungi á hönd. En til var annað stjómkerfi í landinu en hið veraldlega. fjeistfea stjcrn Lítið er vitað um trúarbrögð fyrstu landnámsmannanna. Sumir þeirra hafa a.m.k. verið heiðnir en fáeinir gripir úr heiðnum sið hafa fondist á Grænlandi. Hins vegar bendir fræðimaðurinn Christian Keller á að skortur á heiðnum gripum sem og fjöldi kirkja (kirkjurústa) og kirkjugarða, sem fomleifar gefa til kynna að hafa verið byggðar þegar við upphaf landnáms, að kristni hafi verið boðuð á landnámstíma eða skömmu eftir hann.18 Athuga verður þó í þessu sambandi að líkamsleifar úr heiðnum gröfom kunna að hafa verið fluttar inn fyrir veggi kirkjugarðanna og heiðnum gripum eytt, enda auðvelt viðfangs vegna fámennis samfélagsins. Sumar af stærstu kirkjum landsins vora byggðar á tímabilinu 1100-1150. Christian Keller heldur því fram að smíði kirkna hafi verið einkaframtak einstaklinga en slíkt tíðkaðist einmitt á sama tíma í Norður-Evrópu. Þetta gefi einnig til kynna að samþjöppun félags- og efnahagslegs valds á eina hönd hafi átt sér stað og þá líklega í hendur ríkjandi yfirstéttar.19 Þá niðurstöðu er hægt að draga af þessu að kirkjumar hafi verið í einkaeign og því megi kalla þær bændakirkjur, likt og tíðkaðist á Islandi á sama tíma. Hafa verður í huga að fyrir 1125 var enginn biskup yfir Grænlandi og bændum eða höfðingjum verið mjög sjálfrátt um stjóm kirknanna. Að minnsta kosti vantaði geistlega yfirstjóm til að miðstýra og stjóma hverri kirkju út af fyrir sig. Ólíklegt er að prestar hafi byggt sjálfir kirkjur og verið óháðir valdi veraldlegra höfðingja. Þáttaskil urðu í kirkjusögu landsins þegar fyrsti skipaði biskupinn yfir Grænlandi settist að á Görðum um 1125 en reist var vegleg dómkirkja fyrir hann á staðnum sem enn sjást rústir af. Þetta leiddi til þess að kaþólska kirkjan náði fótfestu í landinu í fyrsta sinn síðan landið byggðist og átti hún eftir að starfa þar í um 250 ár eða á meðan byggð Iðajnir zoo6 dff
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.