Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Side 22
Ingólfur Runólfsson.
Ársæll Jónsson.
Hallbera Leósdóttir.
Vigdís Guðbjarnadóttir.
Varastjórn:
Lúðvík Jónsson.
Þorbjörg Þorbjarnadóttir.
Jóhanna Þorbjörnsdóttir.
Kári hefir á þessum 25 árum unnið til fullrar
eignar 7 bikara alls: Handknattleiksbikar kvenna
og tvo í hverjum aldursflokki í knattspyrnu, nema
í IV. fl., en þar hefur ekki verið keppt um bikar
fyrr en i vor. Þá hefur Kári unnið „Knattspyrnu-
bikar Akraness“ og sæmdarheitið „Bezta knatt-
spyrnufélag Akraness“ 11 sinnum, en alls hefur
verið keppt um bikarinn 18 sinnum á 19 árum.
Eitt árið fengust ekki úrslit.
Eins og sést hér að framan, hefur Kári lagt
aðalstund á eflingu knattspyrnuíþróttarinnar, en
eigi að síður hefur hann eftir fremstu getu stundað
og æft aðrar íþróttir, og nú seinni árin í góðri sam-
vinnu við K. A., frjálsar íþróttir, fimleika og hand-
knattleik.
Kvenþjóðin tók fyrst virkan þátt í félagsstarf-
seminni, eftir að farið var að æfa handknattleik.
Fyrsta stúlkan, sem kosin var í aðalstjórn Kára,
var Málfríður Þorvaldsdóttir, kosin gjaldkeri árið
1935. Siðan hafa stúlkur alltaf verið starfandi
stjórnarmeðlimir, og hafa þær jafnan starfað ötul-
lega að hagsmunamálum Kára, eins og vænta má
af kvenþjóðinni, þegar hún tekur eitthvað að sér.
Knattspyrnufélagið Kári hefur alla tíð látið öll
mál, sem til framfara mættu verða íþróttamálum
bæjarins, mikið til sín taka. Hafa félagsmenn og
konur ætíð verið til taks að leggja þeim lið bæði
með fjárframlögum og þó sérstaklega með sjálf-
boðavinnu. Þannig var með leikfimishús barnaskól-
anna, sem byggt var hér á erfiðustu tímum, lögð-
um við þar til bæði peninga og vinnu og tryggðum
um okkur þar með rétt til íþróttaiðkana í húsinu,
þegar það var fullgert. Svo var einnig með Bjarna-
laug, er hún var byggð. Þar lögðu Kárafélagar
fram bæði peninga, gjafavinnu og gengust fyrir
samskotum til laugarinnar.
Djarfasta og þróttmesta átak íþróttaæskunnar á
Akranesi var þó, er hún févana réðist í að byggja
stórt íþróttahús fyrir starfsemi sína. Var góð sam-
vinna um það í báðum félögunum hér, enda veitti
ekki af, og fannst sumum, sem það mundi aldrei
verða annað en skýjaborg.
Á félagsfundi í Kára, sem haldinn var 10. sept.
1944, var húsbyggingarmálið enn tekið til ræki-
legrar umræðu. Oft áður hafði verið minnzt á að
byggja þyrfti hús, en flestum hafði hingað til fund-
izt það svo fjærri, að ekkert mundi úr verða, en nú
var vaknaður almennur áhugi fyrir málinu. Sam-
þykkt var í báðum knattspyrnufélögunum hér að
hefjast nú handa og láta verða af byggingunni.
Tæpum mánuði eftir þessar félagssamþykktir var
búið að fá tillöguuppdrátt að húsinu með ágætum
stuðningi íþróttafulltrúa ríkisins, Þorsteins Einars-
sonar, og bæjarstjórnar Akranesskaupstaðar, sem
lét okkur í té lóð undir húsið. Verkið var hafið og
byrjað að grafa fyrir grunninum 4. okt. 1944.
Mest öll vinna var unnin í sjálfboðavinnu af fé-
lagsmönnum, og var húsið að mestu upp komið
um áramót, til mikillar heilsubótar og þroska fyrir
æsku Akraness í nútíð og framtíð. Húsið var vígt
og afhent til notkunar 3. marz 1945, og fóru þá
fram ræðuhöld, íþróttasýningar og fleira.
Húsið er að flatarmáli 30X13 metrar, og eru 5
metrar undir loft í fimleikasal, og er það einn
stærsti fimleikasalur landsins, auk þess eru í húsinu
að sjálfssögðu búningsklefar, böð, ræstiklefar og
þurrkherbergi, leiksvið, þar sem rúmast allmargir
áhorfendur, þegar fimleikasýningar eru eða knatt-
leikakeppnir. Kostnaðarverð hússins mun nú vera,
er ný hitalögn er komin i það, um 400 þús. krónur.
Mæltist þetta framtak íþróttafólks mjög vel fyrir
meðal bæjafbúa og urðu margir til að styrkja það
á j'unsa lund. íþróttafulltrúi ríkisins, Þorsteinn
Einarsson, var okkur mjög hjálplegur á margan
hátt, og íþróttanefnd hefir nú veitt nokkurn styrk
út á húsið og er von um, að það verði áframhald-
andi að vissu marki. öllum þeim, sem stutt hafa
okkur á einn eða annan hátt við framkvæmdir
þessar, vil ég færa beztu þakkir frá íþróttafólki hér.
Sérstaklega viljum við íþróttafólk færa bæjarstjórn-
inni þakkir fyrir hennar ágætu styrkveitingar og
góðan skilning á gildi íþróttastarfseminnar hér á
Akranesi.
Iþróttafélagar í Kára segja nú að nokkrum
árangri hafi verið náð á þessum 25 ára starfsferli
félagsins, en ekki dugir að stanza, nóg verkefni eru
fyrir hendi og margt á eftir að gera hér á Akranesi
til að gefa æskunni betri skilyrði til iþróttaiðkana,
sem gefur henni þá um leið meiri þrótt til sálar og
líkama.
Haustbikar I. flokks, Þórðar Ásmundssonar h.f.,
vann Kári til fullrar eignar í haust á móti K. A.
Kjörorð allra iþróttamanna hlýtur ávallt að
vera: Heilbrigð sál í hraustum líkama.
20
AFMÆLISBLAÐ KÁRA