Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Side 105

Sagnir - 01.06.2006, Side 105
XAÍotk jfvaÖ er fíffb ?neð netfieimifcfuyn oy ö&rum fieimifcfum 7 Sagnfræðilegar heimildir á vefnum eru mikið til eins og hverjar aðrar heimildir. Allar heimildir þarf að meta með tilliti til þess hve áreiðanlegar þær eru. Skoða þarf hver höfundur er og hvort hann hefur einhverja afstöðu til efnisins. Einnig þarf að skoða hvaða heimildir voru notaðar. Þó er ýmislegt í eðli veraldarvefsins sem gerir það að verkum að vel þekkt vandamál við heimildaöflun verða mun erfiðari viðfangs þegar kemur að heimildum á vefnum. Segja má að baráttan við heimildimar stigmagnist við tilkomu veraldarvefsins. Eitt af vandamálunum sem tengjast heimildum á vefnum er það hversu auðvelt það er fyrir hvem sem er að gefa út heimildir þar. Af þeim sökum er mun mikilvægara en ella að vita hver er ábyrgur fyrir heimildinni og hvaðan hún kemur. Eins og allir vita em sagnfræðileg rit misgóð. Það sem hjálpar þar er að útgefendur em ekki svo margir og oft hægt að gera ráð fyrir vissum gæðastaðli ef útgefandinn er þekktur. Sama gildir auðvitað á vefnum. Virt vefsetur em ólíkleg til þess að gefa út msl. Slík vefsetur má oft þekkja af afspum, þ.e. einhver mælir með þeim eða þau hafa fengið góða dóma í fjölmiólum. Oft er einnig hægt að treysta á vefsetur sem eru andlit virtra stofnana og fyrirtækja á netinu en ávallt skal hafa í huga hagsmuni viðkomandi aðila og hvort þeir geti haft áhrif á hlutleysi þeirra. Auðvitað ber að forðast allt sem lyktar af auglýsingamennsku eða hagsmunapólitík sem oft getur borið á hjá stofnunum og fyrirtækjum, hversu virt sem þau em. Annað vandamál felst í mismuni á aðgangi. Aðgangur að hefðbundnum sagnfræðibókum takmarkast yfirleitt vió bókabúðir og bókasöfn þar sem kunnugir starfsmenn hafa vinsað úr bækur sem þeir telja góðar. A veraldarvefnum þurfúm við að gera það sjálf. un sajnjrœöifejra heimifcfa á í heimildir og er greinin skrifuð í fræðimannsstíl án upphrópana eða ýktrar notkunar lýsingarorða. Auðvelt er að komast að niðurstöðu um fræðilegt gildi þessarar greinar út frá þeim upplýsingum sem em gefnar upp. Einn af göllunum við þessa grein kemur í ljós þegar skoðaðar em þær heimildir sem höfúndur vísar í. Oft vísar höfúndur í aörar greinar á netinu sem em ekki af sömu gæðum hvað varðar tilvísanir og upplýsingagjöf og í sumum tilfellum hafa þær gufað upp. Yfirleitt er um að ræða greinar sem virðast skrifaðar af heilindum en hvemig getum við staðfest það? Ef vefsetrið sem býður upp á þessa grein er skoðað kemur í ljós eftirfarandi setning: „This network offers a free world history course from a Biblical perspective.“14 Það er ef til vill ekki hið hlutlausa sjónarhom sem sagnfræðingar myndu vilja tileinka sér. Hér er semsagt tvennt sem kemur í veg fyrir að við getum nýtt okkur þessa heimild. Ekki er vísað í traustar heimildir og yfirlýst stefna vefsetursins þar sem þessi grein er birt er sú að þar sé sagan skoðuð frá sjónarhomi biblíunnar. Þegar allt kemur til alls eru það frekar hinar ótraustu heimildir sem koma í veg fyrir notkun þessarar greinar ífemur en hitt þar sem svona greinar verða auðvitað að fá að njóta vafans þrátt fyrir yfirlýsta stefnu hýsingarfyrirtækis. Ef greinarhöfúndur hefði gerst sekur um sögufolsun í nafni biblíutúlkunar þá myndi málið ef til vill liggja öðmvísi við. Dcemi 3: www.bulgaria.com/history/bulgaria/under.html. Hér er gott dæmi um síðu sem við fyrstu sýn virðist nokkuð traust heimild en er þó á ýmsa vegu mótuð af þjóðemishyggju og alveg ónothæf þess vegna. Þessi síða fjallar um sögu Búlgaríu á f5. til 18. öld þegar landið var undir stjóm Ottómana. Þessi grein er nokkuð vel skrifuð og mjög fræðileg í útliti og er reyndar tekin upp úr bók um sama efni. En ef betur er að gáð má finna mjög svo fordómafullar setningar eins og þessa: verafcharvefn um Þegar skoðaðar em heimildir á veraldarvefnum er ýmislegt sem ber að hafa í huga. Hér em nokkrar spumingar sem nauðsynlegt er að spyija sig í hvert skipti sem heimild á vefnum er metin. J/fvert er marhmið vejiivæöíóins ? Hvaða stofnun eða einstaklingar standa á bak við vefsvæðið sem heimildin er á? Oft hafa þeir sem standa að vefsíðum