Alþýðuhelgin - 15.07.1950, Síða 5

Alþýðuhelgin - 15.07.1950, Síða 5
ALÞÝÐUHELGTN 207 (Nl.) Og á kvöldin þegar hún sat hjá lífshættulega útvarpstækinu sír.u, og vindurinn hamaðist í björkinni úti á hlaðinu, svo að greinarnar strukust við gluggann, og þegar hún lét dyn hinna stóru hljómsveita fylla stofuna — já, þegar hún lét þrjú hundruð manns í London spila fyrir sig og hækkaði í tækinu sem framast var unt, svo að Beethoven flóði eins og skriða og villt fossaföll milli hillunnar með postulínshund- inn og pottblómanna í glugganum, þá lifði hún ógnirnar frá hallandi þilfari „Titanic’s“ hvernig konur, karlar og börn æptu út í nóttina í ægilegri hræðslu við dauðann í haf- inu. Þá skolaðist sjórinn — ískaldur — um stofuna hennar sjálfrar og> fyllti huga hennar. ís óendanleikans, svo bláum og háum allt í kringum hana. Og síðan — þegar tónarnir þögnuðu — reri hún lengi yfir prjón- unum sínum; hún var að prjóna á hann Jón. Ekki ósjaldan kom fólk gegnum skóginn, og það var gamall siður hjá því að koma við hjá Lísu. Einu sinni hafði hún haft dálítið upp úr því að framreiða kaffi og láta í té húsa- skjól; þá kom það oftar, nokkrum sinnum í mánuði, þegar veðrið var sæmilegt. En jafnvel nú, í stríðinu, þegar menn fóru ekki að óþörfu um skóg- inn, komu nokkrir við hjá henni, alltaf karlmenn. Stundum gátu þeir heyrt í útvarpinu inn í skóginn, áður en þeir fundu húsið. En ef þeir komu í rökkrinu eða um miðja nótt — sem líka kom fyrir — sáu þeir oft ljósið úr stofuglugganum langa leið. Lísa var ekki mikið að hirða um myrkv- unina og oft sat hún uppi og lét ver- öldina hljóma inn í stoíuna, þangað til langt fram á nótt. Hún hlustaði á erlend mál, sem hún skildi ekki, og það gerði skelfingar heijnsins ennþá skelfilegri og leyndardómsfyllri. Og mennirnir, sem komu, hlustuðu ótta- slegnir á allan heiminn hér uppi á skógarheiðinni, og síðar töluðu þeir ekki um það við nokkurn mann, sem þeir höfðu heyrt. Flestir vissu um dauða sonarins og héldu að hún væri dálítið einkennileg í höfðinu. Einn dag fór liar.n líka um. Hann hann var þreyttur og uppgefinn eftir haltraði — nú mundi hún það! — og ferðalagið. Hún horfði á þéttan hár- vöxtinn, sem náði dálítið fram á mitt ennið, hún sat um að komast að því, hvort hann myndi það, hvort hann þekkti hana aítur. Hún bar honum kaffið í .elahúsinu og fór inn og tók til í herberginu, en hann sat við borðið með slitinn vaxdúkinn og tal- aði inn um opnar dyrnar. Það hafði hann líka gert í hitt skiptið; það voru þrjátíu ár síðan og næsta ár varð hún sjötug. Það hafði verið vikið að því í sveitinni að senda hana á gam- aimennahæli. En hún vildi ekki fara á gamalmennahæli. Hann sötraði gervikaffið og talaði um stríðið og dálítið um sjálfan sig. Har.n var umboðssali fyrir sauma- maskínur — mundi hún það líka! SAGA EFTIR JOHAN BORGEN. — og fór hér um sveitirnar og inn- heimti peninga. Hann hafði líka gert uppgötvun í sambandi við sauma- maskínur, dálitla endurbót; en það hafði ekkert orðið úr því. Það hafði ekki heldur orðið í hitt skiptið. Nú mundi hún það allt sam- an, allt saman. En það hefði mátt gera eitthvað með það ef hann hefði haft dálítið af peningum. . . . Já! Þannig var það. Það hefði mátt gera eitthvað með það, ef hann hefði bara haft dálítið af peningum. Því eins og það var nú hafði mað- ur aldrei tíma. ... ... Já! Já! nú kom skrítna orðið, sem hún hafði ekki skilið þá. Hún stóð inni í herberginu og hristi höf- uðpúðann með gamla hálminum, sem stóð út úr einu horninu. Hún hefði látið nýjan hálm í púðann, ef hún hefði vitað, hver myndi koma. . . . Maður fékk aldrei tíma til að konsentrera sig. Konsentrera. Það var orðið. Hún hafði leitað svo oft að því. Hún skildi það ekki vel þá. En síðan hafði hún lært svo margt, var orðin vitur, og gömul. Og Jón var tuttugu og sjö ára, þegar hann var drepinn í stríðinu. Hún hugsaði um það, áður en hún fór aftur fram í eldhúsið, þar sem lampinn stóð á borðinu, og hann' sat með breitt bak og beinar herðar. Þannig hafði hann setið líka þá. Það voru tvö ár síðan Jón var drepinn i stríðinu. .. . og þessir bölvaðir Þýzkarar, sagði hinn ókunni. Hann tuggði hart brauðið með erfiðismunum og gaf Þjóðyerjum sökina á því, ’nvernig fór með uppfinninguna. Lísa náði í kaffiketilinn og gaf honum aftur í bollann. .. J svo maður varð að ganga um ár eftir ár qg innheimta peninga fyrir gömiu maskínurnar, en nú hafði hann ekki haft neitt erindi fyrir handan, svo hami brá sér hingað gegnum skóginn. Kún bætti í eldinn. Úti var kalt og hvasst. Það var komið haust aftur. Henni datt það í hug fyrst nú. Það var komið haust og þeir vildu koma henni fyrir á gamalmennahæli. Ef hreppstjórinn kæmi gætu þeir sett hana í fangelsi fyrir útvarpið. Og allan tímann hugsaði hún, bak við hinar Iiugsanirnar, sem komu og fóru: Kannski man hann það ekki? Svona karlmenn fara gegnum marga skóga og leggjast með þeim, sem þeir hitta, ungum eða gömlum. Kannski man hann það alls ekki. Útvarpið var í ólagi, þegar hún ætlaði að opna það; hún gat ekki náð stuttbylgjunum. Hann opnaði kass- ann og þreifaði um spólur og leiðsl- ur, en hún horíði á kvika ‘tilfinninga- næma fingur hans. Svona höfðu þeir þreifað sig áfram miili allra hennar hnappa og borða áður fyrr. Hann var svo fingrafimur. Það var eiginlega það, sem hún var svo hrifin af. Hefði hann ekki verið alveg svona fingra- fimur í þann tíð, mundi hún hafa hugsað sig um og sent hann einan inn í herbergið. Það var svo sem ekki í fyrsta skipti sem farið hafði verið á fjörurnar við hana. Hún horfði á kvika fingurna, sem léku um ósýnilega hluti inni í tækinu, skömmu síðar var það komið í lag. Hann lokaði kassanum og lét hann á sinn stað. Þáu hlustuðu á skelfing- arnar. Jú, hann gat það, hugsaði hún. Aftur og aftur hugsaði hún: hann gat það. En allan tímann hugsaði hún um „Titanic". Og hún sá fyrir sér hið volduga þilfar, sem hallaðist niður í hafið, og öll ljósin, sem sukku í hafið og hurfu;

x

Alþýðuhelgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.