Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Side 10
Á þessum árum hafði Kára hætzt margir góðir
kraftar og 1929 er keppt hér í fyrsta sinn í I. ald-
ursflokki, enda hafði þá fyrir nokkrum árum verið
stofnað hér Knattspyrnufélag Akraness, og hafa
K. A. og Kári jafnan verið keppinautar síðan og
gengið á ýmsu, hver sigur bæri af hólmi, og kemur
það nánar fram síðar í þessari grein.
Árið 1929 gefur Skafti Jónsson, útgerðarmaður
á Akranesi, forkunnarfagran útskorinn bikar eftir
Ríkarð Jónsson til keppni í I. aldursflokki og var
ákveðið, að það skyldi vera farandbikar og ekki
vinnast til eignar. Þótti knattspyrnmnönnum mik-
ill fengur i og æfðu nú af kappi undir fyrstu bikar-
keppnina. Leikurinn fór svo fram um vorið, eins og
til stóð, og fóru leikar þannig, að Kári vann með
2:1, og ennfremur fylgdi bikarnum sæmdarheitið:
„Bezta knattspyrnufélag Akraness.11 Þeir, sem voru
í þessu bezta knattspyrnuliði þá, voru sem hér
segir: Magnús Magnússon, Hannes Ólafsson,
Hannes Guðmundsson, Hjörtur Sigurðsson, Valtýr
Benediktsson, Sigurður Þorvaldsson, Jón Steinsson,
Bjarni Bjarnason, Ólafur Jónsson, Halldór Guð-
mundsson og Gústaf Ásbjörnsson. Sveinbjörn Odds-
son afhenti bikarinn og gat þess um leið, að bikar-
inn væri gefinn af áhugamanni, sem vildi vinna
að auknum íþróttaáhuga og þá sérstaklega i knatt-
spyrnunni og væri gripurinn farandbikar, sem
keppa ætti um á vori hverju og fylgdi honum
sæmdarheitið: „Bezta knattspyrnufélag Akraness.“
Kemst nú töluverður áhugi í knattspyrnuæfing-
ar og er keppt aftur vorið 1930 um Knattspyrnu-
bikar Akraness og vinnur Kári þá með 3:2. I öðr-
um aldursflokkum mun ekki hafa verið keppt þessi
árin og ekki búið að skipuleggja þá. Árið 1931 er
keppt um Knattspyrnubikar Akraness og vinnur
hann þá Knattspyrnufélag Akraness, með 2:1.
Nú hefir einhver afturkippim komið i æfing-
arnar, því að árið 1932 er ekki keppt um bikar-
inn.
Árið 1929 eru gerðar lagabreytingar og meðal
annars er þá kvenfólki leyfð innganga í félagið og
að sjálfsögðu með handknattleik kvenna fyrir aug-
um. Árið 1930 gengur Kári í Iþróttasamband Is-
lands og fær staðfestan búning sinn.
Á aðalfundi Kára árið 1933 ber formaður, Ólafur
Jónsson, fram tillögu um það, að fenginn sé knatt-
spyrnukennari fyrir félagið og hefir hann séð fram
á, að allt ætlaði að lognast út af, ef ekki væri nú
hafizt handa. Var þetta samþykkt og formanni
falið að hafa samvinnu við K. Á., og skyldi kenn-
arinn kenna hjá báðum félögunum. Þetta varð til
þess, að hinn 19. júní kom hingað Axel Andrésson
íþróttakennari, og hefst þá námskeið i knattspyrnu
og handknattleik kvenna samdægurs, því ekki vaí
til setu boðið, þegar Axel var kominn, og var hann
fljótur með sínum alkunna dugnaði að koma öllu
á fleygi ferð. Einnig hélt hann hér námskeið fyrir
dómara í knattspyrnu, og útskrifuðust þessir dóm-
arar úr Kára þ. 18. júlí: Gústaf Ásbjörnsson, Hafliði
Stefánsson, Jón Steinsson og Óðinn Geirdal.
Nú var stofnaður III. aldursflokkur í knatt-
spyrnu og handknattleiksflokkur kvenna, bæði i
Fyrsti handknattleiksflokkur
kvenna á Akranesi, stofnaSur
Í933. Kennari Axel Andrésson.
L
8
AFMÆLISBLAÐ KÁRA