eitthvað annað en beinlínis fræðimennsku að leiðarljósi og þá er skynsamlegt að reyna að komast að því hver raunvemlegt markmið síðunnar er. Sem dæmi unt markmið sem síður á vefnum geta haft má nefna þjóðemishyggju, sölumennsku og áróður. Til þess að komast að því hvert markmiðið er með heimildinni er því gott að vita hverjir standa aó gerð hennar. Ef heimildin er einhvers virði má finna þar nafn höfúndar. Oft er hægt að finna „about“ hlekk sem opnar síðu með upplýsingum um vefsíðuna sem þú ert að skoða. Einnig gæti verið gott að kanna hvaða orð fer af síðunni á netinu. Hvað segja aðrir um vefsíðuna? Oft em til aðrar vefsíður sem fjalla um svipað efni og stundum er hægt að finna þar gagnrýni á aðra vefi. Einnig er hægt að spyrjast fyrir á umræðuþráðum hinna ýmsu vefja sem tengjast þessu efni og fá skoðun þeirra sem einnig em að nýta sér þessa vefi. Dcemi 1: http://www.tughranet.f2s.com/damascus.htm. Hér er gott dæmi um grein sem er nokkuð ömgg heimild. Hér er fjallað um hermenn Ottómana, janiserana, í borginni Damaskus. Það segir okkur strax sitthvað um áreiðanleika heimildarinnar að hún er tekin beint upp úr bók. Allar tilvisanir greinarinnar vísa í aðrar bækur sem em sumar hverjar mjög áreiðanleg og virt rit. Þar sem vefsetrið virðist hafa það markmið að vera aðsetur áhugamanna um ottómönsk frímerki getur heldur varla verið að aðstandendur þess hafi sérstakan hag af því að birta misvísandi upplýsingar. Hér vantar þó upp á upplýsingagjöf því við fáum ekki að vita hvenær þessi heimild var sett á netið. Allar aðrar upplýsingar em þó til reiðu og ekkert því til fyrirstöðu að nota þessa grein sem heimild í ritgerð. Dœmi 2: http://www.hyperhistoiy.net/apwh/essays/comp/ cwl 7seljukottoman.htm. Hér er dæmi um síðu þar sem hér um bil allt virðist rétt gert við fyrstu sýn en þó hægt að finna galla ef betur er að gáð. Markmið þessarar síðu er sagt vera að bera saman veldi Seljúktyrkja og Ottómana og það virðist standa heima. Nafn höfundar kemur fram og hvenær efnið var gefið út á veraldarvefnum. Einnig er skýrt og skipulega vitnað Linderfsic] the heel of that powerfúl, mthless and uncivilized Asiatic despotism, it lasted out but remained without any substantial material and spiritual resources needed for its further development. Einnig em hér misvísandi setningar sem þessi: Of the numerous taxes (about 80 in number) the so called ’ffesh blood tax’ (a levy of Christian youths) was particularly heavy and humiliating.15 Hér er gefið í skyn að skatturinn á ungum drengjum hafi verið illa séður og hafi raunvemlega heitið þessu nafni. Svo er þó ekki. Hugtakið „blóðskattur" á uppmna sinn í aukinni þjóðemishyggju á Balkanskaganum á 19. öld og til eru heimildir um það að fjölskyldur hafi áður keppst um að koma sonum sínum til metorða í gegnum þetta kerfi. Seinni tíma þjóðemishugmyndir kröfðust þess hinsvegar að litið yrði á þetta sem niðurlægingu.16 Ef við skoðum þessa síðu betur komumst við að raun um tvennt. Höfúndurinn er búlgarskur og síðan sem við vomm að skoða er heimasíða á vegum búlgarskra stjómvalda.17 Það að höfúndurinn virðist vera með doktorsgráðu er það eina sem kemur vemlega á óvart. Hér er því um að ræða greinilega tilraun til sögufolsunar í nafni þjóðemishyggju og ætti auðvitað ekki að nota sem heimild undir nokkmm kringumstæðum nema auóvitað sem heimild um þjóðemishyggju á Balkanskaganum. £r sama efniö aö finna á vejóföum/ Þegar verið er að leita að efni á netinu getur komið fyrir að þar finnist sama greinin á fleiri en einum stað. Við fyrstu sýn gæti mörgum þótt þetta merki um áreiðanleika greinarinnar. Sannleikurinn sem greinin inniheldur sé svo merkilegur að fólk hafi tekið hann upp á arma sína og endurbirt greinina. En þetta er síður en svo merki um áreiðanleika. Því er þveröfúgt farið. Yfirleitt ná greinar á netinu ekki mikilli útbreiðslu nema um sé að ræða efni sem einhver sjái sér hag í að breiða það út. Hægt er að finna greinar á netinu sem hafa náð gífurlegri útbreiðslu. Oft er ekki sami höfundur hafður fyrir verkinu og oftar en ekki er um að ræða einhvem málstað. Tökunt sem dæmi síðuna sem fjallað er um hér morcjum ^Sajnir zoo6 loj
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.