Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Blaðsíða 33

Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Blaðsíða 33
við sína meðleikendur, en það bendir á framgang mannkynsins, að samstarfi einstklinga í smá heildir og svo stærri og stærri hópa og siðar þjóðasam- bönd til sóknar og varnar gegn öðrum einstkling- um í smáhópum einnig stækkandi upp í þjóðasam- bönd, en frá báðum hliðum jafn nauðsynlegt til- verunni og bein afleiðing af henni. Þannig er um knattspyrnuliðin, þau byggja sig upp eftir föngum hverju sinni og því betri sem hver einstaklingur veit og skilur að hann er nauðsynlegur i liðinu, og að honum er nauðsyn að leggja fram alla sína orku, kunnáttu og leikni, því meiri von er til vinn- ings yfir mótleikaranum, en í hverju tilfelli er mótleikari, það er lögmálið frá náttúrunnar hendi. Kári, elzta knattspyrnufélag á Akranesi var stofnað 26. maí 1922, af 10 ungum drengjum og fljótlega bættust fleiri við. Umkomuleysi þeirra þá, lýsir sér bezt af því, að nokkrir drengjanna áttu þess ekki kost að leggja fram eina krónu til kaupa á knetti, en hann kostaði 10 krónur. Knöttur var fyrsta takmarkið, þá æfingar og lærdómur í regl- um og leikni, og svo keppni við önnur félög um vinninga. Ég varð glaður er drengirnir stofnuðu félag sitt, og ég vonaði að um annað og meira en smá uppþot væri að ræða, og ég hafði ástæðu til að vona það, þvi áhuginn var hreinn og sterkur, þó held ég að áhugi Gústafs heitins Ásbjörnssonar hafi borið af, en hann átti óvin, sem lamaði hann á allan hátt, og varnaði honum að njóta sín, nema að takmörkuðu leyti. Þetta vissi hann vel og ræddi oft við mig, en gat ekki að gjört, úr því sem komið var. Áhugasömu drengirnir eru nokkrir enn með mikinn áhuga og starfandi i félaginu, nokkrir dánir, en minning þeirra lifir; nokkrir fluttu i fjarlægð og nokkrir búnir að draga sig í hlé, og þannig er það ætíð, að vegir skiljast, einn fer og annar kemur í hans stað og Kári má una glaður við sitt, hann hefur eignast mannval, enda er ég áhorfandinn, ánægður með störf Kára á liðnum aldarfjórðungi, saga Kára, sem ég er verulega kunnugur, er i sjálfu sér mjög glæsileg. Það sem varpar mestum ljóma á bæði knattspyrnufélögin á Akranesi, er þeirra ágæta samstarf, við byggingu íþróttavallarins, við byggingu íþróttahússins og við samæfingar og samstarf um kennara. Um mótherja er ekki að ræða nema á kappleikjum milli félaganna. Ein- mitt í þessu kemur fram hinn sanni iþrótta andi, og félögin á Akranesi mega vera stolt af því hversu mikil fyrirmynd þau eru að þessu leyti. Ég óska Kára til hamingju á þessum tímamót- um. Ég trúi því, að: Eins og honum tókst að halda lífi við raun allsleysis, knattleysis, æfingaleysis, iþróttahússleysis og skilningsleysis margra á því, að hér væri um frjóanga manndóms og menningar að ræða. Eins og honum tókst að eiga sterkan hlut að byggingu Iþróttahússins, Iþróttavallarins, sem nú er notaður, og skapa heilbrigt og gott samstarf til eflingar knattspyrnuíþróttinni og öðrum iþrótt- um á Akranesi, svo muni honum einnig auðnast að eiga sterkan þátt í byggingu fullkomins leik- vangs og öðrum iþróttaframkvæmdum hér í þess- um bæ, til eflingar og uppbyggingar, félagslyndari æsku, andlega sterkari æsku. Iþróttahúsið á Akranesi. AFMÆLISBLAÐ KÁRA 31

x

Afmælisblað Kára: 1922-1947

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Kára: 1922-1947
https://timarit.is/publication/1046

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.