Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Page 57

Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Page 57
UNDIR SKILNINGS TRÉNU Um hvað eru þeir svo að rífast? Aflar ekki hver Vestmannaeyingur margfalt meiri gjaldeyris í þjóðarbúið að meðaltali en hver Reyk- víkingur? Er ekki hver íbúi Suðurlandsundirlendis á sarna hátt margra Reykvíkinga maki í matvæla- framleiðslu? Hafa ekki mcstu snillingar þjóðarinnar og afarmenni, hver á sínu sviði, komið austan og vestan af fjörðum og norðan úr landi? Þóroddur Gnðmundsson, Tíminn, 25. 6. '59. Dálítil ferðasaga Mikil rigning var þennan dag og um nóttina blotnuðu svefnfæri stúlknanna. Tíminn, 11. 7. '59. Gjarnan Nú er aðal sundtíminn genginn í garð í Kína, ef svo má að orði komast. Þjóðv. 14. 8. '59. Til athugunar fyrir Þjóðleikhúsið Heimasætan á Hofi — Þýzk gamanmynd í litum. Margir íslenzkir hestar koma fram í myndinni. Auglýsing í dagblöðum. En engu að síður er hugmyndin ágæt Hápunktur [kveðjuhátíðar stúdenta í Danmörku] er sá, að „dimittentar“ leika frönsku stjórnarbylting- una á skólalóðinni. Þeir útbúa fallöxi, nákvæmlega eins og hún var á tímum stjórnarbyltingarinnar — og leiða síðan kennara sína hvern af öðrum á högg- stokkinn. Auðvitað er ckki einum dropa af blóði út- hellt. Alþbl., 6. 5. 59. Hvernig læt ég Hvað getur virzt sanngjarnari og réttlátari krafa en að nota hreina liti, að skilja að mynddúkurinn er flatur og að maðurinn er lifandi vera, gædd því fram yfir önnur spendýr að hugsa, en ekki skynlaus skepna eða dauð vél. Nútímalist, þetta voðalega orð í eyrum margra, er í stuttu máli í rauninni ekki ann- að en þetta. Hörður Agústsson, Birtingur, 1—2, '59. Og nafni kaupanda haldið leyndu? Barnastóll í bíl, sem breyta má í rúm, til sölu — Uppl. í s/ma 23918. Visir, 23. 6. '59. Þolsöngvari Veitingahúsið Lido hefur nú enn fengið nýja söng- konu. Að þessnu sinni er söngkonan bráðfalleg. Heit- ir hún Jackie Lynn. Verður hún hér á landi í um það bil mánaðartíma og mun syngja á Lido allan tímann. Morgunblaðið Skemmtilegasta saga ársins Dr. Salazar, einvaldi Portugals, telur sig víst hafa efni á því að gera góðlátlegt grín að stöðu einvald- ans, því að þetta kvað vera eftirlætissagan hans: Einvaldi nokkur vildi gjarnan kynnast því af eigin raun, hvað fólk segði um hann sín á milli, og því fór hann að dæmi kalífans fræga. Har-ún-al- Richard, dulbjó sig vendilega og gekk út í borgina. Hann fór inn í veitingahús, og var brátt kominn í hrókaræður við einn gestanna. Mbl. Einfeldni Ameríkumanna Amerískur prófessor ber Islendingum vel söguna í blaði í Minnesota Tíminn, 23. 1. '59 (fyrirsögn). Andlegt ljóð O, sú dýrð að eiga Tjörn, ég ætla þangað með öll mín börn. Andamamma i Mbl. 2. 7. '59. Nema þeir hafi reynt að leka augunum fyrir því ... 1 þetta sinn hótar Boss Finley að gelda Chance Wayne. Svo virðist sem Heavenley, dóttir Boss, hafi fyrir mörgtim árum sýkzt af kynsjúkdómi af völd- um Boss, og hafi orðið að gera á henni móðurlífs- skurð. Í atriðum, sem eru fölsk dramatískt séð, ljóstra Boss Finley (sem á sér ástkonu) og börn hans upp um ávirðingar hvers annars, en þessar ávirðingar ættu þó að hafa verið öllum innan fjölskyldunnar kunnugar í mörg ár. Mbl., 79. 4/59, (Lýsing á Dauðir kettir á köldu blikkbaki eftir Tennessec Williams). A. m. k. ekkert leiðinlegar Orð og athafnir eru sitt hvað, eins og bezt sést af því að lýsi t. d. rithöfundur mcð orðum þeim at- höfnum, sem fólk rekur upphaf sitt til, er það kallað klám og þykir ósæmilegt, þó að flestum þyki athafn- irnar nauðsynlegar og geðþekkilegar. Stefán Jónsson, Utsýn, 79. 70. '59. Ekki einu sinni belgisku Ungfrú Lúxemborg var annars að flýta sér til Ameríku, kann ekkert tungumál nema Luxem- borgsku og lírils háttar í frönsku. Timinn

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.