Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Qupperneq 6
7
Sá félaginn, sem mér er einna minnisstæðastur,
og ég held að hafi borið hag Kára einna mest fyrir
brjósti, var vinur minn og skólafélagi, Gústaf heit-
inn Ásbjörnsson frá Völlum. Velgengni Kára var
eitt af hans mestu áhugamálum, og átti hann þau
þó mörg —- kannske of mörg.
Knattspyrnan var þá sú íþróttagrein, sem félögin
á Akranesi lögðu mesta rækt við, þótt þar væru
jafnframt iðkaðar ýmis konar frjálsar íþróttir og
keppt i þeim.
Félagar Kára og K. A. tóku miklum framförum
í knattspyrnu á þessum árum, og töldum við okkur
þá færa um að keppa við önnur félög — þótt sum
þeirra væri eldri og reyndari en við .— Mættum
við þá venjulega sameinaðir til leiks — úrval úr
báðum félögunum. Gekk þá á ýmsu um vinninga
og töp — svo var einnig um keppnir innbyrðis
milli Kára og K. A.
Ég minnist sérstaklega ferðalaga og kappleikja
við knattspyrnufélag Borgarness, knattspyrnufé-
lagið Hauka í Hafnarfirði og knattspymufélagið
Val í Reykjavík. Voru þau ferðalög mjög ánægju-
leg og kappleikirnir lærdómsríkir.
Kæru gömlu félagar. Ég þakka ykkur af alhug
fyrir ánægjulegt og drengilegt samstarf, ásamt ótal
ógleymanlegum ánægjustundum frá þessum liðnu
árum, er æskan svall í brjóstum okkar og strit og
áhyggjur hversdagslífsins höfðu ekki náð nema
takmörkuðum tökum á okkur. Nú eruð þið senni-
lega margir farnir úr Kára, eða að minnsta kosti
flestir hættir að taka þar þátt í daglegum leikjum
og störfum félagsins, en ég veit að hugur ykkar er
ætíð hinn sami til þess.
Ykkur yngri félögunum, sem nú eruð kjarni fé-
lagsins, vil ég óska þess, að þið megið vinna saman
af einlægni og drenglund. Því að hreinskilni í starfi
og drengskapur i leik, þroskar bezt og veitir mesta
ánægju.
Og íþróttirnar eru fyrst og fremst til þess að
þjálfa líkamann og sálina og veita óblandna gleði.
Megi heill og ham’mgja fylgja starfi Kára í fram-
tíðinni.
Sýndu drenglund og þor.
Tem þér einlægni og ást.
Veittu öðrum það bezta,
er sjálfur þú kýs.
Vertu trúr. Tak í sátt.
Treystu gjarnu’ á þinn mátt
-— Þú mátt trúa því vinur —
þér sigur er vís.
Ólafur Jónsson
Starfandi nefndir og fulltrúar
KÁRA:
Stjórn íþróttabandalags Akraness:
Óðinn S. Geirdal.
Guðmundur Sveinbjörnsson.
Egill Sigurðsson.
Til vara:
Bjarnfriður Leósdóttir.
Ingólfur Runólfsson.
★
HéraSsdómur:
Óðinn S. Geirdal.
Til vara:
Ólafur Vilhjálmsson.
★
EndurskoSandi 1. A.
Sigurður Vigfússon.
Til vara:
Hálfdán Sveinsson.
★
K nattspyrnuráó:
Ólafur Vilhjálmsson:
Ingólfur Runólfsson.
Til vara:
Þórður Þórðarson.
★
HandknattleiksráS:
Hallbera Leósdóttir.
Dagbjartur Hannesson.
Til vara:
Erna Guðbjamardóttir.
★
FimleikarátS:
Ingibjörg Hjartar.
Viðar Danielsson.
Til vara:
Hreiðar Sigurjónsson.
★
FrjálsíþróttaráS:
Lúðvík Jónsson.
Ársæll Jónsson.
Auður Sæmundsdóttir.
Til vara:
Sveinn Benediktsson.
★
F rœSsluráS:
Bjarnfriður Leósdóttir.
Egill Sigurðsson.
Guðmundur Sveinbjömsson.
Til vara:
Óðinn S. Geirdal.
4
——-------—.-
AFMÆLISBLAÐ KÁRA