Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Blaðsíða 11
DV Fréttir miðvikudagur 8. ágúst 2007 11 Milljónir manna sjá fram á hung- ursneyð í Suður-Asíu eftir flóð sem eru þau verstu í áratugi. Yfirvöld ótt- ast sjúkdómafaraldur og átök á milli íbúa út af matarbirgðum sem eru af skornum skammti. Þrjú hundruð og sextíu dauðs- föll eru staðfest en óttast er að fjöldi annarra verði flóðunum að bráð þegar upp er staðið. Tuttugu millj- ónir manna þurfa á aðstoð að halda í Indlandi, Bangladesh og Nepal og er mikil óánægja á svæðinu með það hve hægt hjálparstarf gengur. Búist er við áframhaldandi rign- ingartíð næstu vikurnar og því muni ástandið halda áfram að versna. Ástandið er sýnu verst í Indlandi í Bihar-héraði en þar eru tólf milljón- ir manna hjálparþurfi auk þess sem hundruð þúsunda eru heimilislaus. „Við erum vongóð um að ná tökum á ástandinu fljótlega með hjálpar- sendingum með flugi,“ segir Manoj Kurnar Srivastava, hjálparfulltrúi í Bihar. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna á svæðinu segja hins vegar að hjálp- arstarf gangi allt of hægt og yfirvöld á Indlandi þurfi á hjálp að halda við skipulagningu til þess að lágmarka skaða á svæðinu. Mikil hætta er á sjúkdómafaraldri en vatnsbirgð- ir eru af skornum skammti og því freistast fólk til að drekka „óhreint“ vatn að sögn talsmanna Sameinuðu þjóðanna. Fregnir hafa borist af átökum eftir að íbúar í Darbanga-héraði sökuðu ríkisstarfsmenn um að stela hjálpar- gögnum sem eru ætluð óbreyttum borgurum. Reiðir íbúar handsöm- uðu lögreglumann og krefjast mat- arbirgða fyrir lausn hans. Flóð í Indlandi, Bangladesh og Nepal: Björgunarmenn vinna hörðum höndum við að grafa út námumenn sem festust eftir að náma hrundi í Utah í Bandaríkjunum. Björgunar- aðgerðir ganga hægt og ekki er vit- að hvort námumennirnir eru lífs eða liðnir. Þeir námumenn sem gætu hafa lifað hrunið af hafa nægt súrefni og vatn til þess að endast í nokkra daga. Ekki hefur náðst samband við mennina en yfirvöld segja að jarð- skjálfti upp á 3,9 á richter hafi vald- ið hruninu. Mennirnir eru á um fjögur hundruð og fimmtíu metra dýpi, grafnir í jörðu í skógi nálægt bænum Huntington sem er um 140 km frá Salt Lake city. „Við munum ná þeim út en það gæti tekið allt að þrjá daga“ var haft eftir einum af talsmönnum námufyrirtækisins. Hundruð björgunarmanna unnu að björgunaraðgerðum á mánudag. Í fyrstu var notast við öfluga bora en því var fljótlega hætt vegna ótta við frekara hrun. Eftir það voru teknar upp nýjar aðferðir þar sem meðal annars var notast við bor sem bor- inn var í þyrlu til þess að minnka hættu á frekara hruni. „Það voru vonbrigði að þurfa að hætta að bora eftir hefðbundnum aðferðum og mun það tefja okkur mikið,“ segir Robert Murray, stjórn- arformaður Murray-fyrirtækisins, sem er eigandi námunnar. Yfirvöld höfðu margsinnis haft afskipti af öryggisatriðum í nám- unni og hefur námufyrirtækið haft fjölda ára til þess að laga þau. Fyrir vikið er mikil reiði í Bandaríkjunum og margir sem gagnrýna yfirvöld harðlega fyrir að hafa ekkert aðhafst áður en náman hrundi. vidar@dv.is Bill Gates ekki ríkastur í heimi Mexíkanski auðjöfurinn Carlos Slim er ríkasti maður heims sam- kvæmt tímaritinu Fortune. Hann lyfti sér þar með upp fyrir eiganda Microsoft, Bill Gates, sem hafði verið á lista yfir ríkustu menn í heimi undanfarinn áratug. Eignir Slim eru metnar á um 59 milljarða bandaríkjadala en Gates á um 58 milljónir bandaríkjadala. Í blaði Fortune er bent á að Gates sé að selja skipulega hlutafé í Microsoft til að fjármagna góðgerðarstofnun sína. Á sama tíma hafa eignir Slim aukist hratt á þessu ári eða um tólf milljarða dollara. Barn skotið af lögreglu Fimm ára í drengur Noble Oklahoma í Bandaríkjunum lést eftir að hafa orðið fyrir skoti frá lögreglumanni. Atvikið átti sér stað þegar lögreglu- maðurinn hugðist aflífa snák sem var að angra íbúa nálægt fiskveiðiá einni. Hann vissi hins vegar ekki að um 70 metrum frá var drengurinn við veið- ar með afa sínum og varð hann fyrir skoti og dó samstundis. Afinn flúði af vettvangi þar sem hann var þess fullviss um að verið væri að skjóta á þá viljandi. Í rann- sókn á málinu féll fljótlega grunur á lögreglumanninn sem var sam- stundis sendur í leyfi á meðan rann- sókn málsins fer fram. Réttarhöld 24 árum eftir glæp Tuttugu og fjórum árum eftir að fimm manns fundust myrtir á afvikn- um vegi í Texas hófust réttarhöld yfir sakborningum í málinu. Þetta er elsta fjöldamorð í sögu ríkisins sem ekki hefur verið upplýst. Sakborningar í málinu, þeir Romeo Pinkerton og Darnell Hartsfield, voru handteknir eftir að DNA-sýnum var safnað úr sendiferðabíl þar sem fimmmenn- ingunum, sem allir voru starfsmenn Kentucky Fried Chicken, var safnað saman og þeir skotnir 23. september árið 1983. Fyrir vikið hafa sakborning- arnir fengið viðurnefnið „Kentucky fried-morðingjarnir“ og eiga þeir yfir höfði sér dauðarefsingu. xxxx Deilurnar eiga sér langa sögu Ólga á milli þjóðanna á sér langa sögu, allt frá því fyrir fall Sovétríkjanna sálugu. Minnisstætt er atvik þar sem yfirvöld í Rússlandi drápu nítján sjálfstæðis- sinnaða Georgíumenn árið 1989 þegar þeir stóðu fyrir mótmælum á götum Moskvu. Georgía fékk sjálf- stæði eftir fall Sovétríkjanna og stjórnmálaskýrendur telja að yfir- völd í Moskvu vilji ná yfirráðum í landinu að nýju. Í Georgíu eru sjálf- stæðissinnar innan héraðanna Suð- ur-Ódessu og Abkazia og hafa átök geisað þar síðan landið varð sjálf- stætt árið 1992. Rússar hafa löng- um stutt uppreisnarmenn í þessum héruðum og segja Georgíumenn það vera til marks um þrálátar til- raunir þeirra til þess að grafa undan stjórnvöldum í Tblisi. Hungursneyð vofir yfir Sex námustarfsmenn eru fastir eftir að náma hrundi í Utah í Bandaríkjunum. Björgunaraðgerðir ganga hægt. Í kapphlaupi við tímann Spennan maGnaSt „Ögrandi hegðun“ gela Bezhuazhvili utanríkisráðherra segir rússa sýna ögrandi hegðun. Mikheil Saakashvili Forseti georgíu er hér á fréttamannafundi í þorpinu tsitelubani þar sem sprengjan lenti. Björgunaraðgerðir Björgunaraðgerðir ganga hægt Mikil flóð umfangsmikil flóð ná yfir hluta indlands, Nepal og Bangladesh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.